Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Blaðsíða 24
VIÐHORF
Kristján Valdimarsson, forstöðumaður Örva:
Atvinnumál fatlaðra
Atvinnumál fatlaðra eru umræðu-
efni sem seint verður fjallað of
mikið um á opinberum vettvangi.
Einkum á þetta við ef litið er til stöðu
málaflokksins og þess oft og tíðum
takmarkaða árangurs, sem náðst hefur
í að tryggja fötluðum atvinnu við hæfi
á almennum vinnumarkaði.
Nú er nýlokið starfi nefndar sem
Jóhanna Sigurðardóttir fv. félags-
málaráðherra skipaði til að fjalla um
og gera tillögur í atvinnumálum fatl-
aðra. Undirritaður sat í nefndinni
tilnefndur af stjórn Öryrkjabandalags
íslands. Nefndin skilaði tveimur
áfangaskýrslum á starfstíma sínum.
Sú fyrri kom út í september 1993 og
fjallaði um flesta þætti atvinnumála
fatlaðra en sú síðari kom út í maí 1994
og fjallaði um sérúrræði.
Skýrslur nefndarinnar voru sendar
út til umsagnar og einnig hélt nefndin
kynningar- og umræðufundi um efni
þeirra. Almennt má segja að umsagnir
um skýrslurnar lýsi ánægju með störf
nefndarinnar og vonum um að þær
breytingar sem þar eru lagðar til komi
til framkvæmda.
1 lokaskýrslu gerir nefndin 15 til-
lögur um afmarkaða þætti sem
hún vill láta hrinda í framkvæmd.
Ekki verður gerð grein fyrir öllum
þessum tillögum hér en vísað til
skýrslunnar. Hér er þó notað tækifær-
ið til að vekja athygli á fjórum af
tillögum nefndarinnar sem allar eiga
það sammerkt að auðvelt á að vera að
hrinda þeim strax í framkvæmd.
Tilraunaverkefni um að
ákveðinn fjöldi / hlutfall fatlaðra
verði ráðinn til starfa hjá nokkrum
ríkisfyrirtœkjum.
Eitt þeirra atriða sem hægt er að
beita til að útvega einstaklingum með
skerta starfsgetu störf við hæfi, er að
fyrirtæki séu tilbúin til að hagræða og
endurskilgreina störf og verkþætti
sem sinna þarf innan fyrirtækisins.
Tillögur um nýjar leiðir
Kristján Valdimarsson.
Færa má til verkefni sem margir
starfsmenn sinna og gera úr því eitt
starf sem hentað gæti fötluðum
einstaklingi. Aðrir starfmenn fá þá
meira svigrúm til að sinna öðrum
verkefnum.
Grundvöllur slíkra breytinga er að
greind séu hin ólíku störf fyrirtækisins
og hvaða hæfni þurfi til að leysa þau.
Athugaðir séu möguleikar á að sam-
eina verkþætti í störf sem fatlaðir gætu
unnið svo og að taka ákveðna verk-
þætti úr störfum og gera að sérstökum
verkefnum.
Með þetta í huga gera nefndar-
menn tillögu um að samið
verði við eitt eða fleiri ríkisfyrirtæki
um að þau ráði ákveðið hlutfall af
starfsmönnum sínum úr röðum fatl-
aðra. Þetta verði gert sem liður í
rannsóknum á möguleikum vinnu-
markaðarins að hagræða störfum til
að auðvelda fötluðum að fá vinnu.
Með því að gera slíka tilrauna-
samninga við ákveðin ríkisfyrirtæki
má leita tæknilegra lausna á vanda-
málum sem upp kunna að koma við
slíkar breytingar.
Nefndin leggur til að þessi tilraun
standi í ákveðinn tíma t.d. 5 ár.
Við tilraun sem þessa er mikilvægt
að starfsmenn fyrirtækjanna gjaldi
ekki fyrir þátttöku í tilrauninni og að
fullt samráð verði haft við viðkom-
andi starfsmanna- og stéttarfélög.
Rannsókna- og tilraunasjóður
í atvinnumálum fatlaðra.
Til að stuðla að nýjungum og ný-
sköpun í atvinnumálum fatlaðra legg-
ur atvinnumálanefndin til að stofnað-
ur verði rannsókna- og tilraunasjóður
í atvinnumálum fatlaðra. Tilgangur
sjóðsins verði að stuðla að nýjungum
í atvinnumálum sem beinast að auk-
inni þátttöku fatlaðra á vinnumark-
aðnum.
Sjóðurþessi hafi þríþætt hlutverk:
Að auka samskipan fatlaðra og
ófatlaðra á vinnumarkaðnum.
Að rannsaka og gera tilraunir með
tækninýjungar sem stuðla að
aukinni atvinnuþátttöku
fatlaðra og auðveldi þeim störf.
Að efla vinnuvernd og slysavarnir.
Að mati nefndarmanna er fátt mik-
ilvægara en slíkt tilrauna- og rann-
sóknastarf og margt bendir til þess að
í slíku starfi sé fólginn fjárhagslegur
ávinningur. Rétt er að minna á mikinn
kostnað við tekjutryggingu örorkulíf-
eyrisþega og kostnað ríkissjóðs af
ýmsum sérúrræðum í atvinnumálum
fatlaðra.
Til þess að sjóður þessi gegni
ofangreindu hlutverki þarf hann að
vera öflugur og hafa fastan tekjustofn.
Endurskoðun á verkefnum og
verkefnavali vinnustaða fatlaðra.
Nefndin gerir tillögu um að kann-
aðir verði möguleikar á fjölbreyttara
verkefnavali á vinnustöðum fatlaðra
og áhersla lögð á hvers kyns þjónustu-
starfsemi við almenning.
Nefndin vill leggja sérstaka
áherslu á að kannað verði hvernig
auka megi fjölbreytni í verkefnavali
vinnustaða fatlaðra. Nefndarmenn
24