Íþróttablaðið - 01.01.1979, Blaðsíða 20
Utlendingarnir hafa
mjög jákvæð áhrif
— Það er ekkert efa-
mál, að keppnistímabilið
1978 er litríkasta og
skemmtilegasta tímabilið
sem ég hef upplifað í
körfuknattleiknum til
þessa, og hef ég þó verið
viðloðandi þessa íþrótta-
grein í nærfellt 20 ár,
sagði Jón Sigurðsson,
KR-ingur sem nú var
valinn „Körfuknattleiks-
maður ársins“. Er þetta í
annað sinn sem Jón hlýt-
ur þann titil, en hann
hefur um árabil verið í
fremstu röð íslenzkra
körfuknattleiksmanna,
og náð mikilli hæfni í
íþróttinni. Átti Jón ekki
lítinn þátt í því að lið
hans, KR — hreppti ís-
landsmeistaratitilinn á
árinu, og ógleymd er
einnig frammistaða hans
í landsleikjum þeim sem
íslendingar léku á árinu,
sérstaklega þó í hinni
svonefndu Polar Cup
keppni, en þar kom
glögglega fram að Jón
stendur beztu körfu-
knattleiksmönnum
Norðurlanda fyllilega á
sporði.
— Það sem var hvað
skemmtilegast við keppnis-
tímabilið var hversu áhorf-
endum fjölgaði mikið og hvað
þeir tóku mikinn þátt í leikj-
unum. Það er niðurdrepandi
fyrir íþróttamenn, ef enginn
kemur til þess að horfa á leiki
þeirra, og lengi vel var það
þannig að áhorfendur að
körfuknattleiksleikjum voru
fremur fáir. Nú hefur orðið
gjörbreyting á og stemning í
flestum leikjanna er mjög
skemmtileg. Áhorfendur
kunna vel að meta þær fram-
farir sem orðið hafa í íþrótt-
inni og það sem vel er gert á
vellinum, og við, íþrótta-
mennirnir, kunnum líka vel að
meta nærveru þeirra.
Sem kunnugt er hefur verið
tekið upp nýtt keppnisfyrir-
komulag í körfuknattleiknum,
með stofnun úrvalsdeildar,
þar sem leikin er fjórföld um-
ferð. Jón var spurður að því
hvort hann teldi að þetta hefði
haft jákvæð áhrif.
— Það er tvímælalaust,
svaraði hann. — Fyrirfram
var ég reyndar svolítið efins
um ágæti þessa fyrirkomulags.
Óttaðist að leiði kæmi fram
hjá mönnum, þegar komið
væri að því að leika við sama
Jón
Sigurðsson
Jón skorar í landsleik
20