Íþróttablaðið - 01.01.1979, Blaðsíða 39
Þaö má aldrei slaka á
ef árangur á að nást
Þótt Þórunn Alfreðsdóttir
sé aðeins 18 ára að aldri, hlaut
hún nú útnefningu sem
„Sundmaður ársins“ í fjórða
sinn. Sú útnefning kom ekki á
óvart, þar sem Þórunn bar
höfuð og herðar yfir íslenzkt
sundfólk á árinu og náði mjög
góðum árangri. Hún vann t.d.
til silfurverðlauna í flugsundi í
átta-landa sundlandskeppn-
inni sem fram fór í ísrael s.l.
sumar, en í þeirri keppni vann
íslenzkt sundfólk aðeins til
tveggja verðlauna, Þórunn og
svo bróðir hennar Hermann,
sem hreppti bronsverðlaun í
100 metra bringusundi. ís-
landsmet setti Þórunn fjöl-
mörg á árinu, og tala þeirra
íslandsmeta sem hún hefur
sett á keppnisferli sínum eru
sennilega fleiri en tölu verður
á komið í fljótu bragði.
— Ég er búin að stunda
sund í átta ár, sagði Þórunn í
viðtali við íþróttablaðið. —
Kveikjan að því að ég fór að
æfa, var sú að bræður mínir,
þeir Hermann og Axel, fóru
að æfa sund, og fljótlega kom
að því að ég fór að fara með
þeim. Eftir að hafa æft í
nokkra mánuði tók ég þátt í
mínu fyrsta móti, þá tæplega
11 ára. Síðan hef ég æft og
keppt, þótt oft hafi komið þær
stundir að ég hef fengið leið á
íþróttinni og ætlað mér að
hætta.
Þórunn var spurð um
ástæðu þess að svo margt
sundfólk,sem þykir mjög
efnilegt hættir keppni og æf-
ingu, löngu áður en það hefur
„komizt á toppinn“.
Þórunn
Alfreðs-
dóttir
39