Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Page 6
Staldrað við hjá
Styrktarfélagi vangefinna
f Lyngási er að öllum hlúð sem allra bezt, æft og þjálfað..
eir munu ófáir lesendur þessa
blaðs sem kunna nokkur skil á
Styrktarfélagi vangefinna, vita
einhver deili á sögu þess og sigrum.
En færri vita máske um umfang
hinnar viðamiklu starfsemi þess
öfluga félags, hversu víða þar er á
vettvangi starfað, hversu vel er með
allri þróun í málaflokknum fylgzt og
hver möguleiki til rneiri þjónustu,
betri aðstöðu nýttur sem allra bezt.
Það er hins vegar ærið fróðlegt að fá
skyggnzt um sviðið með þeim sem þar
þekkja gleggzt til og því fórum við í
kærkomna kynnisferð í marzlok sl. á
nokkra mæta staði þar sem Styrktar-
félag vangefinna er með starfsemi
sína hér í borg. Aðeins var þó staldrað
við á nokkrum stöðum og máske það
eitt alveg ljóst í lok ferðar, að margt
var enn óséð og enn fleira óvitað.
Formaður og framkvæmdastjóri
bandalagsins fóru þessa för auk
ritstjórans, enda á því brýn nauðsyn
að efla sem allra bezt tengsl forystu
bandalagsins við það fólk, sem vinnur
úti á akrinum hin mikilvægu störf fyrir
skjólstæðinga þessa aðildarfélags
okkar. Við hófum heimsóknina í hinu
nýja, vistlega og rúmgóða húsnæði
félagsins að Skipholti 50 C þar sem
formaðurinn Hafliði Hjartarson og
Tómas Sturlaugsson framkvæmda-
stjóri tóku mætavel í móti okkur og
sýndu okkur vistarverur húsnæðisins.
Tómas tók svo að sér alla leiðsögn í
ferðinni og fylgdi okkur fótmál hvert
og fræddi vel.
Við óskum þeim í Styrktarfélagi
vangefinna til hamingju með
húsnæðið og þá um leið upplýst, að
þetta mun fyrsta húsnæði félagsins
sem fullunandi má teljast og fylgir
kröfum tímans. Húsnæðið er um 320
ferm. og auk almennrar skrifstofuað-
stöðu eru þarna mörg rúmgóð
herbergi þar sem eru skrifstofur
framkvæmdastjóra, skrifstofustjóra,
starfsmannastjóra, félagsráðgjafa
tveggja, umsjónarmanns íbúða,
umsjónarmanns húseigna og herbergi
fyrir forstöðumenn sambýla félagsins,
fundarsalur, kaffistofa og skjala-
geymslur. Félagið flutti þarna inn 4.
febr. sl. og una menn sér eðlilega vel.
Við vorum upplýst um það að á
launaskrá hjá félaginu væru milli 170
- 180 manns í um 120 stöðugildum.
Stöðugildi vantaði hins vegar sárlega,
þar sem þarfir þjónustuþega svo víða
hefðu verulega þyngst, en stöðugildi
staðið í stað. Þeir félagar Hafliði og
Tómas kváðust ekki hafa fengið
fjármagn til nýs rekstrar undangengin
ár og í raun aðeins það orðið á þeim
vettvangi, að frekari liðveizla hefði
fengist við íbúana í íbúðum félagsins,
en yfir 30 íbúar á þeirra vegum njóta
þeirrar liðveizlu. Þeir sögðu báðir að
vissulega kallaði margt að, dagvist-
armál og skammtímavistunarmál
væru knýjandi og svo vantaði eitt
sambýli.
Eftir stutta en fróðlega heimsókn í
aðalstöðvamar var haldið í Lyng-
ás, en þar hófst starfsemin 1961.
Forstöðumaður, Hrefna Haraldsdóttir,
tók á móti okkur, fræddi okkur vel um
starfsemi alla, veitti okkur vel og
síðan gengum við um og fengum
augum Iitið hið Ijölbreytta þjálfunar-
og örvunarstarf sem þama fer daglega
fram. Okkurþótti það einkenna mest,
hve ofurfötlun margra var yfirþyrm-
andi, en hve mikil alúð og umhyggja
um leið sveif öllu starfi yfir. Hrefna
kvað starfsemina hafa breytzt afar
mikið í tímans rás. Hún kvað þá for-
eldra sem forystu hefðu haft um upp-
bygginguna í upphafi hafa verið sanna
fmmkvöðla, brautryðjendur sem enga
hindrun létu aftra sér! Mörg fyrstu
árin var þarna eina dagvistin fyrir
fatlaða einstaklinga, þar voru bæði
börn og fullorðnir, en áður hafði dag-
vist verið rekin í leiguhúsnæði. Hún
sagði 45 börn nú í dagvistun á Lyng-
ási, en reiknað væri með 38 mest.
Aldursdreifingin væri frá 3ja ára til
tvítugs. Hún kvað vandamálið það, að
unglingarnir vildu festast - vera kyrrir.
Hrefna sagði 32 í Safamýrarskóla, 7 í
Öskjuhlíðarskóla, 4 á forskólaaldri
sem ekki væru talin með getu til að
vera á almennum leikskóla og svo
væru 2 yfir aldri án skólatilboða.
Stöðugildi í Lyngási eru 25 og þegar
gengið hefur verið um og séð hversu
mikla einstaklingsþjálfun og erfiða
um er að ræða, þá skal undir það tekið
fúslega að þarna er þörf aukningar á
stöðugildum afar brýn.
6