Íþróttablaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 56
Kristín Gísladóttir
— Mér þykja skemmtileg-
astar æfingamar á jafnvægis-
slánni og gólfæfingamar,
sagði Kristín. Kannski er ég
öllu betri á slánni, ef allt
gengur vel. Og ég hef oftast
verið heppin og allt gengið
vel.
Kristín tók þátt í fyrstu
sýningu sinni 10 ára 1976 og
keppti fyrst 1978. Hún kveðst
lítið muna eftir sér á fyrstu
sýningunni og þegar hún gekk
fyrst til keppni, hvarflaði
hugur hennar ekki að verð-
launasæti. En í þriðja sæti
hafnaði hún og þetta var á
Unglingameistaramóti.
— Ég tók þátt í íslandsmóti
í fyrsta sinn 1981. Þar hlaut ég
gullverðlaun í gólfæfingum og
silfurverðlaun í öðrum grein-
um og varð í 2. sæti samanlagt.
Á Unglingamótinu 1981 hlaut
ég einnig einhverja gullpen-
inga og þeir eru upp á vegg hjá
mér ásamt öðrum verðlauna-
peningum.
— Hefurðu verið í öðrum
íþróttum en fimleikum?
— Nei, ekki öðrum íþrótt-
um. En á timabili var ég bæði í
fimleikum og ballett. Það
reyndist of mikið fyrir mig og
ég hætti í ballettinum, en
Fimleikamaður ársins
1973: Þórir Kjartansson, Á
1974: Sigurður T. Sigurðsson, KR
1975: Sigurður T. Sigurðsson, KR
1976: Sigurður T. Sigurðsson, KR
1977: Berglind Pétursd., Gerplu
1978: Berglind Pétursd., Gerplu
1979: Berglind Pétursd., Gerplu
1980: Áslaug Óskarsdóttir, Gerplu
1981: Brynh. Skarphéðinsd., Björk
1982: Kristín Gísladóttir, Gerplu
hafði mikið gagn af honum
þann stutta tíma sem ég iðkaði
hann.
— Við æfum fimm sinnum í
viku og tíminn og skólinn
leyfir ekki meira. Þjálfari
okkar er pólskur, Valdimar
Czizmovski, mjög góður
þjálfari. Hann stjómar allri
þjálfun hjá Gerplu en að-
stoðarþjálfarar eru margir,
enda eru salir fullir á hverri
æfingu, áhuginn mikill og
stöðugt fleiri sem vilja leggja
stund á fimleika sem keppnis-
grein. Fimleikaíþróttin er oft
erfið og alltaf mjög krefjandi.
Stundum er ég afar þreytt, en
svo eru margar góðar og
ánægjulegar stundir, sagði
Kristín.
— Og hvað er framundan á
nýbyrjuðu ári?
— Nú, að æfa og keppa og
sjá til hve langt maður nær.
Og svo er það skólinn, sagði
Kristín, „fimleikamaður árs-
ins“, sem er nemi á 1. ári í
fjölbrautaskólanum í Garða-
bæ.
Tvær bjartar hlíðar
á hverjum míða
Annars vegar: - góö von þín um veglegan vinning því nær 2/3
hlutar veltunnar fara í vinninaa. oq meira en fiórði hver miöi__
---hiýtur vinning.-------------------------------------
Hin hliðin, jafnvel enn bjartari: Hver seldur miði á_
---þátt í þvUa&vonir annarra rætast. Þeirra hundrnða sem_
þurfa á endurhæfingu og þjálfunarstarfi á Reykja-
---lundi að halda.-----------
Auk þeirra 70 öryrkja sem daglega
vipnu sína í nýjum húsakynnum IVI
Það eru tvær góðar hliðar á þessu
^lappdrætti SÍBS —
56