Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Side 5
Sigurrós M. Sigurjónsdóttir
form. Sjálfsbjargar Reykjavfk:
Fréttir af starfi Sjálfsbjargar
í Reykjavrk og nágrenni
Félagsstarfið hefst yfirleitt í
byrjun september ár hvert.
Briddsdeild hefur þá sína starfsemi
og er spilað á hverju mánudagskvöldi
fram undir miðjan desember og svo
er tekið aftur til við spilin í annarri
viku í janúar og spilað til aprílloka
eða fram í miðjan maí. Þá er verð-
launaafhending fyrir afrakstur vetr-
arins og kaffisamsæti.
Keppt hefur verið við briddsfélög
úti í bæ, en annars er keppt mest inn-
byrðis. Haldið var í haust minningar-
mót um einn góðan briddsara og
Sjálfsbjargarfélaga Þorbjörn Magn-
ússon. Um það bil 40 til 50 manns
taka þátt í hverri keppni og er spilað
á hverju mánudagskvöldi.
Skákin hefurgöngu sína um svip-
að leyti. Keppt er innbyrðis og einnig
við aðra úti í bæ og hafa félagar tekið
þátt í móti á vegum Skáksam-
bandsins. 10 til 15 manns eru virkir í
skákinni. Teflt er á hverju fimmtu-
dagskvöldi.
Félagsvist er spiluð á hverjum
sunnudegi og opið hús er á hverjum
þriðjudegi.
Þar er ýmislegt gert sér til
skemmtunar. Leitað er til valin-
kunnra manna, sem hafa góðfúslega
flutt ýmis gamanmál. Hagyrðingar
hafa komið og skemmt fólki og
einnig hljómlistarmenn. Flutt er eitt
atriði hvert kvöld, síðan er sungið,
drukkið kaffi og rabbað saman.
Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar er
svo haldið bingó og er það vel sótt.
Farið er í ferðalög sumar hvert
og hefur svo verið frá stofnun
félagsins, reyndar hafa þessar ferðir
lengst frá því að vera aðeins helg-
arferðir. Árin 1993 og 1994 voru
farnar 8 daga ferðir. Sl. sumar var
farið norður Kjöl, komið í Blöndu-
dalinn og haldið síðan norður, austur
Sigurrós M. Sigurjónsdóttir.
og suður um land. í ár er áætluð ferð
til Irlands, sem tekur 8 daga. Það er
mikið skipulag í kringum svona
ferðir og er það allt unnið á skrif-
stofunni ásamt öllu öðru. Mikið
hjálparlið þarf í þessar ferðir og er
það höfuðverkur félagsins að afla fjár
til svona ferða. Félagið greiðir fyrir
allt hjálparfólk. Allar ferðir, sem
félagið hefur farið í hafa tekist
afskaplega vel og er í ferðalok jafnvel
talað um hvert eigi að fara næsta ár.
Baráttumálin eru alltaf á dagskrá
og reynt að vinna að þeim eftir efnum
og ástæðum. Ferlimálin hafa verið á
dagskrá frá því á liðnu sumri að ráð-
inn var verkfræðingur í samvinnu við
Atvinnumálanefnd Reykjavíkur-
borgar og 3 starfsmenn í viðbót í um
það bil þrjá mánuði. Hefur sú vinna
skilað miklum árangri. En áfram þarf
að halda og vinna þarf úr öllum þeim
úttektum sem unnar voru sl. sumar
og er það á áætlun að vinna að því
þetta ár. Félagið er enn með samning
við Atvinnumálanefnd Reykjavíkur-
borgar vegna ferlimála fyrir einn
mann.
Unnið hefur verið að því að fá
land í nágrenni Reykjavíkur þar
sem fatlaðir geta notið útivistar sér
til gamans. Árangurinn er að koma í
ljós, því nú þessa dagana er verið að
skrifa undir samning við bóndann á
Vatnsenda, þar munum við fá spildu,
sem þarf að skipuleggja til útivistar
og gróðursetningar. Er þetta mjög
spennandi verkefni.
Þá er enn eitt ótalið og er það að
koma á fót vinnu- og tómstunda-
athvarfi hreyfihamlaðra. Þetta er nú
kannski meira en að segja það, því
það þarf húsnæði og það þarf pen-
inga, sem félagið hefur ekki alltof
mikið af. En þetta verður allt skoðað.
Á skrifstofu félagsins vinna tveir
menn eins og er. Það er fram-
kvæmdastjóri félagsins Jóhannes Þór
Guðbjartsson og Guðmundur Jón-
asson, verkfræðingur sem hefur
skipulagt öll ferlimál og mun vinna
að þeim málum að minnsta kosti
þetta ár.
Stjórn félagsins er þannig skipuð
frá 1 apríl 1995:
Formaður:
Sigurrós M. Sigurjónsdóttir
Varaformaður:
Hannes Sigurðsson
Ritari:
Sigurjón Einarsson
Gjaldkeri:
Guðmundur Magnússon
Vararitari:
Gunnar Reynir Antonsson
Sigurrós M. Sigurjónsdóttir.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
5