Bændablaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 2020 47 Bænda 20. ágúst Fréttir á bbl.is Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla. Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi. Sendum um allt land. www.pgs.is pgs@pgs.is s 586 1260 Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík Alternatorinn eða startarinn bilaður? Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is OKKAR ÆR OG KÝR — STARTARAR OG ALTERNATORAR — jardir.is Kurlararnir komnir Ansi öflug verkfæri með 15 hp bensínmótor, blæs kröftuglega frá sér. Tekur allt að 100 mm. Auka hnífasett fáanlegt. Verð á samsettu tæki kr 259.000.- með vsk. Vír og lykkjur ehf. S. 772-3200 Frumleg útgáfa af hinu heimsþekkta hanastéli White Russian: Kokteill úr sauðamjólk Andri Davíð Pétursson heldur úti heimasíðunni viceman.is þar sem hann fjallar um allt sem viðkem- ur fljótandi veigum en hann held- ur líka úti hlaðvarpinu „Happy Hour með The Viceman“. Andri er framreiðslumaður að mennt og hefur vakið athygli fyrir að fara sínar eigin leiðir þegar kemur að blönd un drykkja, svo ekki kom það mörgum á óvart þegar hann kynnti til leiks nýjan íslenskan kokteil úr sauðamjólk. Á undanförnum árum hefur Andri þróað sinn eigin barþjónastíl sem byggist að miklum hluta á nýtingu íslensks hráefnis eins og villtum jurtum og öðru sem fáum dettur í hug að geti nýst í drykki. Andri hefur á síðastliðnum árum sérhæft sig í drykkjargerð. Árið 2016 vann Andri fyrstu World Class Bartender of the year-keppnina sem haldin var á Íslandi. Síðar sama ár keppti hann á móti 56 bestu barþjónum heims í aðalkeppni World Class Bartender of the Year í Miami. Rússnesk rolla Í maí lá leið Andra á Skarð í Lundar reykjadal þar sem hann aðstoðaði frændur sína í sauðburði. Þar datt Andra í hug að búa til frumlega og skemmtilega útgáfu af hinu heimsþekkta hanastéli White Russian, eða hvítum rússa. Upprunalega uppskriftin kallar á vodka, kaffilíkjör og rjóma en Andri vildi prófa óhefðbundna nálgun og skipti rjómanum út fyrir sauðamjólk. Var mjólkin sótt beint á spena inni í fjárhúsi og drykkurinn hristur á staðnum. Útkoman kom skemmtilega á óvart og varð til nýr drykkur sem fékk nafnið Rússnesk rolla. Þann 28. maí veitti markaðsstofan Icelandic Lamb veitingastöðum Award of Excellence-viðurkenningar og bauð Andri gestum að smakka þessa nýjustu viðbót við íslenska drykkjarmenningu. Aðspurður sagði Andri sauðamjólkina einstaka vegna þess hve fitusprengd hún er. „Áferðin er einstaklega mjúk og ljúffeng sökum þess, þar að auki hentar sauðamjólk vel til kokteilgerð- ar af því að þurrefnisinnihald henn- ar er hátt.“ Rannsóknir hafa sýnt að próteinsamsetning sauðamjólkur er önnur en kúamjólkur og gæti fólk sem hefur óþol gagnvart kúamjólk í einhverjum tilfellum neytt sauða- mjólkurvara eins og Rússneska rollu án óþæginda. Sauðamjólk til manneldis Ísland er gott dæmi um land þar sem nýting á sauðamjólk til manneldis hefur lagst af vegna mikilla breytinga í landbúnaði. Mjólk sauðkindarinnar hefur haft töluverða þýðingu í fæðu- öflun mannkyns í gegnum tíðina en vinsældir hennar hafa dalað tölu- vert síðustu aldir. Í sumum löndum hefur þó hefð fyrir nýtingu hennar lifað góðu lífi þrátt fyrir hraða þróun landbúnaðar. Algengast er að mjólkin sé nýtt til ostagerðar en sauðaostar eru eftirsótt og verðmæt matvara víða um heim. Þó nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til þess að hefja nýtingu á sauð- fjármjólk á Íslandi og hafa þær gengið misvel. Í dag fer framleiðsla á matvör- um úr sauðamjólk fram á Egilsstöðum í Fljótsdal en þar mjólkar Ann-Marie Schlutz sauðfé á sérstökum mjalta- bás. Fyrirtæki hennar, Sauðagull ehf., stefnir að því að endurvekja íslenska sauðamjólkurhefðir og framleiða nútímalegar matvörur úr mjólkinni, til dæmis osta og súkkulaði. Það má því segja að mikill kraftur sé í nýsköpun með sauðamjólk í dag og leynast næg tækifæri fyrir þessa vannýttu auðlind í framtíðinni. Rússnesk rolla 30 ml vodka 30 ml kaffilíkjör 30 ml sauðamjólk Öll hráefni hrist saman án klaka og svo með klaka. Kokteillinn sigtaður í kælt glas með klaka. /VH Framreiðslumaðurinn Andri Davíð Pétursson hristir rússnesku rolluna. Rússnesk rolla, drykkur þar sem mjólkin kemur ylvolg úr ærspena. Myndir / Aðsendar

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.