Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Síða 37

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Síða 37
HLERAÐ í HORNUM Tveir ungir menn voru á gönguferð í Wales og komu að afskekktum bæ, þar sem kona ein bjó, sem var nálægt miðjum aldri, en gerði greinilega allt til að líta sem unglegast út. Leið svo nóttin í góðri gistingu hjá konunni. Níu mánuðum seinna fékk svo annar þeirra ábyrgðarbréf sem vakti honum mikla undrun. Hann hringdi í félaga sinn og minnti hann á næturgistinguna fyrrum og spurði hvort hann hefði far- ið yfir til konunnar um nóttina. Eftir að hinn hafði játað því, spurði vinur- inn hvort hann hefði gefið konunni upp sitt nafn í stað síns eigin og játti hinn því. “Þarna er skýringin. Eg fékk nefnilega ábyrgðarbréf, sem sagði frá láti hennar. Hún arfleiddi mig að einni milljón”. Ungi presturinn kom til aldurhnigins fyrirrennara síns og kvaðst hafa mikl- ar áhyggjur af því, hve mörg sóknar- barna hans litu oft á klukkuna, þegar liði á ræðu hans í stólnum. Eldri prest- urinn sagði honum engar áhyggjur af því að hafa, en ef þau fara að bera úrin upp að eyranu til að vita hvort þau séu stoppuð, þá máttu fara að hugsa þinn gang. Sonurinn ungi á heimilinu bað ákaft um hund, en faðir hans benti honum á þá hættu að móðir hans myndi verða svo upptekin af hundinum að hann fengi alla hennar eftirtekt og hún myndi gleyma að sinna þeim báðum. Sonurinn hugsaði sig um en sagði svo: “Já, en pabbi, þú gætir nú reynt að gelta öðru hvoru”. **** Ung írsk stúlka fór til skrifta og segir við prestinn. “O, faðir, ég hefi syndg- að svo hræðilega. A mánudagsnóttina svaf ég hjá Jóni, á þriðjudagsnóttina hjá Patreki og á miðvikudagsnóttina svaf ég hjá Mikka. Ó, faðir, hvað á ég að gera?” “Bamið mitt, farðu heim og kreistu allan safann úr heilli sítrónu og drekktu hann svo.” “Ó, faðir, bætir það fyrir synd mína?” “Nei, barnið gott, en það þurrkar máske burt sælubrosið á andlitinu.” Styrkveitingar ÖBÍ1995 Til félaga bandalagsins: Alnæmissamtökin á íslandi: kr. 300.000,00 Blindrafélagið : kr. 450.000,00 Félag aðstand.Alzheimersjúkl. : kr. 150.000,00 Félag heyrnarlausra: kr. 550.000,00 Foreldra- og styrktarfél.heyrnard.: kr. 150.000,00 Geðhjálp : kr. 350.000,00 Geðverndarfélag Islands : kr. 300.000,00 Gigtarfélag íslands : kr. 450.000,00 Heyrnarhjálp : kr. 300.000,00 LAUF: kr. 400.000,00 MG-félag íslands : kr. 150.000,00 MS-félag íslands: kr. 400.000,00 Parkinsonsamtökin : kr. 250.000,00 SÍBS : kr. 500.000,00 Sjálfsbjörg : kr. 650.000,00 SPOEX : kr. 200.000,00 Styrktarfél.lam.fatl. : kr. 400.000,00 Styrktarfélag vang. : kr. 600.000,00 Umsjónarfélag einhverfra : kr. 300.000,00 Til annarra en aðildarfélaga var úthlutað alls einni milljón hundrað og fimmtíu þús. krónum og eru sumarbúðir Iþróttasambands fatlaðra þar hæstar með 400 þús. kr. Meðal annarra styrkveitinga má nefna: Daufblindrafélag Islands og Halaleikhópinn með 100 þús.kr. hvor aðili, sömuleiðis Atak með 50 þús.kr. Samtals var úthlutað nú 8 milljónum króna. H.S. Frá Starfsþjálfun fatlaðra Hinn 18. maí sl. var haldin útskriftarhátíð hjá Starfsþjálfun fatlaðra, en þá fengu 10 nemar þriðju annar lokaprófskírteini sín. Skólastjórinn, Guðrún Hannesdóttir, flutti ræðu, greindi frá starfi vetrarins, sem eins og jafnan áður hafði mörgum mikið veitt. Guðrún greindi og frá því að þetta yrði síðasta útskriftin sem fram færi á níundu hæð Hátúns 10 þar sem að baki væru margar góðar geymdar stundir. Næsta haust yrði hið nýja húsnæði Starfsþjálfunar fatlaðra að Hátúni 10 í notkun tekið og öll starfsemi Starfsþjálfunar fatlaðra sem og Tölvumiðstöðvar fatlaðra þangað flutt. Þetta hús hefur á undraskömmum tíma risið, öllum þeim til mikils sóma sem þar hafa að verki verið. Haustblaðsins bíður að gera nánari grein fyrirþessum tímamótatíðindum. Ólöf Ríkarðsdóttir, formaður Öryrkjabandalagsins og um leið í stjórn Starfsþjálfunar fatlaðra flutti ávarp, árnaði útskriftaraðlinum allra heilla, lýsti sérstakri ánægju með það hversu hið verðmæta hlutverk Starfsþjálfunar væri vel af hendi leyst í hvívetna. Þar hefði mörgum og yrði enn fleirum veitt dýrmætt veganesti út í lífið. Um leið tilkynnti Ólöf þá höfðinglegu ákvörðun stjórnar Öryrkjabandalags Islands að veita fé til kaupa á húsbúnaði fyrir Starfsþjálfun fatlaðra að upphæð 1.5 millj. kr. Varþessu að vonum vel fagnað. Avörp fluttu fulltrúarfyrstu og þriðju annar og útskrifaraðallinn leystur út með blómum og bókargjöf að ógleymdum ótal kossum. Formaður stjórnar Starfsþjálfunar fatlaðra er Margrét Margeirsdóttir en aðrir í stjóm Ólöf Ríkarðsdóttir og undirritaður. Helgi Seljan. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 37

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.