Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Qupperneq 37
María, Ingibjörg og Helga í Viðeyjarferð,
en þangað fór Hringsjárfólk.
einstaklings eraðjafnaði 5 klst. ádag,
fimm daga vikunnar. Markmiðið er að
hver einstaklingur finni starf við hæfi
eða frekara nám og verði fær um að
takast á við slík verkefni.
VERKEFNI 2: Námskeið
Kennsla og þjálfun í tölvunotkun,
mat á möguleikum einstaklinga til að
nýta sér tölvutæknina til náms og
starfa. Önnur námskeið, t.d. bókhald,
atvinnuleit og gerð umsókna. Nám-
skeiðin eru ýmist opin öllum full-
orðnum fötluðum eða sérhæfð og
lokuð, þá ætluð sérstaklega fólki með
ákveðna fötlun. Lögð er áhersla á að
aðstaða og búnaður sé við hæfi.
Kennt í 7-8 manna hópum, u.þ.b. 30
kennslustundir. Fjöldi hópa um 6
hópar á ári.
VERKEFNI 3: Ráðgjöf
Ráðgjöf og faglegur stuðningur er
ekki fellur undir verkefni 1 og 2.
Eftirfylgd útskrifaðra og viðtöl við
aðra einstaklinga sem leita ráðgjafar,
oft með tilvísun frá ýmsum samstarfs-
aðilum t.d. svæðisskrifstofum, endur-
hæfingarstöðum, læknum, félögum
og samtökum öryrkja. Gert erráð fyrir
u.þ.b. 20-30 ráðgjafarviðtölum á viku.
Þjónustan skal innt af hendi af for-
stöðumanni, náms- og starfsráðgjafa
eða sálfræðingi.
Starfseminni skal hagað í samræmi
við markmiðsgrein laga um málefni
fatlaðra nr. 59/1992
Eins og sjá má er þarna komin
staðfesting á þáttum starfsins sem
hingað til hafa verið úti í kuldanum
hvað fjárveitingar varðar eins og
námskeið og ráðgjöf. Samningurinn
hefur því verulega fjárhagslega
þýðingu um leið og í honum felst
viðurkenning á því starfi sem unnið
er, hann er okkur lyftistöng. Með
tilkomu samningsins eru forsendur
starfsreglna sem settar voru starf-
seminni 1987 að nokkm leyti brostnar
og eru því í endurskoðun, þetta snertir
m.a. skipun stjórnar. Margrét Mar-
geirsdóttir hefur verið formaður
stjórnar Starfsþjálfunarinnar frá upp-
hafi, skipuð af félagsmálaráðherra.
Nú líður að því að hún láti af því
embætti og ég vil nota þetta tækifæri
til að undirstrika hversu frábærlega
hún hefur unnið að hag og framgangi
Starfsþjálfunarinnar og sýnt því
góðan skilning alla tíð. Þar hefur hún
unnið ómetanlegt starf og ég vil þakka
henni einstaklega gott samstarf.
Aðrir stjórnarmenn eru Helgi
Seljan og Ólöf Ríkarðsdóttir og eiga
þau einnig góðar þakkir skildar fyrir
ötult starf , mikilvægan og góðan
stuðning og ánægjulega samvinnu.
Starfslið Starfsþjálfunarinnar er
það sama og áður, ómetanlega tryggt
starfsfólk með óbilandi áhuga. Þeim,
sem og starfsfólki Öryrkjabanda-
lagsins, þakka ég vel unnin störf og
góða samvinnu.
Guðrún Hannesdóttir.
Guðríður
Ólafsdóttir
Nýr
félagsmálafulltrúi
Öryrkjabandalagsins
Frá og með 1. sept. sl. tók hér til
starfa hjá Öryrkjabandalagi
Islands sem félagsmálafulltrúi Guð-
ríður Ólafsdóttir. Guðríður er máske
svo vel kunnug fólki í þessum mála-
flokki að óþarft sé að kynna hana
frekar en örfá atriði úr lífshlaupinu
engu að síður fest á blað.
Guðríður er fædd 12.mars 1946að
Hlíðarenda í Ölfusi og ólst þar upp.
Hún er spastísk frá fæðingu af óljós-
um orsökum. Guðríður tók gagn-
fræðapróf frá Hlíðardalsskóla 1962.
Hún hóf svo störf hjá Sjálfsbjörg —
landssambandi, fyrst í afleysingum
1966ogvann þarsvoíl8árogsíðan
8 ár hjá Reykjavíkurfélaginu. Þaðan
fer hún svo til Félags eldri borgara
sem framkvæmdastjóri þess félags og
síðan einnig Landssambands aldraðra
eftir stofnun þess en þar var hún í 8
ár. Sl. ár var hún deildarfulltrúi hjá
Félagsmálastofnun Reykjavíkur.
1988 varhún kjörin í aðalstjórn Sjálfs-
bjargar — landsambands fatlaðra, var
svo varaformaður þar og tók við for-
mannsstöðunni við lát Jóhanns Péturs
Sveinssonar og var formaður þar til í
vor leið. Hún er formaður stjórnar
Sjálfsbjargarheimilisins og í stjórn
Öryrkjabandalags Islands var hún
þetta síðasta starfsár.
Guðríður er fráskilin, var gift í 31
ár og á eina dóttur barna. Við hér á
bæ bjóðum Guðríði hjartanlega vel-
komna til starfa að hinum mörgu mál-
um sem á þarf að taka á ýmsa lund.
Hún er gjörkunnug þessum mála-
flokki hvert sem litið er og því vitum
við að okkur hefur bætst hinn vaskasti
liðsmaður sem allir vænta sér hins
besta af.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
37