Bændablaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 202028 Jón Gíslason, bóndi á Stóra- Búrfelli í Húnaþingi, segist aldrei hafa séð nokkuð þessu líkt áður. „Það er ekki að sjá annað en að um 12 fermetra stór flötur hafi hreinlega rifnað og lyfst í heilu lagi og dottið aftur niður við hliðina á.“ Að sögn Jóns áttar hann sig ekki á hvernig svona lagað gerist og hann langi til að vita það. „Ég reið fram á þetta fyrir nokkrum dögum í mjög blautri mómýri þar sem við erum að rækta ösp. Eins og sjá má á myndunum er holan meðfram rafmagnsgirðingu í landinu og það fyrsta sem mér datt í hug að þetta væru ummerki eftir eldingu.“ Mörg tonn að þyngd Jón segir að mýrin sé þétt í sér og að það þurfi beitta og góða skóflu til að stinga torf í henni. „Stykkið sem um ræðir er um sex sinnum tveir metrar og að 40 sentímetrum að þykkt og því nokkuð stórt og það fer í heilu lagi og upp á bakkann við hliðina á og leggst þar án þess að hvolfast. Auk þess sem jaðrarnir eru eins og vel skornir en ekki rifnir. Flöturinn sem er í einu lagi er örugglega nokkur tonn á þyngd enda jarðvegurinn í honum blautur og þungur.“ Nokkra metra frá holunni er moldarhrúga og segir Jón að það sé eins og hún hafi spýst frá holunni um leið og flöturinn lyftist og því ekki óhugsandi að einhvers konar sprenging hafi átt sér stað. Mögulegar ástæður Bændablaðið hafði samband við tvo jarðvegsfræðinga, Ólaf Arnalds, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, og Pál Kolka hjá Vegagerðinni og spurði þá hver hugsanleg skýring á fyrirbærinu gæti verið. Tekið skal fram að þeir hafa einungis séð fyrirbærið á myndum. Ólafur segir að erfitt sé átta sig á hvað hér sé um að ræða af myndum. Það sé eins og jarðvegsmassinn hafi dregist saman, sem getur gerst ef hluti hans þornar. „Þó er afar líklegt að frost og þíða hafi eitthvað að segja í þessu ferli. Mögulegt er að jarðvegsmassinn hafi náð að bólgna mikið út í frosti sem getur gerst ef það er smá grunnrennsli undir staðnum því þá dregst vatn að mótum frosts og þíðu (frostbylgjunni). Þegar moldin þiðnar skreppur hún síðan saman. Ferlið vindur upp á sig og þetta gerist síendurtekið.“ Ólíklegt er að það leynist virkar tektónískar sprungur þarna undir, en þó aldrei hægt að útiloka neitt fyrirfram. Að mati Páls er vatn, eða það að jarðvegurinn þarna niðri sé aðeins öðruvísi, orsakavaldurinn. „Rigningar, breytingar, holur, gröftur eða þess háttar í kring gætu hafa ýtt jarðvegnum „yfir strikið“. Gömul mógröf? „Eftir að hafa skoðað myndirnar hallast ég aftur að gamalli mógröf eða mýrartjörn sem hefur fyllst af fínum leir og lífrænu efni og svo svörðurinn náð yfir og lokað. Jarðvegurinn við betri skoðun lítur út fyrir að vera mjög lífrænn. Ef við fabúlerum aðeins áfram með þá kenningu þá gæti hafa safnast það mikið vatn undir, þéttar og treglekari jarðvegi í kring, sem hefur ýtt þessu af stað. Sárin eru svo hrein, platan sem ýtist svo stór að vatn og leir er eiginlega það eina sem mér dettur í hug að þetta gæti verið. Og úr verði örlítil flekaskriða.“ Elding eða gassprenging? „Ef þetta væri elding, þá væri sárið óreglulegra og þær skilja oftast eftir sig annaðhvort holu eins og sprengdur hafi verið flugeldur eða „snákafar“, það er að segja óreglulega línu. Gassprenging undir yfirborði væri líka mun ósnyrtilegri og ég myndi telja ólíklegt að hún myndi ná svona stóru stykki og færa það svona snyrtilega. En gas og vatn gætu líka hugsanlega nýst sem smurefni fyrir svona tilfærslu.