Íþróttablaðið - 01.01.1979, Blaðsíða 33
Norðmenn og Dani. En þetta
er ekki eins auðvelt viðfangs
og virðist í fljótu bragði.
Júdósambandið er fjárvana,
og það kostar auðvitað gífur-
lega peninga að efna til slíkra
móta.
— Hvaða kostir prýða
góðan júdómann?
— Góður júdómaður þarf
að búa yfir snerpu, lipurð,
kröftum og tækni. Ég held að
allir þessir þættir verði að vera
samvirkandi, en þó hefur
tæknin í flestum tilfellum úr-
slitaáhrifin. Ég get nefnt sem
dæmi að Finninn sem ég
keppti við til úrslita í opna
flokknum á Norðurlandamót-
inu var mun minni en ég, og
þótt ég segi sjálfur frá, þá var
hann ekki nærri því eins
sterkur. En hann hafði slíka
tækni að hann gat dustað
mann til að vild, enda búinn
að æfa vel og hafði m.a. dvalið
í Japan við æfingar. Japanski
þjálfarinn hjá okkur hefur
mikla tækni, og það gæti eng-
inn íslenzkur júdómaður
staðist honum snúning, hversu
stór og sterkur sem hann ann-
ars væri.
— Hver eru framtíðar-
markmið þín í júdóíþróttinni?
— Ég el þann draum í
brjósti að komast á Olympíu-
leikana í Moskvu 1980. Það
verður þó engan veginn auð-
velt. Til þess að eiga erindi
þangað þarf maður að æfa
mjög vel, og ekki nóg með
það, — ég þyrfti líka að kom-
ast til æfinga erlendis. Á því
hef ég mikinn áhuga, en veit
ekki hvort af því getur orðið.
Það kemur margt til, m.a.
námið.
Bjarni Friðriksson, ,,Júdómað-
ur árins 1978“. Frami hans í
íþróttinni hefur verið með
skjótum hætti.
33