Bændablaðið - 30.07.2020, Qupperneq 10

Bændablaðið - 30.07.2020, Qupperneq 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 202010 FRÉTTIR Votlendissjóður svarar gagnrýni: Skiptar skoðanir um endurheimt votlendis – Fyrrverandi varaformaður Bændasamtakanna segir slæmt þegar fólk innan landbúnaðarins vinnur hvert gegn öðru Talsverður styr hefur staðið um starfsemi Votlendissjóðs og endur- heimt votlendis og eru skiptar skoðanir á því í hvað skattpening- um landsmanna er varið. Bændur, sem og aðrir, skiptast í tvo hópa yfir því hver raunverulegur ávinning- ur sé við endurheimt votlendis og telja sumir að horfa eigi til annarra þátta við kolefnisbindingu en að moka ofan í skurði sem grafnir voru fyrr á tímum. Eftir fréttaflutning Stöðvar 2 á dögunum, þar sem viðtal var við bændurna á Syðri-Fljótum í Meðallandi, komu fram efasemdir um þörf þess að endurheimta vot- lendi og um jákvæð áhrif þess til að vinna gegn loftslagsvandanum. Í kjölfarið sendi stjórn Votlendissjóðs frá sér fréttatilkynningu til að koma upplýsingum um grundvöll sjóðsins og starfsemi á framfæri. Þar kom fram að störf Votlendissjóðsins byggðu á vinnu sérfræðinga Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskólans, Land græðsl- unnar og annarra sem rann sakað hafa kolefnisbúskap og losun koldíoxíðs frá framræstu votlendi í fjölda ára. Nota viðurkenndar aðferðir Í tilkynningu sjóðsins sagði að hann hefði endurheimt votlendi á fjórum jörðum árið 2019 í samvinnu við Landgræðsluna. Í það heila voru endurheimtir 72 hektarar, sem er stöðvun koldíoxíðslosunar sem nemur 1.440 tonnum. Til glöggvunar er það sambærilegt við að taka 720 bíla úr umferð á ári hverju sem líður. Rannsóknir sýna að framræst votlendi orsakar um 60% losunar koldíoxíðs á Íslandi. Inni í því hlut- falli er ekki tekið tillit til alþjóðlegs flugs yfir Íslandi en allar aðrar sam- göngur, fiskveiðar og iðnaður eru þar með talin. Rannsóknir sérfræðinga Landgræðslunnar og háskólasam- félagsins gefa til kynna að losun koldíoxíðs úr framræstu votlendi sé að meðaltali um 19,5 tonn á hektara hér á landi. Það eru tölur sem eru í samræmi við hliðstæðar rannsóknir á hinum Norðurlöndunum. Skurðakerfi landsins vegna framræsts votlendis er yfir þrjátíu þúsund kílómetrar að lengd en meira en helmingur lands í kringum þá er ekki nýtt í dag til landbúnaðar. Votlendissjóðurinn var stofnaður fyrst og fremst til að endur- heimta framræst land sem ekki er nýtt til land búnaðar. Aðferðin er viður- kennd aðgerð í baráttunni við loft- lagsbreytingarnar af Loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna (UNFCC). Þá bendir sjóðurinn á að rannsóknir Hafs og vatns, áður Veiðimálastofnun og Haf rann sóknastofnun, sýni að endurheimt votlendis geti í mörgum tilfellum bætt vatnsgæði í ám og vötnum og dregið úr flóðahættu í aftaka úrkomu. Þörf á samstöðu Einar Bárðarson er framkvæmda- stjóri Votlendissjóðs. „Það sem týnist því miður í umræðunni þegar kemur að endurheimt votlendis er það sem öllu máli skiptir í okkar vinnu og það er það að við erum að falast eftir samstarfi við landeigendur sem eru með framræst land sem ekki er nýtt til landbúnaðar. Land sem hefur jafn- vel aldrei verið nýtt til landbúnaðar eftir að það var framræst. Við erum sjálfseignarsjóður, fjármagnaður af samfélagslega ábyrgum fyrirtækjum og einstaklingum og vinnum að endurheimt með aðstoð og eftirliti Landgræðslunnar. Þannig er það ekki til umræðu að falast eftir fram- ræstu landi í notkun. Það er það mikið af framræstu landi sem ekki er í notkun til landbúnaðar að við erum langt frá öllu slíku. Þess utan hefur Votlendissjóður engar slíkar heimildir og sækist ekki eftir þeim. Í þessum málum