Íþróttablaðið - 01.06.1991, Side 86
FÉLAGASKIPTI
árangur Víkings síðastliðið sumar,
sem var ekki eins og við mátti búast
en svipaður fjöldi aðkomumanna var
í Víkingi í fyrra og núna, þá náðu
Eyjamenn mun betri árangri. Geta
menn síðan dregið sínar eigin
ályktaniraf árangri þessara liða. Aftur
á móti verður ekki litið framhjá þeirri
staðreynd að titilhafar síðastliðins
keppnistímabils höfðu fengið marga
snjalla leikmenn í sínar raðir úr öðr-
um liðum.
Einhvers staðar stendur skrifað að
aðfortíð skuli hyggja ef frumlega eigi
að byggja. Ef fram heldur sem horfir
má mönnum Ijóst vera að markviss
uppbygging í yngri flokkum mun
ekki skila sér í eins ríkum mæli til
meistaraflokks liðanna og áður hefur
verið. Segja má að þróunin hafi færst
æ meir í þá átt að leikmenn skipti um
lið á meistaraflokks aldri. Áður fyrr
tilheyrði það undantekningum ef
menn héldu ekki tryggð við sín upp-
runalegu félög - en nú fer hið and-
stæða að verða algengara. Undan-
tekningin er sem sagt að verða sú að
menn haldi tryggð við sama félagið
allan sinn knattspyrnuferil. Er þetta
skiljanlegt með menn sem fara í at-
vinnumennsku, en sú þróun, sem á
sér stað í leikmannaskiptum hér á
landi, mun vafalítið leiða til þess,
þegar fram líða stundir, að stóru fé-
lögin verða stærri og sterkari á kostn-
að þeirra sem minni eru.
Á eftirfarandi lista má sjá nöfn þeirra
leikmanna sem skipt hafa um félög,
og nöfn félaganna, sem þeir leika nú
með, en margir hverjir eru í eldlín-
unni í 1. deild um þessar mundir.
Fram:
Baldur Bjarnason, Birkir Kristins-
son, Jón Erling Ragnarsson, Kristján
Jónsson, Pétur Arnþórsson og Þor-
valdur Örlygsson.
KR:
Arnar Arnarsson, Atli Eðvaldsson,
Bjarki Pétursson, Björn Rafnsson,
Gunnar Oddsson, Ólafur Gottskálks-
son, Pétur Pétursson, Rafn Rafnsson,
Ragnar Margeirsson og Sigurður
Björgvinsson.
ÍBV:
Arnljótur Davfðsson.
Valur:
Bjarni Sigurðsson, Davíð Garðars-
son, Snævar Hreinsson, Steinar
Adolfsson og Örn Torfason.
Stjarnan:
Bjarni Jónsson, Egill Örn Einars-
son, Jón Otti Jónsson, Lárus
Guðmundsson, Sveinbjörn Hákon-
arson, Valgeir Baldursson og Zoran
Coguric.
FH:
Andri Marteinsson, Björn Axels-
son, Björn Jónsson, Hallsteinn Arnar-
son, Guðmundur Valur Sigurðsson,
Izudin Dervic, Stefán Arnarson og
Zoran Jevitc.
Víkingur:
Atli Einarsson, Atli Helgason,
Baldvin Guðmundsson, Guðmundur
Hreiðarsson, Guðmundur I. Magnús-
son, Gunnar Guðmundsson, Helgi
Bjarnason, Helgi Björgvinsson, Janez
Zilnik, Marteinn Guðgeirsson,
Ólafur Árnason, Tomislav Bosnjak,
Trausti Ómarsson og Þorsteinn Þor-
steinsson.
KA:
Einar Einarsson, Gauti Laxdal,
Hafsteinn Jakobsson, Haukur Braga-
son, Pavel Vandas, Páll Gíslason,
Sverrir Sverrisson, Þórarinn V. Árna-
son og Örn Viðar Arnarson.
Vfðir:
Arnmundur Sigurðsson, Jacek
Grybos, Janusz Jakubib, Steinar Ingi-
mundarson og Sævar Leifsson.
FÉLÖG SEM MISST
HAFA LEIKMENN:
Fram 8 leikmenn Einherji 1 leikmann
Víkingur 7 leikmenn ÍBV 1 leikmann
Þróttur 5 leikmenn Fylkir 1 leikmann
Keflavík 5 leikmenn Selfoss 1 leikmann
KR 4 leikmenn ÍR 1 leikmann
Leiftur 3 leikmenn Víkingur Ólafsvík 1 leikmann
ÍA 3 leikmenn Völsungur 1 leikmann
FH 2 leikmenn Skallagrímur 1 leikmann
KA 2 leikmenn ÍBÍ1 leikmann
Valur 2 leikmenn UBK 1 leikmann
Snæfell 2 leikmenn Tindastóll 1 leikmann
Haukar 2 leikmenn Þróttur N 1 leikmann
Þór Ak. 2 leikmenn 8 erlendir leikmenn hafa komið
ÍK 2 leikmenn úr erlendum liðum
Reynir Á. 2 leikmenn
UBK:
Gústaf Ómarsson, Hilmar Sig-
hvatsson, Pavol Kretovic, Steindór
Elíson, Valur Valsson, Willum Þ.
Þórsson og Þorvaldur Jónsson.
f mnxgm ertu med skalla?
•*** HÁRVANDAMÁL?
Aðrir sætta sig ekki við það!
Af hverju skyldir þú gera það?
■ Fáöu aftur þitt eigið hár sem vex eðlilega
■ sársaukalaus meðferð
■ meðferðin er stutt (1 dagur)
■ skv. ströngustu kröfum
bandariskra og þýskra staðia
■ framkvæmd undir eftirliti og stjórn
sérmenntaðra lækna
Upplýsingar hjá
EUROCLINIC LTD.
Ráögjafarstoð:
Neðstuströð 8
Pósthólf 111 202 Kópavogi
Sími 91 -641 923 Kvöldsími 91 -642319
86