Orð og tunga - 2020, Side 41
Margrét Jónsdóttir: epík, keramík og klassík 29
en samhljóða samnöfn (sbr. BÍN).15 Orðið tölvugrafík er samkvæmt
eðli máls ekki gamalt. Í Risamálheildinni eru fimmtán dæmi um end
ing una ur, eitt um ar. Á Tímarit.is eru öll eignarfallsdæmin með ur
endingu nema eitt, þá er vísað til fyrirtækis. Í BÍN og í ÍO er eignar
fallsendingin ur.
Öll orðin eru á BÍN en í ÍO aðeins grafík og rómantík eins og fram
hefur komið; eignarfallsendingin er alltaf ur. Þá endingu er nærri
alltaf að finna í öllum heimildum um orðin rómantík, kómík og grafík.
Orðið traffík hefur sérstöðu. Nánast allar heimildir um eignarfallið
hafa fundist með liðsinni Google og þar virðist arendingin hafa yfir
höndina. Erfitt er að fullyrða nokkuð um ástæður þess. Þó mætti
nefna að hugsanlega gæti endingin ar verið á leið með að verða meira
ríkjandi eignarfallsform umrædds orðahóps. Það væri í raun eðlilegt
enda langalgengasta eignarfallsending sterkbeygðra kvenkynsorða
(sbr. Ástu Svavarsdóttur 1993).
Sé litið til íkorðanna sem heildarhóps hefur orðið traffík nokkra
merkingarlega sérstöðu þar sem það vísar ekki til neins konar fræða
eða fræðasviðs, eins og t.d. rómantík.
5 ík-orð í samsettum og afleiddum orðum
Það vekur athygli að samsett orð með íkorðum að fyrri lið eru sjald
gæf og þá nánast alltaf í stofnsamsetningu.16 Orðin antík, grafík, kermík,
mósaík og músík eru dæmi þar um, sbr. orðin antíkhúsgögn, grafík
mynd, keramíkvasi, mósaíkmynd og músíktilraunir. Einnig höfum við
orðin taktíkþjálfun og tekníkþjálfun enda þótt orðin taktík og tekník sem
þó eru ekki jafn rótgróin og fyrrnefnd orð. Orðið eróbík gengur vel í
sam setn ingum, sbr. eróbíkæfingar og eróbíkþjálfari; líka eróbikk (þá svo
ritað), sbr. eróbikkkennari og eróbikkþjálfun. Sé vikið að lýsingarorðum
þá geta menn verið músíkelskir og músíkfróðir en líka músíkóðir. Það
15 Fyrirtækið Vík Prjónsdóttir er/var vel þekkt. Í vísunum til þess er eignarfallið af
Vík nánast alltaf Víkur. Þó eru dæmi um Víkar (Rmh). Sú ending kemur ekki á óvart
enda er nafnið á fyrirtækinu persónugert og greint frá hinni venjulegu beygingu.
Um tengsl beygingar og mismunandi hlutverka orða, sjá t.d. umræðu hjá Haraldi
Bernharðssyni (2004) en líka Margréti Jónsdóttur (2011:131 o.v.).
16 Leit í Den Danske Ordbog leiðir í ljós að samsvarandi samsett orð eru heldur
ekki mörg í dönsku. Til eru orð eins og aerobikcenter, antiksamling, grafikprogram,
keramikskål, kritikløs, politikområde, taktikmøde og teknikfag; í hverju tilviki er við
kom andi orð eitt örfárra eða stakt. Orð með musik í fyrri lið eru á hinn bóginn
fjöl mörg. Ekkert dæmi fannst með orðinu romantik.
tunga_22.indb 29 22.06.2020 14:03:50