Íþróttablaðið - 01.11.1991, Side 45
MEÐ VÖÐVA í LAGI
Margrét hefur æft vaxtarrækt síð-
ustu 5 árin og hefur orðið íslands-
meistari þrisvar sinnum, 1988, 1989
og nú síðast í vor á Hótel íslandi. Við
spurðum Margréti, hverju titillinn
hefði breytt fyrir hana.
„í sjálfu sér ekki miklu, en mótið
var mjög skemmtilegt og sigurinn er
mér auðvitað mikils virði. Nú er að
halda áfram að æfa af fullum krafti og
undirbúa sig fyrir næsta Islandsmót
sem verður sennilega haldið í apríl á
næsta ári."
Margrét hefur nú tækifæri til að
sameina áhugamál og vinnu því að
frá því í september hefur hún starfað
hjá Líkamsræktarstöð Ármanns sem
leiðbeinandi og líkar það mjög vel.
Hún hefur aldrei farið út fyrir
landsteinana að keppa en hún tók
þátt í Norðurlandamóti sem var hald-
ið hér á landi 1988. Margrét sagði
það hafa verið dýrmæta reynslu að
fylgjast með þeim bestu á Norður-
löndunum og að mæta þeim í
keppni. Hún hefur tekið stefnuna á
að reyna að komast inn á mót fyrir
áhugamenn í vaxtarrækt sem haldin
eru á Englandi á hverju ári. „Þá hef ég
trú áað maðurgeti bætt sigenn meira
meðaukinni reynslu," sagði Margrét.
— Er mikill áhugi hjá kvenfólki á
íslandi á vaxtarækt?
„Alveg frábært að lyfjaprófa þátt-
takendur," segir Margrét.
„Nei, hann er alltof lítill. Sem
dæmi um það er að á síðasta Islands-
móti voru keppendur aðeins fjórir í
kvennaflokki og ég sé ekki fram á að
þær verði fleiri næst. Alltaf rétt eftir
mót byrja nokkrar stelpur að æfa, en
þegar þær sjá hversu erfið íþrótt þetta
er gefast flestar þeirra upp. Kven-
MARGRET
SIGURÐARDÓTTIR
ÍSLANDSMEISTARI í
VAXTARRÆKT
Texti: Atli Hilmarsson
menn í vaxtarrækt þurfa t.d. að æfa
meira heldur en karlmenn."
— En er ekki alltaf mikið af fólki
sem fylgist með íslandsmótinu?
„Jú, en flestir koma nú aðeinstil að
hneykslast og finnst þetta allt mjög
ógeðslegt. Það skilar sér a.m.k. ekki
hjá konunum í fleiri þáttakendum í
íþróttinni."
— Nú hefurveriðákveðiðaðlyfja-
prófa alla þáttakendur á næsta Is-
landsmóti, breytir það einhverju?
„Mér finnst það alveg frábært að
þessi próf muni fara fram, þvíað þáer
hægt að hreinsa sig af öllu tali um
lyfjamisnotkun. Allir sem skara fram
úr fá þær ásakanir á sig. Þaðer einnig
mjög gott að venjast þessu ef maður
fer erlendis að keppa. Þar er þetta al Is
staðar gert."
45