Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Side 24

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Side 24
Vissir þú? Að rúmur helmingur skjólstæðinga Hjálparstofnunar kirkjunnar og Rauða kross íslands eru öryrkjar - fólk sem vegna fötlunar og veikinda hefur ekki til hnífs og skeiðar. Að hvergi á Norðurlöndum eru öryrkjar hlutfallslega færri en á íslandi. í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi er hlufall þeirra um tvöfalt hærra. Að hvergi á Norðurlöndum eru öryrkjum greiddar eins lágar bætur og á íslandi. Að jafnaði eru þær um tvöfalt hærri hjá frændþjóðum okkar. Að ísland hefur um árabil verið í hópi fimm tekjuhæstu ríkja OECD. Að á síðustu 5 árum (1993-1998) hafa lágmarkslaun hækkað um 52%, launavísitalan um 30%, en örorkulífeyrir og tekjutrygging einungis um 17,4%. Að fátækt eykur á veikleika og vekur upp nýja sjúkdóma sem kosta samfélagið veruleg fjárútlát. Að hefji öryrki sambúð eða hjónaband missir hann um þriðjung bóta sinna og fær að hámarki 44 þúsund krónur. Að gagnstætt því sem viðgengst um atvinnuleysisbætur og aðrar tryggingabætur eru tekjur maka látnar ráða því hve mikið af sínum 44 þúsund krónum öryrkinn fær. Að verði barnið þitt fyrir varanlegri örorku gera íslensk stjórnvöld því illkleift að lifa mannsæmandi lífi. Að með hækkun örorkubóta um nokkra tugi þúsunda myndi ríkissjóður fá rúman helming til baka í einu eða öðru formi, og eru þá ótalin ýmis óbein útgjöld sem slík ráðstöfun myndi spara þjóðfélaginu. Að öryrkinn hefur alla jafna ekki átt þess kost að ávinna sér lífeyrissjóðsrétt, eignast húsnæði og njóta þeirra launa og lífsfyllingar sem heilbrigðri starfsæfi fylgir. Þvert á móti hefur hann, oft frá unglingsaldri, búið við þrengstu fjárhagsskorður sem þekkjast og borið margvíslegan kostnað af fötlun sinni. Að með mannréttindasáttmálum hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að tryggja að hver einstaklingur eigi kost á fullri þátttöku í menningar- og mannlífi þjóðarinnar. 24

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.