Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Side 10
Aðalfundur
Oryrkjabandalags Islands
Aðalfundur Öryrkjabandalags
íslands 1998 var haldinn að
Hótel Sögu laugardaginn 31.
október og hófst hann kl. 10 árdegis.
Formaður Öryrkjabandalagsins,
Haukur Þórðarson, setti aðalfundinn
nieð ávarpi og bauð alla velkomna til
fundar, en fundinn sátu alls nær 80
fulltrúar og gestir. Haukur minnti á
þá nýju skipan sem nú hefði verið
tekin upp, en á síðasta aðalfundi hefði
verið samþykkt tillaga um að fyrir
fundinn yrðu allar skýrslur og reikn-
ingar sendir út til fulltrúa á aðalfundi,
en þar eiga atkvæðisrétt 3 fulltrúar frá
hverju aðildarfélagi bandalagsins.
Þetta hefði verið gjört nú og vonandi
skilaði það sem beztum árangri.
Asgerði Ingimarsdóttur fyrrv. fram-
kvæmdastjóra bandalagsins hafði
eðlilega verið boðið á aðalfundinn og
bauð Haukur hana sérstaklega
velkomna og færði henni innilegar
þakkir fyrir öll hennar mætu og merku
störf.
á minntist Haukur Einars Aðal-
steinssonar hins þekka starfs-
manns Vinnustaða Öryrkjabanda-
lagsins til svo margra ára en Einar lézt
í sviplegu slysi sl. sumar. Risu
aðalfundarfulltrúar úr sætum til að
votta Einari virðingu sína og þökk.
Fundarstjórar voru kjörnir þau
Þórir Þorvarðarson og Valey Jónas-
dóttir og fundarritarar þau Helgi
Hróðmarsson og Kristín Jónsdóttir.
Næsta mál á dagskrá voru aðild-
arumsóknir þriggja nýrra félaga og
gerði Helgi Seljan grein fyrir þeim en
þau voru: Daufblindrafélag Islands,
Málbjörg og Tourette- samtökin.
Framkvæmdastjóm og stjórn höfðu
fjallað um umsóknirnar og gjörðu þá
tillögu til aðalfundar að félögin fengju
aðild. Var það síðan einróma sam-
þykkt og félögin boðin innilega
velkomin, en aðildarfélög bandalags-
ins þá orðin 27 talsins. Fulltrúar hinna
nýju félaga ávörpuðu svo fundinn og
þökkuðu traustið og fögnuðu því að
vera komin í hópinn. Þetta voru þau
Benedikt E. Benediktsson frá
Málbjörg, Þorlákur Ómar Einarsson
frá Tourette - samtökunum og Svan-
hildur Anna Sveinsdóttir frá Dauf-
blindrafélagi Islands.
Næst voru svo teknar fyrir
skýrslur framkvæmdastjórnar
og skrifstofu bandalagsins og höfðu
formaður og framkvæmdastjóri stutta
framsögu fyrir þeim í samræmi við
það að þessar skýrslur báðar voru í
heftinu góða sem sent hafði verið út
fyrir fundinn. Aðeins til að drepa á
efnisatriði í skýrslu formanns þá voru
þau eftirtalin: Inngangur. Alyktanir
aðalfundar til heilbrigðisráðherra.
Samstöðuhátíð í Stykkishólmi. Meg-
inreglur Sameinuðu þjóðanna.
Umboðsmaður fatlaðra hjá SÞ í
heimsókn á fslandi. Vinnustaðir
Öryrkjabandalagsins. íslenzk Getspá.
Geðdeild í Hátúni 10. Gjaldskrár-
hækkun Landsímans. Talgerfill.
Starfsþjálfun fatlaðra. Dómur Hér-
aðsdóms Reykjavíkur. Leigufbúðir.
Umsagnir um frumvörp og reglu-
gerðir. Yfirfærsla málefna fatlaðra frá
ríki til sveitarfélaga. Bæklingur fyrir
sveitarstjórnarkosningar 1998.
Fundur með forstjóra Trygginga-
stofnunar og tryggingayfirlækni.
Samstarfsnefnd Tryggingastofnunar
ríkisins. Reglugerð fyrir svæðisráð.
Ár aldraðra. European Disability
Forum. Önnur erlend samskipti.
Styrkir og að lokum: Starfsfólk ÖBÍ.
Þetta allt hefur fengið meiri eða minni
umfjöllun hér í Fréttabréfinu og
verður því ekki rakið hér. Formaður
gerði tvö atriði sérstaklega að
umtalsefni. Annað varðaði yfirfærslu
málefna fatlaðra til sveitarfélaga sem
nú ríkti óvissa um hvenær kæmi til
framkvæmda sem orsakaði vandræða-
stöðu. Brýnt væri að vel væri til þessa
vandað en nauðsyn bæri til að sem
fyrst kæmist á hreint hvenær af gæti
orðið. Hitt atriðið snerti reglur eða
lagaforsögn um örorkumat sem í
deiglunni væri og hefði það sem
meginforsendu að læknisfræðilegar
ástæður réðu, þannig að menn misstu
ekki mat niður í prósentum og þar
með örorkuskírteini sitt vegna ein-
hverrartekjuöflunars.s. nú gæti gerzt.
Minnti Haukur á að það hefði lengi
verið krafa Öryrkjabandalagsins að
10