“ Margir samverkandi þættir Þrátt fyrir að skýringar þeirra Ólafs og Páls séu ekki samhljóma er hugsanlegt að báðar geti verið réttar og líklegast að landlyftingin stafi af mörgum samverkandi þáttum. /VH Jón Gíslason, bóndi á Stóra-Búrfelli í Svínavatnshreppi í Austur-Húnavatnssýslu, við um tólf fermetra stóra holu sem myndaðist þegar stykki úr mýri lyftist í heilu lagi. Snyddan, sem lyftist upp á bakkann við hliðina á án þess að hvolfast, er að sögn Jóns nokkur tonn að þyngd. Myndir / Aðsendar FRÉTTIR Undur náttúrunnar: Land lyftist í Húnaþingi Snyddan sem um ræðir er um sex sinnum tveir metrar og að 40 sentí- metrum að þykkt. Stór hola myndaðist þar sem snyddan var og fylltist hún fljótt af vatni. Landið sem um ræðir er blaut mómýri. Nokkra metra frá holunni er moldar- hrúga og eins og hún hafi spýst frá holunni um leið og flöturinn lyftist. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið: Algengar einnota vörur úr plasti verða óheimilar á næsta ári Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem meðal annars felur í sér að bannað verður að setja tilteknar, algengar einnota vörur úr plasti á markað frá og með 3. júlí 2021. Meðal vara sem bannað verður að setja á markað eru einnota bómullarpinnar úr plasti, hnífapör, diskar, sogrör, hræripinnar og blöðrustangir. Þá verða matarílát, drykkjarílát, glös og bollar úr frauðplasti óheimil og ekki verður heimilt að afhenda endurgjaldslaust einnota bolla, glös og matarílát úr öðru plasti sem ætluð eru undir drykki og matvæli til neyslu, líkt og algengt er á skyndibitastöðum. Undantekningar eru gerðar ef vörur flokkast sem lækningatæki. Öragnir sem skaðlegar eru heilsu Skilyrðislaust bann verður við því að setja vörur á markað sem gerðar eru úr plasti sem er niðurbrjótanlegt með oxun eða svokallað oxó-plast. Vörur úr slíku plasti hafa rutt sér til rúms á markaði síðustu ár, einkum vissar tegundir plastpoka, en eðli þess er að sundrast í öragnir sem eru skaðlegar heilsu og umhverfi og er vaxandi vandi á alþjóðavísu. Kveðið er á um sérstaka merkingu sem tilteknar einnota plastvörur eiga að bera. Um er að ræða upplýsingar um meðhöndlun vörunnar eftir notkun og þau neikvæðu áhrif sem varan hefur berist hún út í umhverfið. Þær vörur sem greinin mun taka til eru ýmsar tíðavörur, blautþurrkur til heimilis- og einkanota, ýmsar tóbaksvörur og bollar fyrir drykki. Fáanlegar eru á markaði stað- gönguvörur sem eru margnota eða innihalda ekki plast og nota má í stað þeirra vara sem breytingarnar taka til. /VH Bannað verður að setja tilteknar, algengar einnota vörur úr plasti á markað frá og með 3. júlí 2021. Hendum ekki rusli út í náttúruna: Dósir geta valdið skaða Þegar bjór- eða gosdósir eru skildar eftir úti í náttúrunni valda þær ekki einungis umhverfis- skaða heldur geta valdið búfén- aði alvarlegum skaða og jafnvel dauða. Skýringin á þessu er einfaldlega sú að skepnur eru hálfgerðir óvitar og eiga það til að setja upp í sig ýmislegt fleira en gras. Segja má að sumt búfé sé eiginlega eins og smábörn sem þarf að passa vel enda alþekkt sú árátta barna að setja alls konar smáhluti upp í sig. Getur skorið búfénað Almennt séð er allt rusl auðvitað óæskilegt úti í náttúrunni en ástæða þess að dósir eru sérlega slæmar er sú að ef þær skemmast eða byrja að tærast upp þá geta hliðar þeirra orðið flugbeittar og nánast eins og rakvélablöð. Ef gripir bíta í slíka dós eða sleikja, sem því miður eru mörg dæmi um, a.m.k. erlendis, þá geta þeir skorið sig illa. Þá geta dósir valdið miklu tjóni ef þær berast í fóður þar sem hin ýmsu tæki og tól sem notuð eru við heyskapinn geta tætt þær upp og í raun breyst í ótal litlar málmflísar með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir gripina. Málmrusl í náttúrunni er alþjóðlegt vandamál og nú í sumar standa norsku bændasamtökin fyrir sér- stakri herferð sem hefur verið sett til höfuðs þessu vandamáli sem fylgir því þegar fólk skilur eftir sig dós eða dósir úti í náttúrunni. Norski landbúnaðarráðherrann styður sérstaklega þessa herferð sem beint er sérstaklega að ferða- fólki. /SNS-Bondebladet Málmflísar og beittar brúnir á dós- um geta stórskaðað skepnur. Mynd / Aðsend

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.