Íþróttablaðið - 01.01.1979, Blaðsíða 11
Grundvallarreglur
ÍSÍ um hegðun íþrótta
fólks í keppnisferðum
1. gr.
íþróttamenn, fararstjórn og
þjálfarar skulu ávallt vera til
fyrirmyndar um framkomu alla,
bindindissemi, hæversku og
reglusemi á leikvangi og utan.
2. gr.
Skylt skal fararstjóra að halda
dagbók um ferðina og skila
skýrslu til hlutaðeiganda eigi síð-
ar en 30 dögum eftir heimkomu.
3. gr.
Æðsta vald meðan á ferð
stendur hafa fararstjórar, og
skulu íþróttamenn og þjálfarar
hlýða þeim í einu og öllu.
íþróttamenn og aðrir flokksmenn
skulu einnig hlýða skipunum
þjálfara og annarra þeirra, er
fararstjóri kann að fá vald.
4. gr.
Fararstjórar skulu hafa vak-
andi auga með hegðun flokks-
manna og gera þeim aðvart, ef
þeir telja einhverju í framkomu
þeirra ábótavant og er þeim
heimilt að útiloka keppendur úr
keppni eða sýningu og jafnvel
senda þá heim, ef um verulegt
brot er að ræða, að dómi farar-
stjóra. Þegar um verulegt brot er
að ræða, skulu fararstjórar kæra
hina brotlegu til hlutaðeigandi
dómstóls til dómsúrskurðar.
5. gr.
Keppendum er heimilt, þegar
heim er komið, að kæra að þeirra
dómi óviðeigandi framferði far-
arstjóra til viðkomandi dómstóls.
6. gr.
Óskert skal heimild þess aðila,
sem að förinni stendur og ann-
arra, sem rétt kunna að hafa til,
samkvæmt Dóms- og refsi-
ákvæðum Í.S.Í., til refsiaðgerða
eftir heimkomu flokks, þótt far-
arstjóri hafi ekki notað sér heim-
ild 4. gr.
Þannig samþykkt af Sam-
bandsráði Í.Í.S.Í., 23.—24. októ-
ber 1952.
Vonogvissa
Miði í happdrætti SÍBS
gefur góða von um vinning.
Ahersla er lögð á marga
vinninga sem koma sér vel.
Þó eru hæstu vinningar
2 milljónir
og dregið er um milljón
mánaðarlega.
Hver seldur miði gefur
endurhæfingarstarfinu sem
unnið er á vegum SÍBS
aukinn styrk.
Sá sem á miða í happdrætti
SÍBS á sjálfur vinningsvon
og gefur einnig öðrum vonir
um bjartari framtfð.
Það kostar aðeins 800 kr.
á mánuði að gera eitthvað
í því að auka slíkar vonir.
Vinningsvon og vissa um
að verða að liði.
Happdrætti
SÍBS
11