Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Page 4
Efþú heilbrigður ert...
/
Rætt við Asgerði Ingimarsdóttur, fyrrverandi
framkvæmdastjóra Öryrkjabandalagsins
Ef þú heilbrigður ert
skaltu hugsa um þá,
sem hamingjan gleymdi um
skeið...
Upphafsstefið í ljóði Asgerðar
Ingimarsdóttur, er sterkt
ákall til okkar sem heilbrigð
erum. Þegar eitthvað snertir innsta
streng í brjósti Asgerðar flæða ljóðin
fram, eins og
þetta sem ort var
á Ari fatlaðra
1981. Helst ómar
þessi strengur,
þegar veikir eru
órétti beittir, enda
konan búin að
vera í framvarða-
OddnýSv. sveit Oryrkja-
Björgvins bandalagsins í 28
.... ár, lengst af sem
framkvæmdastjóri, vinsæi og vel
látin af starfsfólki og skjólstæðing-
um. “Ég var svo heppin með
samstarfsfólk,” segir hún. Gam-
ansöm sjálfslýsing segir meira: “Vel
gefinn gagnfræðingur með með-
fædda hæfileika til að umgangast
fólk.”
Margt hefur komið frá penna
Asgerðar í baráttumálum öryrkja,
ein yfirskrift er minnisstæð -Sá veiki
er sá sterki- “í henni felst, að sjúkir
og fatlaðir geta gefið okkur miklu
meira en við þeim,” segir Asgerður.
Við hittum Ásgerði á heimavelli.
Hlutverk framkvæmdastjórans er
að baki, fjölskyldumóðirin Ásgerður er
komin í aðalhlutverk. “Eg sagðist
myndu hætta að vori, og ákvað
starfslok mín sjálf í vor. “Þú ferð bara
að passa börn,” sögðu sumir með
lítilsvirðingu. Það er rétt, ég sinni
barnabörnunum töluvert. Af hverju má
ég það ekki? Ég hef gaman að kynnast
þeim betur og mæti heilmikilli þörf.
Líka gott að vera heima, eftir langar
fjarvistir í vinnu. Nágranni rninn sagði,
að nú væri þetta eins og á stór-
býlunum, alltaf einhver í bænum.”
Ásgerður var kvödd með virktum.
Gullhálsmen var kveðjugjöf frá
framkvæmdastjórn. Heimsatlas frá
samstarfsfólki, - og glæsileg kvöld-
verðarveisla. “Mér þykir mjög vænt
um mitt samstarfsfólk, og oft var
glatt á hjalla hjá okkur. í svona starfi
verður maður að geta séð broslegu
hliðarnar, annars verður allt svo
dapurlegt,” segir Ásgerður, sem
barðist í 28 ár fyrir...
Þeím sem ævilangt
bíða eftir bjartari tíð
og brjóta sér farveg um leið...
“Þegar ég var ritari úthlutunar-
nefndar öryrkjabifreiða, kynntist ég
ungu fólki, sem var oft afskaplega
biturt í fyrstu. Síðar heyrði ég í
þessu sama fólki, eftir kannski
fjögur ár, þá var eins og það væri
kornið yfir örðugasta hjallann. Þetta
gerist á örskotsstundu, ungu fólki er
kippt út úr daglegu lífi - og þarf að
læra að lifa allt öðru lífi. Samt nær
margt fatlað fólk að vera svo ótrú-
lega lífsglatt og jákvætt síðar meir.”
Ásgerður segist alltaf fara á
leiksýningar Hala-leikhópsins. “Þar
er gleðin í fyrirrúmi,” segir hún.
“Reykjalundur hefur mikil og góð
áhrif. Þar er reynt að hjálpa fólki að
finna út, hvað það getur gert í hjóla-
stól, og oft hafa leyndir hæfileikar
komið í ljós.” Ásgerður nefnir dæmi
um Loft Loftsson bónda, sem bjó yfir
svo miklum músikhæfileikum, að
hann fór út í að læra tónlist og kenna.
“Annað þekkt dæmi er Jón H. Sig-
urðsson bóndi, sem fór út í líffræði-
nám, hefur staðið sig frábærlega vel
og kennir nú við Verslunarskóla
Islands.
gegnum sjúkdóma,
einangrun, angur og böl
en eru samt sterkari en þeir...
Sterkir einstaklingar hafa yfirunnið
vandann, fundið farveg sinn í lífinu,
og tekið örlögum sínum með þögn og
þolinmæði. Styrkur þeirra er svo
mikill, að þeir geta gefið okkur miklu
meira en við þeim. Árin 28 hafa mótað
mig mikið, kennt mér að sýna
umburðarlyndi, - og að hafa lífsgleði
og góðsemi í fyrirrúmi. Ég er búin að
sjá svo margt, að dagleg vandamál
verða smávægileg.
Vandamálin eru allsstaðar. Enginn
kemst í gegnum lífið nema að bjóða
4