Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Blaðsíða 44
Frá hátíð Sjálfsbjargar.
HÁTÍÐ VEGLEG
OG VÖNDUÐ
Sjálfsbjörg á höfuðborgar-
svæðinu hélt myndarlega
upp á 40 ára afmæli sitt með
hófi fyrir félaga og gesti hinn 1.
nóv. sl. Raunar var þetta annar í
afmæli því áður hafði félagið opnað
unaðsreit sinn við Elliðavatn s.s.
hér hefur glögglega verið greint frá.
Formaðurinn Sigurrós M. Sigur-
jónsdóttir setti hina fjölsóttu sam-
komu í Ársal Hótel Sögu og minnti
á baráttu félagsins og helstu áfanga
á 40 ára ferli. Þar hefðu oft vænir
sigrar unnist þó langt væri enn í
land með fullnaðarsigur. Hún kall-
aði til sín velgjörðamann félagsins:
Magnús Hjaltested Vatnsenda-
bónda og veitti honum verðuga
viðurkenningu fyrir mikilvægan
stuðning við félagið.
Þá flutti ávarp Þórður Skúlason,
framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra sveitarfélaga, færði
félaginu þakkir sambandsins fyrir
farsæl störf og gott samstarf. Hann
ræddi nokkuð fyrirhugaðan flutn-
ing málefna fatlaðra til sveitarfélag-
anna og kvaðst vænta hins besta af
því þar sem Sjálfsbjörg yrði að
sjálfsögðu með sín hollu áhrif.
Þá kom á vettvang Sigrún
Hjálmtýsdóttir með undirleikara
sínum Önnu Guðnýju Guðmunds-
dóttur og fluttu þær stöllur nokkur
lög við frábærar undirtektir að
vonum.
Eftir að menn höfðu satt sárasta
hungrið af kræsingum þeim
sem á borð voru bornar voru flutt
ávörp. Haukur Þórðarson form.
Öryrkjabandalagsins flutti
Sjálfsbjörg hlýjar heillaóskir
bandalagsins, kvað Sjálfsbjörg einn
traustasta hornstein bandalagins.
Arnór Pétursson form. Sjálfs-
bjargar. landssambands flutti ham-
ingjuóskir landssambandsins,
hvatti til vökullar varðstöðu og veit-
ullar sóknar í málefnum öryrkja.
Færði minningarblómvendi um
fallna félaga er í forystu hefðu
staðið og voru þeir á leiði þeirra
lagðir síðar.
Þá afhenti Jóhannes Þór Guð-
bjartsson fulltrúum nokkurra fyrir-
tækja viðurkenningu fyrir stuðning
við Sjálfsbjörg og mættu nokkrir
þeirra en hinum sent, þau voru:
Dynjandi hf, Gunnars majones hf,
Natan og Olsen hf, Osta- og
smjörsalan, Seðlabanki Islands,
Sjóvá-Almennar, Smith og Norland
hf, Trygging hf. og Tryggingamið-
stöðin hf.
Þá kynnti Jón Stefánsson form.
Halaleikhópsins leikatriði hópsins
sem var listilega flutt sem þeirra
Hala var von og vísa.
Ólafur Oddsson varaform.
Sjálfsbjargar veitti svo styttur til
eftirtalinna einstaklinga fyrir vel
unnin störf að félagsmálum. Þau
voru: Guðrún Guðmundsdóttir,
Hlaðgerður Snæbjörnsdóttir,
Oddný Jónsdóttir, Ólöf Ríkarðs-
dóttir, Sigurrós M. Sigurjónsdóttir
og Vilborg Tryggvadóttir.
Þakkarskjal fengu: Jóhannes
Þór Guðbjartsson, Sigmar Ó.
Maríusson og Sigurður Pálsson.
Viðurkenningarskjöld hlaut Hannes
Hákonarson fyrir frumkvæði í
ferðamálum fatlaðra.
Næst flutti ungur félagi í BUSLI
Aðalbjörg Gunnarsdóttir ljóð.
Að lokum flutti formaður þakk-
arávarp og hvatti fólk duglega til
dáða.
Undirritaður stýrði þessu vel
heppnaða hófi og flutti félaginu
tvær stökur sem hér fylgja á eftir.
H.S.
44