Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Blaðsíða 39
Hins vegar væru þjónustugjöld of
há, hinir tekjulægstu veigruðu sér við
að fara til læknis eða drægju það von
úr viti af efnalegum ástæðum. Olafur
sagði að nú áraði vel og benti ráða-
mönnum á að almenningur vildi ekki
spara í heilbrigðisþjónustu. Hann
vildi draga úr dýrum legudeildum,
nýta meir sjúkrahótel. “Þó sannleik-
urinn sé dýrmætur er óþarfi að fara
sparlega með hann”, voru lokaorð
landlæknis.
orkell Guðbrandsson yfirlæknir
nefndi sitt erindi: Lífshættir og
hjartasjúkdómar. Hann vék að
fyrirbyggjandi þáttum. Vandinn sá að
kransæðasjúkdómar leggjast á fólk á
besta aldri. Offita fer vaxandi sem
dæmi, en áhættuþættir væru margir
s.s. erfðir en meiri hlutinn lægi í um-
hverfi okkar eða lífsháttum. Hann
nefndi reykingar, streitu í hraða nú-
tímalífs, andlega og félagslega ein-
angrun, kyrrsetu, ofnæringu, erfðir
aðeins 20%. Ráð til varnar: reykbind-
indi. hreyfing, halda kjörþyngd, að
gæta eðlilegrar blóðfitu og blóð-
þrýstings, ná slökun og andlegu jafn-
vægi. Verst væri ef margir áhættu-
þættir virkuðu saman, þá þyrftu menn
S
Alyktun formanna-
fundar VMSÍ
Víða að fá réttlætismál okkar og
barátta fyrir þeim verðugan
stuðning. Eitt nýjasta dæmið er frá
formannafundi Verkamannasam-
bands íslands á Akureyri í októberlok.
Þar var samþykkt svohljóðandi
ályktun um tryggingamál. Allt frá
árinu 1992 hafa greiðslur úr almenna
tryggingakerfinu verið skertar miðað
við þróun lægstu launa. Fundur for-
manna innan Verkamannasambands
Islands haldinn á Akureyri 28.-29.
október 1998, krefst þess að þetta
misvægi verði leiðrétt og í framhaldi
af því fylgi greiðslur úr tryggingakerf-
inu þróun lægstu launa.
Einnig krefst fundurinn þess að
þau skerðingarákvæði sem koma til
vegna launa úr lífeyrissjóðum og
vegna tekna maka verði afnumin hjá
Tryggingastofnun ríkisins.
Við færum formönnunum fjarska
góðar þakkir fyrir veitta liðsemd sem
sannarlega er mikils virði.
máske allt í senn að breyta um lífsstíl
almennt, fara í líkamsrækt, skipta um
neyslumynstur og hætta að reykja.
Brýndi fyrir mönnum að láta fylgj-
ast vel með blóðþrýstingi, heima-
mæling væri t.d. ódýr lausn. Hann
benti á að áður hefðu menn haldið að
aldraðir þyldu hækkaðan blóðþrýsting
betur en aðrir, slíkt væri kórvilla.
Itrekaði við fólk að þjálfa sig vel og
gleyma ekki að slaka á.
Auður Olafsdóttir og Sólrún
Oskarsdóttir yfirsjúkraþjálfarar HL.
— stöðvar áttu svo lokaerindið:
“Láttu þér líða vel”.
ær vöktu athygli á því að auðvelt
væri að hvíla í sig þreytu og sofa
í sig svefn og þótti mörgum tíðindi.
Hámarksgeta fólks auðvitað
misjöfn, en líkamleg áreynsla lífs-
nauðsyn.
Eftir áföll og veikindi setti eðlilega
kvíða að fólki, hvað tæki nú við? Hér
væri hjartaendurhæfing mjög góð,
eftir aðgerð færu 6-8 vikur í viðhald
og fræðslu og svo tækju við 4 vikur
eða meir í líkamlegri þjálfun, sem
sinnt væri bæði á Reykjalundi og HL
stöðvunum. Fyrir hjartasjúklinga
væri mikil nauðsyn fastmótaðs kerfis:
hjartaendurhæfing, háþrýstingseftirlit,
blóðfitueftirlit, lækniseftirlit. Sem
best eftirfylgd brýn nauðsyn. Þær
lögðu áherslu á reglubundna þjálfun
tvisvar til þrisvar í viku, hópþjálfun
gjarnan best enda víða stunduð hér á
landi af HL hópum. Hana þarf að
auka enn. Rösk ganga er góð, öll
hreyfing er holl og nefndu þær dans
sem dæmi og það tekur ritstjóri svo
sannarlega undir.
Þetta var hið fróðlegasta málþing,
vel sótt sem og mun þing LHS hafa
fjölsótt verið einnig. Arangur starfs
þeirra er ótrúlegur og hann ber allri
þjóðinni að þakka.
H.S.
Formenn aðildarfélaga
• • /
Oryrkjabandalags Islands
Alnæmissanitökin á íslandi: Ingi Rafn Hauksson.
Blindrafélagið: Helgi Hjörvar.
Blindravinafélag íslands: Helga Eysteinsdóttir.
Daufblindrafélag Islands: Jón Jónasson.
Félag aðstandenda Alzheimersjúkl: María Jónsdóttir.
Félag heyrnarlausra: Berglind Stefánsdóttir.
Félag nýrnasjúkra: Dagfríður Halldórsdóttir.
Foreldrafélag misþroska barna: Matthías Kristiansen.
Foreldra- og styrktarf. heyrnard: Málfríður Gunnarsdóttir.
Geðhjálp: Pétur Hauksson.
Geðverndarfél. Islands: Tómas Zoéga.
Gigtarfélag Islands: Einar S. Ingólfsson.
Heyrnarhjálp: Guðjón Yngvi Stefánsson.
LAUF: Astrid Kofoed-Hansen.
Málbjörg: Benedikt E. Benediktsson,.
MG-félag íslands: Ólöf S. Eysteinsdóttir,.
MND-félag íslands: Rafn R. Jónsson.
MS-félag íslands: Vilborg Traustadóttir.
Parkisonsamtökin: Nína Hjaltadóttir.
Samtök sykursjúkra: Sigurður V. Viggósson.
SIBS: Haukur Þórðarson.
SPOEX: Helgi Jóhannesson.
Sjálfsbjörg: Arnór Pétursson.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra: Þórir Þorvarðarson.
Styrktarfélag vangefinna: Hafliði Hjartarson.
Tourette-samtökin á Islandi: Elísabet Magnúsdóttir.
Umsjónarfélag einhverfra: Astrós Sverrisdóttir.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
39