Bændablaðið - 30.07.2020, Qupperneq 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 202010
FRÉTTIR
Votlendissjóður svarar gagnrýni:
Skiptar skoðanir um endurheimt votlendis
– Fyrrverandi varaformaður Bændasamtakanna segir slæmt þegar fólk innan landbúnaðarins vinnur hvert gegn öðru
Talsverður styr hefur staðið um
starfsemi Votlendissjóðs og endur-
heimt votlendis og eru skiptar
skoðanir á því í hvað skattpening-
um landsmanna er varið. Bændur,
sem og aðrir, skiptast í tvo hópa yfir
því hver raunverulegur ávinning-
ur sé við endurheimt votlendis og
telja sumir að horfa eigi til annarra
þátta við kolefnisbindingu en að
moka ofan í skurði sem grafnir
voru fyrr á tímum.
Eftir fréttaflutning Stöðvar 2
á dögunum, þar sem viðtal var
við bændurna á Syðri-Fljótum í
Meðallandi, komu fram efasemdir
um þörf þess að endurheimta vot-
lendi og um jákvæð áhrif þess til
að vinna gegn loftslagsvandanum. Í
kjölfarið sendi stjórn Votlendissjóðs
frá sér fréttatilkynningu til að koma
upplýsingum um grundvöll sjóðsins
og starfsemi á framfæri. Þar kom fram
að störf Votlendissjóðsins byggðu á
vinnu sérfræðinga Háskóla Íslands,
Landbúnaðarháskólans, Land græðsl-
unnar og annarra sem rann sakað hafa
kolefnisbúskap og losun koldíoxíðs
frá framræstu votlendi í fjölda ára.
Nota viðurkenndar aðferðir
Í tilkynningu sjóðsins sagði að hann
hefði endurheimt votlendi á fjórum
jörðum árið 2019 í samvinnu við
Landgræðsluna. Í það heila voru
endurheimtir 72 hektarar, sem er
stöðvun koldíoxíðslosunar sem
nemur 1.440 tonnum. Til glöggvunar
er það sambærilegt við að taka 720
bíla úr umferð á ári hverju sem líður.
Rannsóknir sýna að framræst
votlendi orsakar um 60% losunar
koldíoxíðs á Íslandi. Inni í því hlut-
falli er ekki tekið tillit til alþjóðlegs
flugs yfir Íslandi en allar aðrar sam-
göngur, fiskveiðar og iðnaður eru þar
með talin. Rannsóknir sérfræðinga
Landgræðslunnar og háskólasam-
félagsins gefa til kynna að losun
koldíoxíðs úr framræstu votlendi sé
að meðaltali um 19,5 tonn á hektara
hér á landi. Það eru tölur sem eru í
samræmi við hliðstæðar rannsóknir á
hinum Norðurlöndunum. Skurðakerfi
landsins vegna framræsts votlendis
er yfir þrjátíu þúsund kílómetrar að
lengd en meira en helmingur lands
í kringum þá er ekki nýtt í dag til
landbúnaðar. Votlendissjóðurinn var
stofnaður fyrst og fremst til að endur-
heimta framræst land sem ekki er nýtt
til land búnaðar. Aðferðin er viður-
kennd aðgerð í baráttunni við loft-
lagsbreytingarnar af Loftslagsnefnd
Sameinuðu þjóðanna (UNFCC).
Þá bendir sjóðurinn á að rannsóknir
Hafs og vatns, áður Veiðimálastofnun
og Haf rann sóknastofnun, sýni að
endurheimt votlendis geti í mörgum
tilfellum bætt vatnsgæði í ám og
vötnum og dregið úr flóðahættu í
aftaka úrkomu.
Þörf á samstöðu
Einar Bárðarson er framkvæmda-
stjóri Votlendissjóðs. „Það sem týnist
því miður í umræðunni þegar kemur
að endurheimt
votlendis er
það sem öllu
máli skiptir í
okkar vinnu
og það er það
að við erum
að falast eftir
samstarfi við
landeigendur
sem eru með
framræst land sem ekki er nýtt til
landbúnaðar. Land sem hefur jafn-
vel aldrei verið nýtt til landbúnaðar
eftir að það var framræst. Við erum
sjálfseignarsjóður, fjármagnaður af
samfélagslega ábyrgum fyrirtækjum
og einstaklingum og vinnum að
endurheimt með aðstoð og eftirliti
Landgræðslunnar. Þannig er það
ekki til umræðu að falast eftir fram-
ræstu landi í notkun. Það er það
mikið af framræstu landi sem ekki
er í notkun til landbúnaðar að við
erum langt frá öllu slíku. Þess utan
hefur Votlendissjóður engar slíkar
heimildir og sækist ekki eftir þeim.
