Bændablaðið - 30.07.2020, Page 1

Bændablaðið - 30.07.2020, Page 1
Sápur og egg til sölu 1814 Vinnueftirlit í landbúnaði: Fólk sér ekki hætturnar 20–21 Búseta á Bifröst 15. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 30. júlí ▯ Blað nr. 568 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Hin þýska Fee Zanke frá fyrirtækinu Sprettu kynnti og seldi grænsprettur, sem þau rækta í miklu úrvali, á markaði Austurlands Food Coop á Skúlagötu á dögunum. Fyrirtækið framleiðir yfir 20 tegundir af grænsprettum sem seldar eru í gegnum Heimkaup, Melabúðina og Krónuna á Granda en ásamt því er opið hús hjá fyrirtækinu alla laugardaga á Fiskislóð úti á Grandagarði. Fyrirtækið vinnur nú að því að finna fleiri sölustaði en að sögn Fee hefur virkað vel að vera sýnileg og hitta viðskiptavini beint sem vilja gjarnan smakka og prófa vörurnar áður en þeir kaupa þær. Mynd / TB Hámarksverð á greiðslumarki mjólkur færir greininni stöðugleika – Verð fyrir mjólkurkvóta verður að hámarki 294 krónur á lítra. Dregur úr óvissu í mjólkurframleiðslunni, segir formaður kúabænda. Framkvæmdanefnd búvöru samn­ inga samþykkti með ein földum meiri hluta atkvæða að leggja til við land búnaðarráðherra að hámarks­ verð á næsta markaði með greiðslu­ mark í mjólk verði þrefalt afurða­ stöðvaverð, eða 294 kr. Ákvörðunin á að gilda fram að næstu endur­ skoðun samnings um starfsskilyrði naut gripa ræktarinnar árið 2023. Fulltrúar bænda í fram kvæmda­ nefnd búvörusamninga höfðu áður lagt til tvöfalt afurðastöðvaverð sem ætti að gilda út samningstíma nautgripa­ ræktarsamnings til ársins 2026. Ekki náðist sátt um þá tillögu innan nefndar­ innar og því varð úr að Landssamband kúabænda og Bændasamtök Íslands lögðu fram sameiginlega tillögu í framkvæmdanefndinni þar sem lagt var til þrefalt afurðastöðvaverð sem verðþak á greiðslumark út samningstí­ mann. Fram kom í þeim rökstuðningi, sem tillögunni fylgdi, að ljóst væri að bændur vildu hafa hámarksverð á markaði og skipti þar stöðugleik­ inn mestu máli svo hægt sé að vinna rekstraráætlanir. Þrýstingur á breytingar Mikill þrýstingur hefur verið á breytingar á fyrirkomulagi kvóta­ markaðar, m.a. vegna nýlegrar ákvörðunar um lækkun á verði um­ frammjólkur úr 29 kr. í 20 kr. á lítr­ ann. Eftirspurn eftir greiðslumarki er gríðarleg en framboðið lítið. Það sýndi sig í niðurstöðum síðasta mark­ aðar 1. apríl sl. þegar hámarksverð var 185 krónur eða sem nam þá tvöföldu lágmarks afurðastöðvaverði. Á þeim markaði voru 9 gild sölutilboð og 218 gild kauptilboð. Greiðslumark sem boðið var fram voru alls 586.046 lítrar en óskað var eftir 9.836.190 lítrum. Eftir spurnarmagn var því tæplega sautjánfalt á við framboðsmagnið. Gera ráð fyrir auknu framboði Arnar Árnason, formaður Lands­ sambands kúabænda, segist gera ráð fyrir því að breytingin á hámarksverðinu feli í sér aukið framboð á greiðslu­ marki til sölu. Hann segist jafnframt vona að það muni takast að sætta sem flest sjónarmið varðandi viðskipti með greiðslumark. Nú dragi úr óvissu sem færi greininni ákveðinn stöðugleika. „Staðan hefur auðvitað verið mjög erfið undanfarin ár og nær algjört frost verið með viðskiptin. Ég tek það skýrt fram að um hámarksverð er að ræða en ekki fast verð og bændur haga auðvitað sínum tilboðum eftir því sem passar fyrir þeirra rekstur.“ Komið til móts við nýliða Arnar segir að nú sé búið að skýra betur hvernig forkaupsréttur nýliða á markaðnum gengur fyrir sig. „Nýliðar eiga forkaupsrétt á 5% af því magni sem í boði er hverju sinni og mun það hlutfall skiptast milli nýliða og engra annarra í samræmi við þann lítrafjölda sem þeir óskuðu eftir að kaupa. Það greiðslumark sem þá er eftir, eða hin 95%, eru svo boðin öllum öðrum kaupendum á sama hátt, sem og aðilum sem nutu for­ gangs. Þetta virkar því núna á sama hátt og þegar innlausn ríkisins var við lýði. Kvótamarkaðurinn byggist upp á jafnvægisverði og því sitja allir við sama borð þegar kemur að 95% af framboðnu magni. Með reglum um hámarksverð, ásamt hámarki á hvað hver framleiðandi getur keypt mikið magn á hverjum markaði og að enginn getur átt meira en sem nemur 1,2% af heildargreiðslumarki hvers árs, ætti staða nýliða ekki að vera ólík stöðu annarra sem óska eftir greiðslumarki í gegnum markaðinn,“ segir Arnar. Á markaði sem haldinn verður þann 1. september verður hámarks­ verð 294 kr. og mun krónutalan uppfærast samhliða breytingum á afurðastöðvaverði framvegis. Næsti markaður með greiðslu mark er 1. september næstkomandi en bændur þurfa að skila inn tilboðum um kaup eða sölu fyrir 10. ágúst. /TB

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.