Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1998, Side 49
Hlerað
í hornum
Skemmtikrafturinn var farinn að
eldast og sætti sig illa við það. Einu
sinni var hann staddur í anddyri
salarins þar sem hann átti að troða upp
og þá koma þar tvær glæsikvinnur í
flasið á honum. Hann gerir sig til í
andlitinu og segir hæ á eins lokkandi
hátt og honum var unnt. Engin
viðbrögð. Það var svo ekki fyrr en
þær voru komnar nokkuð í burt frá
honum sem hann heyrði aðra þeirra
segja við hina.
“Heyrðu, það hefur nú bara gleymst
að grafa hann þennan”.
oooooo
Hjónin voru að fara í ferðalag og
frændinn sem hafði setst upp hjá þeim
var að kveðja.
í kurteisisskyni sagði frúin: “Við
munum nú sakna þín frændi”.
Frændinn var skjótur til svars: “Þið
þurfið þess ekki, ég get sem hægast
komið með ykkur”. En þá heyrðist í
eiginmanninum. “Nei, svo mikið
söknum við þín nú ekki”.
oooooo
Maður sem gjarnan notaði orðatiltæki
afar vitlaust stóð upp í
fimmtugsafmæli frúar sinnar og
sagði: “Alltaf þegar ég hugsa til konu
minnar þá flýgur mér í hug
orðatiltækið gamla: “Svo má illu
venjast að gott þyki”. Af varð hlátur
sumra, en aðrir urðu vandræðalegir og
frúin sjálf blóðroðnaði. Maðurinn
áttaði sig og hélt ótrauður áfram: “Já
hlæið þið bara, en þannig hefur nú mín
góða kona mátt venjast mér, svo nú
er hún bara allsátt með gripinn”.
oooooo
Ungi maðurinn var að biðja þá
heittelskuðu að giftast sér en hún
sagði enn einu sinni nei. “Ef þú heldur
áfram að segja nei þá geng ég út og
skýt mig í hausinn, svo heilasletturnar
fara út um allt”, sagði sá vonsvikni.
Þá sagði stúlkan: “Ja, hann pabbi
myndialdeilisþurfaaðsjáþað. Hann
heldur því nefnilega fram að þú sért
heilalaus”.
oooooo
Ritstjóri haltraði eftir ganginum og
kunnur bíladellumaður mætti honum
og spurði um ástæður heltinnar. “Ja,
ég sleit hásinina”, svaraði ritstjóri. Þá
sagði hinn: “Já, það er ekkert spaug
þegar hásingin bilar.”
* * * *
Smiðurinn kom til kunningja síns og
sagði; “Ja, nú var ég heldur betur
stálheppinn í morgun, ég datt til jarð-
ar úr 7 metra háum stiga og eins og
þú sérð þá sér ekki á mér".
Kunninginn byrjaði að dásama þetta
kraftaverk en þá bætti smiðurinn við:
“Ja ég datt nú reyndar úr neðstu
tröppunni”.
• • Stjórn Oryrkjabandalags
íslands 1998-1999
Alnæmissamtökin: MG-félag íslands:
Ingi Rafn Hauksson. Ólöf S.Eysteinsdóttir
Blindrafélagið: Málbjörg:
Gísli Helgason Benedikt E. Benediktsson
Blindravinafélagið: MND- félag íslands:
Guðbjörg Jóna Sigurðardóttir. Rafn R. Jónsson
Daufblindrafélag fslands: MS-félag fslands:
Lilja Þórhallsdóttir Garðar Sverrisson
FAAS - Félag aðstandenda Parkinsonsamtökin á íslandi:
Alzheimersjúklinga: María Jónsdóttir. Nína Hjaltadóttir
Samtök sykursjúkra:
Félag heyrnarlausra: Sigurður Viggósson
Hafdís Gísladóttir SÍBS - Samband íslenskra
Félag nýrnasjúkra: berkla-og
Dagfríður Halldórsdóttir. brjóstholssjúklinga: Haukur Þórðarson.
Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra: Sjálfsbjörg, lsf.:
Málfríður Gunnarsdóttir Arnór Pétursson.
Foreldrafélag misþroska Styrktarfélag lamaðra og
barna: fatlaðra:
Heidi Kristiansen. Þórir Þorvarðarson
Geðverndarfélag íslands: Styrktarfélag vangefinna:
Elísabet Á. Möller. Hafliði Hjartarson.
Geðhjálp: SPOEX - Samtök psoriasis- og
Ingólfur H. Ingólfsson. exemsjúklinga: Valgerður Ósk Auðunsdóttir.
Gigtarfélag fslands: Emil Thóroddsen. Tourette- samtökin á íslandi:
Elísabet K. Magnúsdóttir
Heyrnarhjálp: Guðjón Ingvi Stefánsson. Umsjónarfélag einhverfra: Ástrós Sverrisdóttir
LAUF - Landssamtök áhugafólks um flogaveiki: Jón S. Guðnason
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
49