Í þessum málum er þörf á samstöðu,“
segir Einar.
„Fyrir utan það að vera hraðvirk-
asta aðgerð sem við getum hafið í
þágu loftslagsmála þá fylgir þessu
verulegur ábati í formi líffræðilegs
fjölbreytileika, áður líflítil tún fyll-
ast af fallegum fuglum og vatnsgæði
veiðivatna og veiðiáa í kringum
endurheimt votlendi aukast. Þannig
ættu allir að geta verið stoltir þátttak-
endur í endurheimt votlendis sama
hvaða skoðun þeir hafa á loftslags-
málum heimsins. Það er hins vegar
mikið fagnaðarefni hversu með-
vitaðir og velviljaðir landeigendur
um allt land eru til þess að vinna að
endurheimt votlendis með sjóðn-
um. Þá er stuðningur almennings
og einkarekinna fyrirtækja forsenda
endurheimtarinnar og þeirri stöðvun
á kolefnislosun sem henni fylgir.“
Mikilvægt að vinna saman
Sveinn Ingvarsson, bóndi og fyrrver-
andi vara formaður Bænda samtaka
Íslands, tók
sæti í stjórn
Vo t l e n d i s -
sjóðs í vor.
Hann er líf- og
vistfræð ingur
að mennt og
kemur því inn
í stjórn sjóðs-
ins með góða
reynslu og
þekk ingu.
„Ég hef fylgst með þessu mál-
efni lengi og hef ágæta þekkingu
á þessu sviði. Það hefur eiginlega
verið alveg ótrúlegt að fylgjast með
umfjöllun Bænda blaðsins í þessu
máli og hvernig á því er tekið af hálfu
ritstjórans. Persónulega finnst mér
jafnvel hreinlega koma fram ósann-
indi í þeim málflutningi. Þar eru til
dæmis verkefnin túlkuð á þann hátt
að verið sé að endurheimta votlendi
á túnum sem eru í notkun en það er
alveg kristaltært að hvergi er tekið
neitt til endurheimtar nema með sam-
þykki landeigenda og sveitarfélaga á
viðkomandi svæðum,“ segir Sveinn
ákveðið og bætir við:
„Það skiptir gríðarlega miklu
máli fyrir íslenskan landbúnað að
standa í fæturna í umhverfismálum
og slæmt þegar fólk innan greinar-
innar vinnur hvert gegn öðru. Ég lít á
starf Votlendissjóðs sem mikilvægan
vettvang til að vinna árangursríkt
starf í loftslagsmálum, stöðva
kolefnislosun og koma þannig til
móts við þá kolefnislosun sem verð-
ur vegna athafna okkar í dag. Með
því að taka þátt getum við bændur
skapað okkur jákvætt orðspor. Allir
sem að málinu standa eiga að vinna
skipulega saman, þannig náum við
árangri. Að mínu mati er algjör firra
að halda því fram að ekki liggi fyrir
vísindaleg rök og upplýsingar um
mikilvægi endurheimtar votlendis.
Endurheimtin er ekki einungis lofts-
lagsmál heldur fylgir henni einnig
verulega aukinn fjölbreytileiki líf-
ríkisins og þar með hæfni þess til
að standast utanaðkomandi álag,“
segir Sveinn.
„Við erum að falast eftir samstarfi við landeigendur sem eru með framræst land sem ekki er nýtt til landbúnaðar. Land sem hefur jafnvel aldrei verið nýtt til landbúnaðar eftir að það var framræst,“
segir Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Votlendissjóðs. Myndin sýnir vinnu við endurheimt votlendis með skurðafyllingu við Bessastaði á Álftanesi á síðasta ári. Myndir / Votlendissjóður
Stjórn Votlendissjóðs í dag skipa Magnús Jóhannesson, fyrrverandi ráðu-
neytisstjóri frá vinstri, Ingunn Agnes Kro framkvæmdastjóri, Sveinn
Ingvars-son bóndi, landfræðingur og fyrrverandi varaformaður
Bændasamtakanna, Helga Bjarnadóttir, sviðstjóri hjá Eflu, Þórunn Inga
Ingjaldsdóttir fram-kvæmdastjóri, Sveinn Runólfsson fyrrverandi
landgræðslustjóri, Hjálmar Kristjánsson fjárfestir, Ólafur Eggertsson,
bóndi á Þorvaldseyri og Þröstur Ólafsson, formaður stjórnar lengst til
hægri. Á myndina vantar Rannveigu Grétarsdóttur, stjórnarkonu í
sjóðnum.
Einar Bárðarson. Sveinn Ingvarsson.
Endurheimt votlendis og skógrækt
getur vel farið saman.
Mynd / Hlynur G. Sigurðsson
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is