Íþróttablaðið - 01.01.1979, Qupperneq 12
„ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS"
íþróttablaðið gekkst
nú fyrir vali „íþrótta-
manns ársins“, í þeim
íþróttagreinum sem aðild
eiga að íþróttasambandi
íslands, í sjötta sinn. Það
var árið 1973, sem slík
verðlaunaveiting fór fram
í fyrsta sinn, og hefur hún
síðan verið árviss við-
burður í íþróttastarfinu.
Við val á því íþróttafólki
sem heiðrað er hverju
sinni hefur jafnan verið
hafður sá háttur að leitað
hefur verið til sérsam-
banda ÍSÍ, og óskað eftir
tilnefningu þeirra. Hefur
samstarf blaðsins við sér-
samböndin jafnan verið
mjög gott og þau lýst
miklum áhuga sínum á
þessari verðlaunaveit-
ingu. Sérsambönd innan
ÍSÍ eru nú fimmtán tals-
ins, auk þess sem
íþróttasamband fatlaðra
starfar í beinum tengslum
við ÍSÍ, og fór einnig fram
tilnefning af hálfu þess.
Þrír þeirra íþróttamanna
sem hlutu titil nú, höfðu hlotið
hann áður; körfuknattleiks-
maðurinn Jón Sigurðsson,
sem valinn var „körfuknatt-
leiksmaður ársins 1976“,
Berglind Pétursdóttir, sem
valin var „fimleikamaður árs-
ins“ í fyrra og Þórunn Al-
freðsdóttir, sundkona, sem var
nú tilnefnd „sundmaður árs-
ins“ í fjórða sinn, sem er
glæsilegt afrek hjá svo ungri
stúlku.
Allt það íþróttafólk sem
vann nú til verðlauna íþrótta-
blaðsins vann góð afrek á síð-
asta ári, og skaraði á einn eða
annan hátt framúr í íþrótta-
grein sinni. Vill íþróttablaðið
hér með nota tækifærið til
þess að óska því til hamingju
með útnefninguna, og árna
því heilla og góðra afreka á
nýbyrjuðu ári.
Frá því að íþróttablaðið tók
upp verðlaunaveitingar sínar,
hafa eftirtalin verið tilnefnd
„íþróttamaður ársins“ í við-
komandi greinum:
Badmintonmaður ársins:
1973: Haraldur Kornelíusson,
TBR
1974: Lovísa Sigurðardóttir,
TBR
1975: Haraldur Komelíusson,
TBR
1976: Sigurður Haraldsson,
TBR
1977: Sigurður Haraldsson,
TBR
1978: Jóhann Kjartansson,
TBR
Pétur J. Eiríksson, aðstoðarframkvæmdastjóri Frjáls framtaks h.f. og
íþróttafréttamennirnir Þórarinn Ragnarsson og Hermann Gunnarsson
gæða sér á gómsætum ostum sem boðið var upp á.
Verðlaun íþróttablaðsins voru
12