Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Side 23

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Side 23
KYNNING Eins og lesendur Fréttabréfsins hafa fengið að kynnast höfum við leitast við að kynna í blaðinu þá framkvæmdastjóra félaga okkar sem þar eru að hefja störf. Nú er röðin komin að Berg- rúnu Gunnars- dóttur sem er ný- ráðin fram- kvæmdastjóri LAUF - Lands- samtaka áhuga- fólks um floga- veiki. Hún var fyrst spurð um menntun og störf: * g heiti Berg- rún Helga Gunnarsdóttir, fædd í Reykjavík 2. desember 1959 og ólst upp í Hlíðunum. Eg varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1979. Þaðan lá leiðin í Háskóla Islands, þar sem ég útskrifaðist sem hjúkrunar- fræðingur vorið 1985.1 febrúar síð- astliðnum lauk ég námi í viðskipta- og rekstrarfræði frá Endur- menntunarstofnun Háskóla Islands. Eg hef starfað víða. A árunum 1979- 1981 starfaði ég sem veðurathug- unarmaður á Hveravöllum. Eftir að námi lauk starfaði ég sumarið 1985 á Geðdeild Landspítalans, deild 33- C. Síðan fluttist ég til Danmerkur og bjó í Álaborg á árunum 1985-1989. Þar starfaði ég sem aðstoðardeildar- stjóri á hjúkrunarheimilinu Svede- gárden, Álborg Öst, til áramóta 1987. Þá réðst ég til starfa sem hjúkrunar- fræðingur á Slysadeild Borgarspítal- ans, þar til ég hóf störf nú um ára- mótin sem framkvæmdastjóri hjá LAUF, Landssamtökum áhugafólks um flogaveiki. Þá spyrjum við hversu henni falli starfið, hvað þar sé efst á baugi og hver hennar framtíðarsýn sé: Mér líst mjög vel á starfið og hlakka til að starfa með því duglega metnaðarfulla og áhugasama fólki sem hér er. Ég hef mikið lært um málefni flogaveikra síðan ég tók til starfa. Það sem mér hefur komið mest á óvart eru þessir gífurlegu fordómar sem finnast í þjóðfé- laginu í garð floga- veikra. Þetta hefur leitt til þess að fólk með flogaveiki vill ekki láta vita um sinn sjúkdóm og hefur jafnvel lent í sjálfsafneitun með skelfilegum afleið- ingum. Því hlýtur höfuðmarkmiðið að vera að stórefla alla fræðslu um flogaveiki til al- mennings, fag- fólks og ekki síst flogaveiks fólks. Forvarnarstarf verður því mitt meginviðfangsefni á næstunni fyrir utan hið daglega amstur sem fylgir rekstri af þessu tagi. Framtíðarsýnin er að koma á fót miðstöð, einskonar opnu húsi, þar sem flogaveikt fólk getur komið og dvalið á daginn eða hluta úr degi. Það þarf að efla ungmennastarf félagsins t.d. með stofnun ungliðadeildar. Einnig þarf að hlúa betur að starfsemi sjálfshjálparhópa innan félagsins. Nú þegar er starfandi öflugt foreldrafélag og hópur ungra flogaveikra kvenna. Fleiri hópar eru í bígerð. Til að geta sinnt þessum brýnu verkefnum þurfum við að komast í annað húsnæði. Hjá okkur er mjög slæmt aðgengi fyrir fatlaða og kemst því hluti félagsmanna okkar alls ekki til okkar. Engin aðstaða er til félags- starfsemi af þessu tagi. Við höfum fundið húsnæði sem hentar okkur og fyrirhugaðri starfsemi og við hyggjumst flytja síðla sumars. Mín framtíðarsýn er sú að öll sambærileg líknarfélög taki upp aukna samvinnu sem m.a. leiði til hagræðingar í rekstri og þar með aukins styrks. Við hjá LAUF lítum framtíðina björtum augum og hlökkum til að takast á við skemmtileg og ánægjuleg verkefni. B.H.G. HLERAÐ í HORNUM Hún: “Hversu heitt elskarðu mig?” Hann: “Eins mikið og þú elskar mig”. Hún: “Er það nú allt og sumt”. **** Ritstjóri var að fara með þennan brandara fyrir nokkrar samstarfskonur sínar og rétt í því að hann segir sæmi- lega leikrænt: “Hversu heitt elskarðu mig?”, kemur sú valinkunna kona Guðríður þar að og spyr ritstjóra beint: “Við hverja þeirra ertu að tala?” **** Bóndasonur einn lagði hug á jafnöldru sína, er Helga hét, en hann var afar óframfærinn og þorði ekki að stynja upp bónorðinu. Hann sá sér hins vegar leik á borði við kirkju einn sunnudaginn þar sem Helga stóð afsíðis með tveim stöllum sínum, gekk yfir til þeirra og sagði hátt en þó eins og við sjálfan sig: “Ég vildi óska að ég fengi ykkur fyrir konu, nema Gunnu og Guddu”. Þá sagði Helga feimnislega og frekar lágt: “Ég segi já”. **** Hjón nokkur höfðu bæði verið í hjónabandi áður og áttu börn, sem þau fluttu með sér í búið bæði tvö og síðan eignuðust þau börn saman.Sagan segir, að einhverju sinni hefði konan komið heim og þá verið óvenju mikil læti í börnunum og hún spurt mann sinn hvað gengi eiginlega á. Þá svar- aði hann: “Ormarnir þínir og krakk- arnir mínir voru að kvelja börnin okkar”. **** Brezkur sendiherra var á sínum tíma að spyrja Mao formann nokkurra almennra spurninga eftir að hafa fengið sjaldgæft viðtal við þennan leiðtoga Kínverja. “Hvað heldurðu að hefði nú gerzt, ef Krústsjoff hefði verið myrtur í stað Kennedys?”. Mao formaður hugsaði sig um en svaraði síðan: “Ég býst ekki við að herra Onassis hefði kvænzt ekkju Krústsj- offs”. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 23

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.