Íþróttablaðið - 01.11.1991, Page 27
íslandsmeistarar Keflavíkur 1973. Aftari röð frá vinstri: Joe Hooley, þjálfari,
Einar Gunnarsson, Lúðvík Gunnarsson, Guðni Kjartansson, Gunnar Jónsson,
Jón Sveinsson, Þorsteinn Ólafsson, Ólafur Júlíusson, Stefán Jónsson og Jón
Ólafur Jónsson. Fremri röð frá vinstri: Karl Hermannsson, Grétar Magnús-
son, Gísli Torfason, Ástráður Gunnarsson, Albert Hjálmarsson, Steinar Jó-
hannsson, Hjörtur Zakaríasson, Vilhjálmur Ketilsson og Friðrik Ragnarsson.
GULLALDARLIÐIÐ
Frá árinu 1964 til 1975 átti ÍBKá að skipa einu allra sterkasta knattspyrnuliði
landsinsogvar liðið íslandsmeistari ífjögur skipti átíu áratímabili. Með liðinu
léku þá nokkriraf þekktustu knattspyrnumönnum landsinsfyrr ogsíðarogalls
náðu 17 leikmenn ÍBK að leika með íslenska landsliðinu á þessum árum.
Myndin hér að ofan er af íslandsmeisturum ÍBK árið 1973 og íþróttblaðið fékk
Magnús Haraldsson, stjórnarmann ÍBK frá velgengnisárunum, til þess að segja
sér hvað „gömlu" knattspyrnustjörnur ÍBK eru að gera f dag. Talan í sviganum
segir til um hversu oft viðkomandi leikmaður varð íslandsmeistari í meistara-
flokki.
EINAR GUNNARSSON (3) — starfsmaður í Fríhöfninni á Keflavíkurflug-
velli.
LÚÐVÍK GUNNARSSON (1) — pípulagningaverktaki í Keflavík.
GUÐNI KJARTANSSON (4) — íþróttakennari við Fjölbrautaskóla Suður-
nesja.
GUNNAR JÓNSSON (2) — kennari við Myllubakkaskóla í Keflavík.
JÓN SVEINSSON (1) — býr í Svíþjóð og starfar sem sölumaður.
ÞORSTEINN ÓLAFSSON (3) — sölustjóri hjá Efnaverksmiðjunni Sjöfn í
Reykjavík.
ÓLAFUR JÚLÍUSSON (2) - málaraverktaki í Keflavík.
STEFÁN JÓNSSON (1) — prentari í prentsmiðjunni Grágás.
JÓN ÓLAFUR JÓNSSON (4) — fulltrúi í íslandsbanka í Keflavík.
KARL HERMANNSSON (4) — aðstoðaryfirlögregluþjónn í Keflavík.
GRÉTAR MAGNÚSSON (4) — rafverktaki á Keflavíkurflugvelli.
GÍSLI TORFASON (2) — kennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
ÁSTRÁÐUR GUNNARSSON (3) — fulltrúi hjá Sparisjóðnum í Keflavík
ALBERT HJÁLMARSSON (2) — pípulagningarmeistari á Keflavíkurflugvelli.
STEINAR JÓHANNSSON (3) - kennari við Myllubakkaskóla í Keflavík.
HJÖRTUR ZAKARÍASSON (3) - bæjarritari í Keflavík.
VILHJÁLMUR KETILSSON (3) — skólastjóri Myllubakkaskóla í Keflavík.
FRIÐRIK RAGNARSSON (3) — býríManchesteráEnglandiogermálningar-
verktaki.
SÖGUR AF HOOLEY
Englendingurinn Joe Hooley, sem
þjálfaði ÍBK árið 1973, er án efa einn
litríkasti þjálfari sem hefur starfað hér
á landi. Arið 1984 kom út blað í
Keflavík sem hét Meistarablað ÍBKen
í þvferu sögur af Hooley rifjaður upp.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ gluggaði í blaðið
og birtir nokkrar sögur.
ÉG VIL GOTT LIÐ
Einhverju sinni var ákveðið að
hvíla grasvöllinn í Keflavík sem var
orðinn slæmur og láta æfingar Kefla-
vfkurliðsins fara fram á möl. Hooley
var afar óhress með það og sagði:
„Þið viljið eiga fallegan og góðan
grasvöll en lélegt lið. Eg miklu frekar
hafa völlinn lélegan og eiga gott lið."
FÓR í FÚSSI
Þegar Keflavík lék sinn síðasta leik
árið 1973 gegn Breiðabliki og gerði
jafntefli, 4:4, varð Hooley trítilóður.
Liðið var þegar orðið íslandsmeistari
og leikmennirnirtóku það létt í leikn-
um gegn Blikunum. „Þetta er ekki
það sem ég er búinn að vera að
kenna strákunum," sagði hann þegar
hann rauk í burtu af vellinum og
heim til sín. Hann mætti síðan ekki í
lokahóf liðsins um kvöldið þótt menn
færu heim til hans og bæðu hann um
að koma. Þegar hann var búinn að
bíta eitthvað í sig gaf hann ekkert
eftir. Hann vildi ekkert með leik-
menn hafa sem höfðu ekki áhuga á
því að leika góða knattspyrnu. Það
var hans heitasta ósk að vinna stór-
sigur á Breiðabliki í síðasta leiknum.
HOOLEY ERFIÐUR
Þótt Hooley hafi þótt snjall þjálfari
var erfitt að lynda við hann. Hann
hékk ýmist hjá Hafsteini í Sundhöll-
inni eða Magnús í Sportvík og var
aðeins heima hjá sér yfir hánóttina.
Hann var stöðugt að hóta því að fara
og sagðist oft vera með tilboð frá hin-
um og þessum liðum úti í heimi. Þá
var hann alltaf að óska eftir því að fá
farseðil í hendurnar. Forráðamenn
ÍBK sögðust varla þora að bregða sér
til Reykjavíkur því þeir bjuggust allt
eins við því að Hooley flygi af landi
brott á meðan.
27