Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Side 8
Margt er gert til að gróðurinn megi dafna sem bezt.
Frá Bjarkarási berst liðsinni gott.
er mikil - þjálfun samskipta og boð-
skipta, sem máske er það allra tíma-
frekasta. Myndirnar koma sér mæta-
vel til að forða misskilningi. Sérstakar
boðskiptatöflur eru fyrir alla þar sem
sézt hversu dagurinn gengur fyrir sig.
Auðvitað er hér um að ræða blöndu
af þjálfun og hreinni umönnun, því
sum þurfa manninn með sér allan
daginn. Verkefnin þróast úr hreinum
afþreyingarverkefnum yfir í smá-
vinnu, pökkun plastflaskna til töku
mjólkursýna, verkefni frá Sólarfilmu
og fleira, og af myndast smásjóður
fólksins, sem nýttur er til gleðigjafar.
Við framleiðsluþáttinn vinna 2 leið-
beinendur og að vinnu þarna koma
alls 24,8 em að í einu. Föndur er einn-
ig talsvert en vinna í þeirri merkingu
miðast við 1 -2 stundir á dag. Hér er
aðeins á hluta ítarlegra upplýsinga
tæpt, en þarna vantar sárlega stöðu-
gildi, bæði til betri og aukinnar þjón-
ustu og eins til að draga úr hinu gífur-
lega álagi á starfsfólk, sem svo greini-
legt er. Við litum að lokum á vistlegan
matsal, en greinilegt að þar þarf mikill
fjöldi dvalargesta mikla hjálp til að
matast. Erna kvaddi okkur svo fyrir
dyrum úti eftir að hafa að lokum sagt
okkur frá notadrjúgri aðstöðu í kjall-
ara sem m.a. kæmi sér vel fyrir starfs-
fólk, sem enga aðra aðstöðu hefði út
af fyrir sig. Við færðum henni alúðar-
þakkir fyrir ágætar móttökur og héld-
um síðan í Bjarkarás, en þarna innfrá
er mikil og blómleg starfsemi og stutt
á milli, gróðurhúsið góða, sem getið
verður um hér á eftir, Brautarskóli,
leikskólinn sem áður hefur verið á
minnzt og svo sambýlið og skamm-
tímavistunin, allt svo að segja á sömu
lóðinni.
s
IBjarkarási tók á móti okkur Árni
Már Björnsson forstöðumaður, en
hann tók við af þeirri merku og mikil-
hæfu forystukonu Grétu Bachmann.
Arni Már bauð okkur til yndislegs
dögurðar og sagði okkur frá þeirri
framleiðslu og vinnu er fram færi í
Bjarkarási. Bjarkarás tók til starfa árið
1971 og var hugsað það hlutverk að
vera hæfingarstöð fyrir fatlaða frá 17
ára aldri og svo hefur sannarlega eftir
gengið. Stofnunin er 850 ferm. og í
afmælisbæklingi frá 1991 er sagt að
rými sé fyrir allt að 45 manns. En Ámi
Már greindi okkur frá því að í heildina
væru þar nú 50 manns þar af 4 að
hluta í starfsþjálfun frá Öskjuhlíðar-
skóla. Fjölbreytni þeirra verkefna,
sem að er unnið kom okkur skemmti-
lega á óvart en að sögn forstöðumanns
er fjölbreytnin forsenda stöðugs starfs
- það að hafa verkefni að grípa til, þeg-
ar skorpuverkefnum væri lokið hverju
sinni og þetta hefur tekizt furðanlega.
Aðeins verður hér á fáein verkefni
minnzt, en þegar okkur bar að garði
var mest kapp lagt á að pakka inn
Gigtinni - blaði Gigtarfélags Islands,
sem hafði seinkað nokkuð í prentun,
svo innpökkun hefði þurft að gerast í
gær, eins og við segjum stundum.
Þama er miklum fjölda félagsblaða og
tímarita pakkað inn og við sáum þama
ein þrjú dæmi þess auk Gigtarinnar.
Jólakort Styrktarfélagsins, Gigt-
arfélagsins og fleiri félaga fá þar
innpökkun sína svo og kort frá Sól-
arfilmu - tækifæriskort ýmiss konar.
Auk þess er margs konar vörum frá
Sólarfilmu pakkað inn, litskyggnur
t.d. klipptar til og settar í ramma. Svo
er þarna saumastofa þar sem iðni og
elja ljómaði af öllum sem annars
staðar, en tvær konur hafa þar umsjón
alla. Þarna vinna 10-12 fatlaðir.
Helztu verkefni eru sængurfatnaður,
handklæði, bleiur, afþurrkunarklútar,
að ógleymdum kokkasvuntum. Mest
áhersla er eðlilega lögð á léttan ein-
faldan saum. Og áfram var um garða
gengið og fræðsla fengin um fleiri
verkefni. Innpökkun á afmælisblöðr-
um og slaufum, sælgætispökkun (og
aldrei fallið fyrir neinum freistingum),
páskaeggjapökkun stóð fyrir dyrum.
Þungunarprófsglösum pakkað inn
ásamt leiðbeiningum; fyrir Umferðar-
ráð pakkað inn ritinu Ungir vegfar-
endur, sem er hið bezta efni sem hægt
er að hlaupa í, þegar ekkert aðkallandi
knýr á, plastkubbar, íshettur fyrir
Emmess - ís, pökkun á snældum,
stýrikerfum í tölvur o.s. frv.
s
Arni Már sagði mörg hver þeirra
fylgjast vel með og lesa í blöð-
um og tímaritum þeim sem inn væri
pakkað, þegar tóm gæfist til. Fyrir
verkefnavinnuna í Bjarkarási er greitt
allt í allt á þriðju milljón króna. Þeir
sem þama vinna fá smálaun og nú er
verið að undirbúa svokallað umbunar-
kerfi þar sem bætt verður við ákveð-
inn grunn eftir afköstum. Erfitt er að
meta réttlátlega vinnuframlagið sjálft,
enda hæfingartakmarkið til frekari
vinnumöguleika aðalatriðið. Þarna
sem annars staðar em mun þyngri ein-
staklingar en fyrrum og munar mjög
miklu á því sem áður var, t.d. tekur
As eðlilega við þeim betri, en sem
dæmi er það til að fólk hafi verið í
Bjarkarási í 20 ár í hæfingu. Ámi Már
kvað enga breytingu hafa orðið til
aukningar í stöðugildum, þrátt fyrir
aukna þyngd og minni getu. Hann
sagði að svo mætti ekki gleyma
þátttöku allra við störf í eldhúsi s.s.
við að leggja á borð, þvo upp, taka til
og auk þess fást sumir við aðstoð við
ræstingar. Sundlaugin er mikið notuð
8