Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Blaðsíða 17
Gunnar Salvarsson skólastjóri:
Vesturhlíðarskóli - skóli
heyrnarlausra og heyrnarskertra
Vesturhlíðarskóli er nýtt nafn á
skóla heyrnarlausra sem flestir
þekkja sem Heymleysingjaskólann og
áður sem Málleysingjaskólann. Oskir
um nafnabreytingu hafa til margra ára
verið viðraðar af hálfu skólastjórn-
enda en nú fyrst á vordögum féllst
menntamálaráðuneytið á tilmæli
skólans og fyrir valinu varð örnefni í
stíl við nafngiftir annarra skóla í
nágrenninu, Öskjuhlíðarskóla og
Suðurhlíðarskóla. Félagsmenn í
Félagi heyrnarlausra tóku reyndar af
skarið með nafngiftina því þeir voru
beðnir af hálfu skólans að velja á milli
tveggja nafna sem lengi hafa þótt álit-
leg: Vesturhlíðarskóli og Leynimýrar-
skóli.
I augum heyrnarlausra breytir
þetta nýja nafn sjálfsagt litlu og á
táknmáli verður skólinn hér eftir sem
hingað til (DÖFF-SKÓLI) en fyrir
ýmsa aðra hefur þessi nafnabreyting
talsvert að segja. Hún gerir það vænt-
anlega að verkum að foreldrum heym-
arskertra bama sem til skólans leita
finnst sjálfsagt sporin hingað léttari
en ella auk þess sem “leysingja”-end-
ingin þykir nú orðið bæði neikvæð og
niðrandi og æ færri taka sér hana í
munn. Samt vegur líkast til þyngst í
röksemdafærslunni fyrir nafnabreyt-
ingunni að örðugt er að finna gild rök
fyrir því að kenna skóla við einkenni
þeirra nemenda sem þar stunda nám.
Vert er að undirstrika að breytingin á
nafni skólans er síður en svo gerð til
þess að forðast orðið heyrnarlaus. Þó
einhveijir kunni að líta á það heiti sem
óæskilega aðgreiningu, stimplun eða
brennimerkingu er það staðfastur
ásetningur okkar sem störfum í skól-
anum að stuðla að því að nemendumir
geti verið stoltir af sér sem heyrnar-
lausir.
Helstu markmið og leiðir
Vesturhlíðarskóli er skóli barna á
íslandi sem hafa íslenskt táknmál að
móðurmáli. I skólanum eru líka
Gunnar Salvarsson.
heyrnarskert börn sem eiga íslensku
að móðurmáli. Öll börnin eiga það
sammerkt að þau læra ekki talmál á
eðlilegan hátt í bemsku og langflest
eiga þau auðveldara með að tileinka
sér sjónrænt mál, táknmál. Þessir
hópar barna þurfa að verða tvítyngdir
og markmið skólans er að börnin nái
fullkomnu valdi á táknmáli og ritmáli
þjóðtungunnar - geti með öðrum
orðum lesið íslenskan texta og tjáð
sig reiprennandi á táknmáli. Skóla-
stefnan hefur táknmál og menningu
heyrnarlausra í hávegum. Hvoru
tveggja er mikilvægt í mótun sjálfs-
myndar barnsins sem í flestum tilvik-
um mun tilheyra - þegar fram líða
stundir - málminnihlutahópi heymar-
lausra í íslensku samfélagi.
Skóli heyrnarlausra með tvítyngi
að leiðarljósi leggur áherslu á að
sýna í verki að mál og menning
heyrnarlausra eru homsteinar skóla-
stefnunnar. Tvítyngisstefna leggur
áherslu á að skapa þær aðstæður fyrir
heyrnarlaus böm frá frumbernsku að
þau eignist mál í táknmálsumhverfi.
Táknmál er jafn fullkomið mál og
önnur tungumál og það er lykill
bamsins til þroska og að öllu námi á
síðari skólastigum, bæði í íslensku og
öðrum námsgreinum. Þó málhópar
skólans séu tveir segirhljóðfræðilegt
mat á heyrnarskerðingu ekkert til um
það hver er heyrnarlaus og hver ekki;
samsömun með heyrnarlausum og
viðhorf til táknmáls ræður þar mestu.
Táknið “heyrnarlaus” (DÖFF) merkir
í augum heyrnarlausra að einstakling-
urinn lítur á sig sem hluta af þeim mál-
og menningarminnihluta sem hefur
táknmál að móðurmáli. Hljóðfræði-
lega heymarskertir einstaklingar geta
því verið “DÖFF”.
Sökum þess að málhóparnir í skól-
anum eru tveir og skólinn fámennur
hefur í vaxandi mæli verið farin sú leið
að kenna tveimur eða fleiri bekkjar-
deildum saman og nota tveggja kenn-
ara kerfi. Nemendur hafa því samtímis
aðgang að táknmáli og íslensku - en
bæði málin eru skýrt afmörkuð og
kennararnir tveir fulltrúar hvors máls.
Agæti tvítyngis
í kennslu heyrnarlausra
Enn sem komið er hafa stjórnvöld
ekki viðurkennt táknmál opinberlega
sem móðurmál heyrnarlausra. Stuðn-
ingur við stefnu skólans frá hendi yfir-
valda er því takmarkaður og skóla-
þróun takmörk sett við þær aðstæður.
Stefna tvítyngis hefur ýmsa ótvíræða
kosti og má þar m.a. nefna að hún:
_ veitir heyrnarlausum börnum tæki-
færi til að eignast fullkomið mál;
viðurkennir heyrnarlausa eins og
þeir eru - en reynir ekki að breyta
þeim;
_ veitir heyrnarlausum tækifæri til að
þroska með sér jákvæða sjálfsmynd
og samsama sig öðrum heymar-
lausum;
_ veitir heyrnarlausum nauðsynlegan
grunn til þess að læra önnur tungu-
mál;
_ greiðir fyrir læsi; og
_ gefur heyrnarlausum almennt tæki-
færi til betri menntunar.
Yfirburðir tvítyngis í samanburði
við aðrar menntastefnur í skólum
heyrnarlausra - eins og talmálsstefn-
una (oralisma) og stefnuna um alhliða
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
17