Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Blaðsíða 29
ALYKTANIR AÐALFUNDAR
Sú nýja tilhögun var viðhöfð á
aðalfundi nú að vinnuhópar
störfuðu um 5 tilgreinda mála-
flokka: atvinnumál, búsetumál,
félagsmál, kjaramál og menntamál.
Þar stýrðu verki formenn starfsnefnda
þeirra sem starfað höfðu milli aðal-
funda og munu starfa áfram næsta ár.
Endirinn varð sá að út af fundinum
fór aðeins meginályktun um kjaramál
svo og stuðningur við þingmál. Fara
þær hér á eftir:
Meginályktun aðalfundar ÖBI:
Aðalfundur Öryrkjabandalags
íslands, haldinn 31.október 1998,
skorar á Alþingi að aflétta því neyð-
arástandi sem ríkir í tryggingamálum
öryrkja og búa svo um hnúta að bætur
dragist aldrei aftur úr þróun launa-
vísitölu. Þá skorar fundurinn á
Alþingi að viðurkenna hina margvís-
legu sérstöðu öryrkja með því að
hækka grunnlífeyri sérstaklega og
mest hjá þeim sem verða fyrir varan-
legri örorku á æskuárum.
Verði einstaklingur fyrir varanlegri
örorku 20 ára eða yngri skal grunn-
lífeyrir hans nema ekki lægri upphæð
en kr. 45.000 á mánuði og fylgi sú
upphæð þróun launavísitölu. Verði
einstaklingur fyrir örorku síðar á
starfsævinni skal grunnlífeyrir hans
nema hlutfallslega lægri upphæð, eða
sem svarar 1,4% (kr.636) fyrir hvert
ár umfram tvítugt uns ellilífeyrisaldri
er náð.
Aðalfundur ÖBI hvetur stjórnvöld
til að afnema skerðingu bóta vegna
tekna maka og létta til muna jaðar-
sköttum af því fólki sem harðast verð-
ur fyrir þeim. Til að svo megi verða
er nauðsynlegt að hækka verulega
bæði frítekjumark og skattleysismörk,
auk þess sem hverfa verður að fullu
frá skattlagningu húsaleigubóta.
Stuðningur við þingmál
Aðalfundur Öryrkjabandalags
íslands fagnar þeim þingmálum til
hags- og réttarbóta fyrir öryrkja sem
þegar hafa verið lögð fram á 123.
löggjafarþingi. Aðalfundurinn treyst-
ir því að öll þessi mál komi síðar til
umsagnar Öryrkjabandalagsins svo
þar gefist tækifæri til álitsgerðar um
hin ýmsu mál, sem fyrir þingið eru
lögð.
Þetta eru m.a.: frumvarp til laga
um að tekjur maka hafi ekki áhrif á
tekjutryggingu lífeyrisþega; tillaga til
þingsályktunar um að íslenska tákn-
málið verði viðurkennt sem móður-
mál heyrnarlausra; frumvarp til laga
um að húsaleigubætur verði ekki
skattlagðar; frumvarp til laga um
aukningu á greiðsluþátttöku sjúkra-
trygginga vegna tannlæknakostnaðar;
tillaga til þingsályktunar um endur-
skoðun reglna um sjúklingatryggingu;
frumvarp til laga um að fella niður
þjónustugjöld í heilsugæslu; frumvarp
til laga um greiðsluþátttöku Trygg-
ingastofnunarríkisins vegna sérfræði-
þjónustu við böm og unglinga á sviði
sálfræði og félagsráðgjafar og frum-
varp til laga um breytingu á útvarps-
lögum að fréttir, sem fluttar eru í
aðalfréttatíma sjónvarps, skuli jafnan
vera textaðar á íslensku og textinn
gerður aðgengilegur þeim sem svo
kjósa.
Aðalfundurinn skorar á Alþingi að
samþykkja þessi réttlætismál nú á
þessu síðasta þingi fyrir næstu alþing-
iskosningar.
Aðalfundurinn felur framkvæmda-
stjórn bandalagsins að fylgjast vel
með framvindu þessara mála svo og
annarra þeirra sem fram koma og
varða hag og heill lífeyrisþega.
Yarðandi aðrar ályktanir þá voru
þær meira inn á við og þeirra
aðeins stuttlega getið. Búsetuvinnu-
hópur beindi því til stjórnar banda-
lagsins og stjórnar Hússjóðs að kann-
að verði hvort unnt sé eða æskilegt
að Hússjóður styðji öryrkja til kaupa
á íbúðarhúsnæði, Hússjóður eignist
eða láni 10% af andvirði íbúða.
Könnunin taki til þess hvernig slíkt
kæmi út fyrir öryrkja sem Hússjóð.
Jafnframt hve margir gætu nýtt sér
þennan valkost. Ef útkoman verður
jákvæð mælir aðalfundur með því að
tilraun verði gerð á næsta ári. Engu
að síður verði haldið áfram uppbygg-
ingu félagslegra íbúða.
Atvinnumálahópurinn lagði til
ýmislegt sem atvinnumálanefndin
heldur áfram að fjalla um s.s. hvernig
tryggja megi rekstrargrundvöll
verndaðra vinnustaða, launamál og
önnur réttindi fatlaðra þar verði til
jafns við aðra launþega í landinu,
úttekt verði gerð á þjóðhagslegu gildi
við atvinnuþátttöku fatlaðra, sem
þurfi nauðsynlega að auka.
Félagsmálahópurinn lagði megin-
áherslu á tómstundir fatlaðra, not
þeirra af orlofshúsum stéttarfélaga til
jafns við félaga þeirra og bindur
miklar vonir við starf það sem unnið
er í stjórnskipaðri nefnd sem um
ýmislegt þessu tengt fjallar og Helgi
Hróðmarsson situr í af hálfu banda-
lagsins og er þar ritari.
Menntamálahópurinn beindi því
til framkvæmdastjórnar að aðildar að
nefnd menntamálaráðuneytis um
endurskoðun námsskrár verði krafist.
Fleira verður ekki tíundað hér en
framkvæmdastjórn hefur þegar tekið
þessi mál til athugunar og fram-
kvæmda.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDAFAGSINS
29