Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Page 4
ekki er nægjanlegt að „hafa samráð” eða gera grein fyrir
ákvörðunum þegar þær liggja fyrir.
Eins og málum er nú skipað koma þrjú ráðuneyti að
málefnum fatlaðra barna og unglinga, menntamála-,
félagsmála- og heilbrigðisráðuneyti. Það hefur því miður
alltof oft komið fyrir, þegar verið er að ræða málefni
fatlaðra við embættismenn og sérfræðinga að skilningur
hefur ekki verið nægur á málefninu. Þörf er á að einfalda
þetta fyrirkomulag og færa á færri hendur. Þetta þýðir
ekki að færa eigi málefni allra inn í eitt ofvaxið skrif-
finnskubákn heldur að ákveðnir málaflokkar (dæmi:
blindra, heyrnarskertra, einhverfra) séu undir samhæfðri
stjórn. Þar væri yfirsýnin og hin faglega þekking. Þessar
stjórnir gætu síðan leitað til einstakra þjónustustofnana
eða stofnað til þeirra ef þörf krefði. Kæmist slík skipan
á myndi slíkt auðvelda skipulag kennsluúrræða, atvinnu-
þjálfunar, atvinnu, sjálfstæðrar búsetu eða sambýla.
Olafur H. Sigurjónsson
Frá Tölvumiðstöð
fatlaðra
Tölvumiðstöð fatlaðra er aðili
að tveimur samvinnuverkefn-
um um tölvur og tæknibúnað fyrir
fatlaða. Annað er: Tœknileg aðstoð
viðfatlaða og hitt er: Tölvuþjálfun
fatlaðra barna.
Tæknileg aðstoð við fatlaða
Niðurstöður úr könnun á
tölvubúnaði fatlaðra sem gerð var
á vegum Námsgagnastofnunar
liggur nú fyrir. Aðragandi könn-
unarinnar var sá að í september
1992 samþykkti Styringsgruppen
for Nordisk skolesamarbejde að
efna til samnorræns verkefnis á
sviði sérkennslu. Verkefnið tekur til
fimm ára og lýkurþví 1997. Náms-
gagnastofnun á aðild að norræna
starfshópnum sem fjallar um
tæknilega aðstoð við fatlaða
(spesialpedagogisk teknologi).
Samráðshópur um verkefnið:
Tæknileg aðstoð við fatlaða var
skipaður haustið 1993 . I honum
sitja Sylvía Guðmundsdóttir rit-
stjóri hjá Námsgagnastofnun, sem
einnig á sæti í norræna starfs-
hópnum, Sveinn Kjartansson hjá
Námsgagnastofnun, Sigrún
Jóhannsdóttir forstöðumaður
Tölvumiðstöðvar fatlaðra og Björk
Pálsdóttir forstöðumaður Hjálpar-
tækjamiðstöðvar TR. Samráðs-
hópurinn taldi nauðsynlegt að safna
upplýsingum um tölvubúnað fyrir
fatlaða hér á landi. Spurningalisti
var sendur til ýmissa aðila er sinna
sérkennslu og fötluðum. Niðurstöð-
urnar liggja nú fyrir og er fyrir-
Sigrún Jóhannsdóttir
hugað að birta þær í litlum bækl-
ingi.
Stutt samantekt á niðurstöð-
um könnunarinnar (úr greinar-
gerð um könnun á tölvubúnaði fyrir
fatlaða):
í könnuninni kemur fram að
tölvur eru til í langflestum skólum
og stofnunum sem sinna fötluðum
og eru PC-tölvur algengastar.
Sérbúnaður sem auðveldar fötl-
uðum að nota tölvu er af skornum
skammti svo og sérþekking varð-
andi notkun slfks búnaðar. Fjöldi
forrita er notaður og er tölvan mest
notuð til markvissrar þjálfunar og
náms.
Könnunin gefur til kynna að
brýn þörf sé fyrir aðgang að mun
meiri upplýsingum og aðstoð við
notkun tölva.
Tilraunaverkefnið -
Tölvuþjálfun fatlaðra barna
A seinasta ári stóðu Salvör
Gissurardóttir lektor við Kenn-
araháskólann og Sigrún Jóhanns-
dóttir forstöðumaður Tölvumið-
stöðvar fatlaðra saman að tilrauna-
verkefninu: Tölvuþjálfun fatlaðra
barna í almennum grunnskólum og
leikskóla.
Verkefnið var styrkt af sjóði
félagsmálaráðuneytisins til at-
vinnumála kvenna. Styrkurinn var
til að greiða laun fimm kvenna sem
unnu að þessu verkefni.
Meginmarkmiðið var að kanna
notagildi tölvu sem tæki til þjálf-
unar og til frístunda.
Einnig að kynna kennurum,
foreldrum og starfsfólki möguleika
tölvunnar. Þrír skólar, einn leikskóli
og þrjú heimili voru þátttakendur í
verkefninu og var verkefnið unnið
í náinni samvinnu við þá. Hver
kona hafði einn skóla eða leikskóla
og allar nema ein fóru inn á heimili
fatlaðs barns. Skólamir sem tóku
þátt í verkefninu voru :
Breiðagerðisskóli, Hlíðaskóli,
Æfingaskóli KHI og leikskólinn
Ösp. Konurnar hafa allar menntun
og reynslu sem nýttist vel í verk-
efnin.
Verkefnið heppnaðist í alla staði
vel og liggur nú fyrir mikið magn
af upplýsingum um viðfangsefnið.
Þessar upplýsingar er verið að taka
saman og er áætlað að birta þær í
bæklingi sem við teljum gagnlegan
fyrir foreldra, kennara og aðra sem
starfa að málefnum fatlaðra.
Sigrún Jóhannsdóttir
forstöðumaður.
4