er þörf á samstöðu,“ segir Einar. „Fyrir utan það að vera hraðvirk- asta aðgerð sem við getum hafið í þágu loftslagsmála þá fylgir þessu verulegur ábati í formi líffræðilegs fjölbreytileika, áður líflítil tún fyll- ast af fallegum fuglum og vatnsgæði veiðivatna og veiðiáa í kringum endurheimt votlendi aukast. Þannig ættu allir að geta verið stoltir þátttak- endur í endurheimt votlendis sama hvaða skoðun þeir hafa á loftslags- málum heimsins. Það er hins vegar mikið fagnaðarefni hversu með- vitaðir og velviljaðir landeigendur um allt land eru til þess að vinna að endurheimt votlendis með sjóðn- um. Þá er stuðningur almennings og einkarekinna fyrirtækja forsenda endurheimtarinnar og þeirri stöðvun á kolefnislosun sem henni fylgir.“ Mikilvægt að vinna saman Sveinn Ingvarsson, bóndi og fyrrver- andi vara formaður Bænda samtaka Íslands, tók sæti í stjórn Vo t l e n d i s - sjóðs í vor. Hann er líf- og vistfræð ingur að mennt og kemur því inn í stjórn sjóðs- ins með góða reynslu og þekk ingu. „Ég hef fylgst með þessu mál- efni lengi og hef ágæta þekkingu á þessu sviði. Það hefur eiginlega verið alveg ótrúlegt að fylgjast með umfjöllun Bænda blaðsins í þessu máli og hvernig á því er tekið af hálfu ritstjórans. Persónulega finnst mér jafnvel hreinlega koma fram ósann- indi í þeim málflutningi. Þar eru til dæmis verkefnin túlkuð á þann hátt að verið sé að endurheimta votlendi á túnum sem eru í notkun en það er alveg kristaltært að hvergi er tekið neitt til endurheimtar nema með sam- þykki landeigenda og sveitarfélaga á viðkomandi svæðum,“ segir Sveinn ákveðið og bætir við: „Það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir íslenskan landbúnað að standa í fæturna í umhverfismálum og slæmt þegar fólk innan greinar- innar vinnur hvert gegn öðru. Ég lít á starf Votlendissjóðs sem mikilvægan vettvang til að vinna árangursríkt starf í loftslagsmálum, stöðva kolefnislosun og koma þannig til móts við þá kolefnislosun sem verð- ur vegna athafna okkar í dag. Með því að taka þátt getum við bændur skapað okkur jákvætt orðspor. Allir sem að málinu standa eiga að vinna skipulega saman, þannig náum við árangri. Að mínu mati er algjör firra að halda því fram að ekki liggi fyrir vísindaleg rök og upplýsingar um mikilvægi endurheimtar votlendis. Endurheimtin er ekki einungis lofts- lagsmál heldur fylgir henni einnig verulega aukinn fjölbreytileiki líf- ríkisins og þar með hæfni þess til að standast utanaðkomandi álag,“ segir Sveinn. „Við erum að falast eftir samstarfi við landeigendur sem eru með framræst land sem ekki er nýtt til landbúnaðar. Land sem hefur jafnvel aldrei verið nýtt til landbúnaðar eftir að það var framræst,“ segir Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Votlendissjóðs. Myndin sýnir vinnu við endurheimt votlendis með skurðafyllingu við Bessastaði á Álftanesi á síðasta ári. Myndir / Votlendissjóður Stjórn Votlendissjóðs í dag skipa Magnús Jóhannesson, fyrrverandi ráðu- neytisstjóri frá vinstri, Ingunn Agnes Kro framkvæmdastjóri, Sveinn Ingvars-son bóndi, landfræðingur og fyrrverandi varaformaður Bændasamtakanna, Helga Bjarnadóttir, sviðstjóri hjá Eflu, Þórunn Inga Ingjaldsdóttir fram-kvæmdastjóri, Sveinn Runólfsson fyrrverandi landgræðslustjóri, Hjálmar Kristjánsson fjárfestir, Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri og Þröstur Ólafsson, formaður stjórnar lengst til hægri. Á myndina vantar Rannveigu Grétarsdóttur, stjórnarkonu í sjóðnum. Einar Bárðarson. Sveinn Ingvarsson. Endurheimt votlendis og skógrækt getur vel farið saman. Mynd / Hlynur G. Sigurðsson Erla Hjördís Gunnarsdóttir ehg@bondi.is

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.