Íþróttablaðið - 01.01.1979, Page 56
kvarða áður en þeim er sköpuð
viðunandi aðstaða til að stunda
íþrótt sína.
2. Mikill skortur er á mennt-
uðum þjálfurum og félagsleið-
togum. Þar er um að ræða margar
samverkandi ástæður eins og t.d.
fáránlegt hirðuleysi um menntun
íþróttakennara og þá á ég við
þann hörmulega aðbúnað, sem
íþróttakennaraskóli íslands býr
við.
Einnig hafa sérsamböndin all
flest, vanrækt að sinna sínum
eigin fræðslumálum þó örlítið sé
farið að rofa til með hinu nýja
fræðsluskipulagi fyrir þjálfara,
sem fræðslunefnd Í.S.Í. hefur lagt
fram.
3. Mikil vöntun er á því, að
leitað sé markvisst að efnilegum
íþróttamönnum og þeim veitt
þjálfun, er miðast að því að þeir
verði afreksíþróttamenn framtíð-
arinnar.
4. í fjórða lagi skortir mikið á
að íslenskir íþróttamenn njóti
nægilegrar aðstoðar heilbrigðis-
stéttanna. Þar þarf að vinna mik-
ið starf til úrbóta. Er það mín
skoðun að meðal heilbrigðisstétta
sé fjöldinn allur af fólki, sem vill
leggja okkur lið. Þessi mál þarf
fyrst og fremst að skipuleggja
betur og eru bundnar miklar
vonir við nýskipað læknaráð
Í.S.Í., sem verið er að koma á fót,
að frumkvæði framkvæmda-
stjórnar Í.S.Í.
5. Í fimmta lagi eruþað svo
skilningsríkir vinnuveitendur
íþróttamanna. Sem betur fer eru
það margir vinnuveitendur, sem
hafa sýnt því góðan skilning að
veita mönnum leyfi á launum til
að keppa fyrir land og þjóð. En
því er ekki að neita, að margir
íþróttamenn hafa átt og eiga erf-
itt með að fá sig lausa úr vinnu til
að taka þátt í kenpni.
Án þessa skilnings getum við
ekki vænst þess að íþróttamenn
geti tekið þátt í öllum þeim mót-
um, sem eru nauðsyn ef stefnt er
að hámarks afrekum.
Hér að framan hef ég nefnt
ýmis atriði, sem ég álít forsendur
afreksíþrótta í orðsins fyllstu
merkingu. Þetta er langur listi og
viðamikill og því ekki óeðlilegt
þó spurt sé hvort afreksíþróttir
séu yfirleitt nauðsynlegar og
hvort það sé þess virði að efla af-
reksíþróttir.
Hafa afreksíþróttir nokkurt
sérstakt gildi?
Því vil ég svara á þann veg, að
án afreksíþrótta væri allt starfið
innan íþróttahreyfingarinnar
miklu erfiðara og árangurs-
minna. Afreksíþróttir eru okkar
besta og það, sem við öll lítum
upp til. Að setja sér hátt markmið
að keppa að í íþróttum er ekkert
öðruvísi en há markmið á öðrum
vettvangi í lífinu.
Sumir einstaklingar hafa meiri
Framhald á bls. 66
FRAMLEIÐUM:
Bílskúrshurðir Furuglugga
Útihurðir Álglugga
Svalahurðir Hverfiglugga
Rennihurðir Hjaraglugga
Hringhurðir Útveggjaelement
Álhurðir Staðlað gluggaefni
Álhandrið Glerfalslista
y^^///////////////////////////////////////M
GISSUR SÍMONARSON SÍÐUMÚLA REYKJAVlK SlMI 3 8 2 20
56