Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Page 9
ASPERGER -
HEILKENNI
Asperger-
heilke
HVEKNIG HÆGT ER AÐ
SKILJA OG HJÁLPA FÓLBŒ
MEÐ ASPERGERHEILKENNIOG
VELVTRKUM EINHVERFUM
Kari Steindal
Landssamtök einhverfra,
Noregi.
Rita forden
dósent hjá School of Education,
The Univcrsity ofBirmingham.
Forsíða ritsins.
Nýlega hefur verið þýtt og
gefið út hér á landi
allnokkurt rit um Asperger
— heilkennið, ábyrgðarmaður
útgáfunnar er Agatha Agnarsdóttir.
Höfundar eru Kari Steindal frá
Landssamtökum einhverfra í
Noregi og Rita Jorden dósent hjá
School of Education, The Univer-
sity of Birmingham.
Undirfyrirsögnin er: Hvernig
hægt er að skilja og hjálpa fólki
með Asperger — heilkennið og
velvirkum einhverfum.
I inngangi segir að eina myndin
sem margir höfðu af einhverfu var:
“Barnið í glerbúrinu.” Þar segir
einnig að Aspergerheilkenni sé
ósýnileg starfræn röskun.
Aðeins verður hér tæpt á fyrir-
sögnum til að gefa örlitla mynd af
efnisinnihaldi. í fyrsta kaflanum er
fjallað um hvernig eigi að finna
Aspergerheilkenni eða einhverfu á
leikskólaaldri, grunnskólaaldri og
á fullorðinsárum. Það sem er svo
kallað einhverfurófið — skipt í þrjá
hluta: Hin “fjarlægu” sýna mikið
afskiptaleysi gagnvart öðrum. Hin
“óvirku” svara félagslegri nálgun,
en hafa sjaldan frumkvæði sjálf.
Hin “skrýtnu” hafa félagsleg sam-
skipti, en sýna litla hæfileika til að
aðlaga málnotkun eða hegðun öðru
fólki. Taka að litlu leyti tillit til
þarfa annarra.
Til viðbótar er svo þessi skil-
greining á einhverfu:
A.Eigindleg skerðing hæfni til
gagnkvæmra félagslegra sam-
skipta.
B. Skortir hæfni til yrtra og óyrtra
tjáskipta og til atferlis sem krefst
hugmyndaflugs.
C. Áhugamál og atferli einkennast
mjög af einhæfu og fastmótuðu
ferli.
D. Kemur fram fyrir þriggja ára
aldur.
Svo er Aspergerheilkennið tekið
fyrir sér í lagi og þar segir að
það mikilvægasta sem skilur heil-
kennið frá einhverfu sé lipurt tal-
mál. Fjallað er um orsakir, afleið-
ingar og horfur. M.a. er rætt um
hversu foreldrar verði oft ráðvilltir
vegna þess að þeim finnst barnið
þeirra “verða utanveltu”.
Ekki eru tök á því að rekja hér
náið hina ítarlegu umfjöllun um
fjölmargt heilkenninu viðkomandi.
Spurt er t.d. hvernig við getum best
veitt hjálp og stuðning, bæði út frá
fjölskyldunni og út frá þörfinni fyrir
ráðgjöf fagfólks.
Sér í lagi eru svo kaflar um leik-
skólann og grunnskólann m.a. með
tilliti til tómstunda og síðan eru
kaflar um framhaldsnám og fram-
haldsmenntun, atvinnu, húsnæði,
lyfjaþörf o.s.frv. Þetta er hluti sá
sem kemur frá Kari Steindal
I þeim hluta sem eftir Ritu Jor-
dan er þá er sagt frá því hversu unnt
sé að þekkja og uppfylla hinar
sérstöku kennslu-
fræðilegu þarfir
nemenda með Asp-
ergerheilkenni. Þar
er á ýmsu gripið s.s.
erfiðleikum í náms-
umhverfi, erfið-
leikum sem byggjast
á hegðunartrufl-
unum, námsþarfir
sem byggjast á
samskiptavandamál-
um, námsörðugleik-
um vegna félags-
legra erfiðleika, svo
og erfiðleikum sem
byggjast á sveigj-
anleika í hugsun og
hegðun. Einnig er
farið náið út í
kennsluþarfir m.t.t.
námsskrár.
Eitt er ljóst,
vandamálin eru
mörg og margþætt
og á þeim þarf að taka sem allra best
— þýðandinn er Margrét Kolka
Haraldsdóttir. Fjármögnunþýðing-
arinnar úr sænsku var alfarið kostuð
af Svölunum.
etta mjög svo ófullkomna
ágrip kveikir vonandi áhuga
einhverra að fá meiri fræðslu um
þetta vandamál. Til þess er ritið
hreinlega kjörið, alla vega þykist
ritstjóri talsvert fróðari eftir laus-
lega yfirferð.
Hjá Umsjónarfélagi einhverfra
geta menn nálgast þetta rit svo og
erunokkureintöktilhérábæ. Víst
er að framtakið er mjög gott og full
þörf á þessu riti, sem er á ljósu og
lifandi máli. Aspergerheilkennið
ætti að geta orðið mönnum Ijósara
en áður þegar slíkur fróðleikur er í
boði.
Sérstök ástæða er til að þakka
ábyrgðarmanni útgáfunnar Agöthu
Agnarsdóttur.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
9