Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Qupperneq 46
Núverandi stjórn SÍBS.
31. þing SIBS
31. þing SÍBS var haldið á Reykja-
lundi dagana 24. og 25. okt. sl.
Formaður SÍBS, Haukur Þórðar-
son, setti þingið, þingforsetar voru
Vilhjálmur B. Vilhjálmsson og Þor-
steinn Sigurðsson.
Þingið sóttu alls 96 fulltrúar eftir
að aðild Samtaka lungnasjúkra að
SÍBS hafði verið einróma samþykkt.
SÍBS inniheldur nú SÍBS deildirn-
ar sem áður voru og stofnuðu samtök-
in fyrir 60 árum, Astma- og ofnæmis-
félagið, Landssamtök hjartasjúklinga
og svo nú Samtök lungnasjúkra. Alls
eru félagar innan SÍBS nú 6223 talsins
að sögn Jóns Þórs Jóhannssonar skrif-
stofustjóra sambandsins sem greindi
mér stuttlega frá ýmsu um þingið.
Raunar sat ritstjóri þingið að hluta og
fékk m.a.s. að ávarpa þessa ágætu
samkomu með ákveðinni skýrslugerð
- í stuttu máli þó um Sjóð Odds Ólafs-
sonar og Öryrkjabandalagið. Skýrslur
margar voru þarna fluttar sem segja
má að sanni best hið geysilega um-
fang viðamikillar og fjölbreyttrar
starfsemi sambandsins.
Svo dæmi séu tekin þá voru þama
auk ítarlegrar skýrslu stjórnar, skýrsla
stjórnar Reykjalundar, stjórnar
Múlalundar, Vöruhappdrættis SIBS,
um starfsemi Múlabæjar og Hlíða-
bæjar. Skýrsla var um NHL, skýrslur
fastanefnda, frá starfsemi HL stöðv-
anna í Reykjavík og á Akureyri auk
þess allra nýjasta, skýrsla um Lands-
söfnun Reykjalundar á þessu hausti
sem verðuga athygli fékk og árangur
ágætan þrátt fyrir allar bilanir.
Að venju störfuðu tjórar nefndir á
þinginu: allsherjarnefnd, fjárhags-
nefnd, laganefnd og uppstillingar-
nefnd og skiluðu þær áliti til þingsins
um hin ýmsu mikilvægu verkefni.
Nokkrar lagabreytingar voru t.d.
gerðar. Samþykkt var lagabreyting
eða nýjung um heimild til að stofna
stoðdeild SÍBS, fyrirtæki, stofnanir,
félög, sem vildu styrkja SÍBS gætu átt
þar aðild.
Nú er það komið í lög að öll stjórn
SÍBS er kjörin til tveggja ára.
Einnig voru nú lögleiddar starfs-
nefndir milli þinga, en aðalþing SÍBS
eru haldin á tveggja ára fresti.
Deildir ýmsar komu með tillögur
til samþykktar m.a. frá Austurlands-
deild LHS um eflingu HL stöðvar í
Neskaupstað. Jón Þór vildi koma því
að, að fjárhagsaðstoð sambandsins
væri mjög góð. Þar væri sá bakhjarl
sem til þyrfti Vöruhappdrætti SIBS,
sem ómetanlegt væri til stuðnings.
í stjórn SÍBS til næstu tveggja ára:
Formaður: Haukur Þórðarson
Varaformaður: Gísli J. Eyland
Ritari: Þorbjörn Arnason
Gjaldkeri: Björn Ól. Hallgrímsson
og meðstjórnendur: Margrét M.
Ragnars, Davíð Gíslason, Þorbergur
Þórðarson og Þorsteinn Sigurðsson.
Auk þess var svo kjörið í stjórn
Reykjalundar, Múlalundar og Vöru-
happdrættis SÍBS auk milliþinga-
nefnda. Þingið var málefnalegt mjög
og fór hið besta fram að sögn Jóns
Þórs sem þakkað er fyrir liðsinnið.
H.S.
Lausavísur úr
lausu lofti gripnar
Sólskinsfjárlög segjast menn
sannlega okkur færa.
En vantar ekki í þau enn
æðri samhjálp tæra?
Kosningar nálgast, mér um er og ó
því ýmislegt þyrfti að laga.
Og fjarska mun verða af framboðum nóg.
Þeim fjölgar með steinbarn í maga.
Ýmsir hér fara svo mikils á mis
og megna vart lífsbjörg að eiga.
En léttast mun gangan, ef Ijómandi blys
lýsa inn í þingsali mega.
Þó að myrkrið veki vá
og varla greinist sólin,
ennþá Ijómar heið og há
hátíð barnsins, jólin.
46