Íþróttablaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 48
Stoltur faðir með tvíburana Ágúst og
Bjarka.
Birgir Sigurðsson, hinn 26 ára
gamli línumaður Víkings og lands-
liðsins, er án efa sá leikmaður sem
besta leiki hefur sýnt það sem af er
keppnistímabilinu. Hann átti mikinn
þátt í því að Víkingur komst áfram í
Evrópukeppninni þar sem Víkingur
lék við Stavanger. Samvinna hans og
Sigurðar Sveinssonar í landsleikjun-
um við Tékka á dögunum var frábær,
svo og fyrstu leikir hans í deildinni
með Víkingi.
— Var undirbúningurinn fyrir
þetta tímabil eitthvað öðruvísi en
áður?
Texti: Atli Hilmarsson
Myndir: Kristján Einarsson
BIRGIR
SIGURÐSSON,
LANDSLIÐSMAÐUR
í HANDKNATTLEIK
HEFUR í NÓGU AÐ
SNÚAST
Sjö íheimili! Birgir ásamt Hildi, eiginkonu sinni, Ingibjörgu 8 ára, Lofti 4 ára,
Valgerði 2 ára og þeim „nýju" — Ágústi og Bjarka.
Fimm barna
faðir
„Já, í fyrsta sinn í mörg ár tók ég
mér frí frá handbolta í 2 mánuði í
sumar. Það held ég að hafi gert mér
mjög gott. Æfingarnar sjálfar eru
svipaðar og í fyrra til dæmis."
4. ágúst síðastliðinn líður Birgi
væntanlega aldrei úrminni. Þáfædd-
ust honum og konu hans, Hildi Lofts-
dóttur, tvíburarnir Ágúst og Bjarki.
Fyrir áttu þau Valgerði sem er 2 ára,
Loft sem er 4 ára og svo átti Hildur
Ingibjörgu, sem er 8 ára, áður en hún
kynntist Birgi. Það má því segja að
það sé mikið líf á heimilinu.
— Er ekki lítill frítími hjá Birgi Sig-
urðssyni?
„Jú, mjög lítill. Ég vinn sem sölu-
maður 8-10 tíma á dag, stunda æfing-
ar 6 sinnum í viku og við þetta bætast
svo utanlandsferðir með landsliðinu
og Víkingi."
— Hvernigeraðvera5 barnafaðir
á fullu í handbolta?
„Það gengur. Fjölskyldan hjálpar
til og þá sérstaklega tengdamóðir
mín sem kemur til okkar daglega,
annars væri þetta ekki hægt. Ég get
stundað allar mínar æfingar og okkur
tekst að ná endum saman."
— Ert þú á toppnum núna sem
handboltamaður?
„Ég hef nú aldrei byrjað keppnis-
tímabil einsvel og þettaen mérfinnst
vanta ennþá svolítið upp á snerp-
una."
— Hverniglístþéráíslandsmótiðf
vetur?
„Mér líst mjög vel á það. Við ætl-
um okkur að vera í toppbaráttu en
það eru mörg góð lið í deildinni
núna. Ég hef ekki séð FH-inganaspila
en þeir verða örugglega sterkir svo
hef ég trú á að ÍBV og KA eigi eftir að
eiga mjög gott tímabil."
— Er stefnan sett á atvinnu-
mennsku?
„Ég myndi skoða allt sem kæmi
upp. Það væri vissulega gaman að
prófa það en það er samt enginn
draumur eða eitthvert takmark hjá
mér."
— Þurfum við að kalla á Alfreð,
Kristján eða Sigga Gunn. í landsliðið
fyrir B-keppnina?
„Þeir myndu auðvitað styrkja liðið
en þá þyrftu þeir að koma af frjálsum
vilja og af áhuga."
— Hvaðamarkmaðurererfiðastur
í deildinni?
„Éghefalltafátt ímestum erfiðleik-
um með Einar Þorvarðar en einnig
með marga aðra. Það fer eftir dags-
forminu hverju sinni."
— Er ekki draumur allra línu-
manna að fá að leika með Sigga
Sveins.?
„Það er mjög gott að spila með
Sigga því það koma ótrúlegustu bolt-
ar inn á línunafrá honum. Annars get
égekki kvartað því að í Víkingi fæ ég
mikið af góðum sendingum og þá
sérstaklega frá Gunnari Gunnars-
syni."