Bændablaðið - 30.07.2020, Side 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 2020 47
Bænda
20. ágúst
Fréttir á bbl.is
Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum
í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla.
Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og
eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi.
Sendum um allt land.
www.pgs.is
pgs@pgs.is
s 586 1260
Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík
Alternatorinn eða
startarinn bilaður?
Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is
OKKAR ÆR OG KÝR
— STARTARAR OG ALTERNATORAR —
jardir.is
Kurlararnir komnir
Ansi öflug verkfæri með 15 hp
bensínmótor, blæs kröftuglega
frá sér.
Tekur allt að 100 mm. Auka
hnífasett fáanlegt.
Verð á samsettu tæki
kr 259.000.- með vsk.
Vír og lykkjur ehf. S. 772-3200
Frumleg útgáfa af hinu heimsþekkta hanastéli White Russian:
Kokteill úr sauðamjólk
Andri Davíð Pétursson heldur úti
heimasíðunni viceman.is þar sem
hann fjallar um allt sem viðkem-
ur fljótandi veigum en hann held-
ur líka úti hlaðvarpinu „Happy
Hour með The Viceman“. Andri
er framreiðslumaður að mennt og
hefur vakið athygli fyrir að fara
sínar eigin leiðir þegar kemur að
blönd un drykkja, svo ekki kom það
mörgum á óvart þegar hann kynnti
til leiks nýjan íslenskan kokteil úr
sauðamjólk.
Á undanförnum árum hefur Andri
þróað sinn eigin barþjónastíl sem
byggist að miklum hluta á nýtingu
íslensks hráefnis eins og villtum
jurtum og öðru sem fáum dettur
í hug að geti nýst í drykki. Andri
hefur á síðastliðnum árum sérhæft
sig í drykkjargerð. Árið 2016 vann
Andri fyrstu World Class Bartender
of the year-keppnina sem haldin var
á Íslandi. Síðar sama ár keppti hann
á móti 56 bestu barþjónum heims í
aðalkeppni World Class Bartender of
the Year í Miami.
Rússnesk rolla
Í maí lá leið Andra á Skarð í
Lundar reykjadal þar sem hann
aðstoðaði frændur sína í sauðburði.
Þar datt Andra í hug að búa til
frumlega og skemmtilega útgáfu
af hinu heimsþekkta hanastéli
White Russian, eða hvítum rússa.
Upprunalega uppskriftin kallar á
vodka, kaffilíkjör og rjóma en Andri
vildi prófa óhefðbundna nálgun og
skipti rjómanum út fyrir sauðamjólk.
Var mjólkin sótt beint á spena inni
í fjárhúsi og drykkurinn hristur á
staðnum. Útkoman kom skemmtilega
á óvart og varð til nýr drykkur sem
fékk nafnið Rússnesk rolla.
Þann 28. maí veitti markaðsstofan
Icelandic Lamb veitingastöðum Award
of Excellence-viðurkenningar og bauð
Andri gestum að smakka þessa nýjustu
viðbót við íslenska drykkjarmenningu.
Aðspurður sagði Andri sauðamjólkina
einstaka vegna þess hve fitusprengd
hún er. „Áferðin er einstaklega mjúk
og ljúffeng sökum þess, þar að auki
hentar sauðamjólk vel til kokteilgerð-
ar af því að þurrefnisinnihald henn-
ar er hátt.“ Rannsóknir hafa sýnt að
próteinsamsetning sauðamjólkur er
önnur en kúamjólkur og gæti fólk
sem hefur óþol gagnvart kúamjólk
í einhverjum tilfellum neytt sauða-
mjólkurvara eins og Rússneska rollu
án óþæginda.
Sauðamjólk til manneldis
Ísland er gott dæmi um land þar sem
nýting á sauðamjólk til manneldis
hefur lagst af vegna mikilla breytinga
í landbúnaði. Mjólk sauðkindarinnar
hefur haft töluverða þýðingu í fæðu-
öflun mannkyns í gegnum tíðina en
vinsældir hennar hafa dalað tölu-
vert síðustu aldir. Í sumum löndum
hefur þó hefð fyrir nýtingu hennar
lifað góðu lífi þrátt fyrir hraða þróun
landbúnaðar. Algengast er að mjólkin
sé nýtt til ostagerðar en sauðaostar
eru eftirsótt og verðmæt matvara víða
um heim.
Þó nokkrar tilraunir hafa verið
gerðar til þess að hefja nýtingu á sauð-
fjármjólk á Íslandi og hafa þær gengið
misvel. Í dag fer framleiðsla á matvör-
um úr sauðamjólk fram á Egilsstöðum
í Fljótsdal en þar mjólkar Ann-Marie
Schlutz sauðfé á sérstökum mjalta-
bás. Fyrirtæki hennar, Sauðagull ehf.,
stefnir að því að endurvekja íslenska
sauðamjólkurhefðir og framleiða
nútímalegar matvörur úr mjólkinni, til
dæmis osta og súkkulaði. Það má því
segja að mikill kraftur sé í nýsköpun
með sauðamjólk í dag og leynast næg
tækifæri fyrir þessa vannýttu auðlind
í framtíðinni.
Rússnesk rolla
30 ml vodka
30 ml kaffilíkjör
30 ml sauðamjólk
Öll hráefni hrist saman án klaka og
svo með klaka.
Kokteillinn sigtaður í kælt glas með
klaka.
/VH
Framreiðslumaðurinn Andri Davíð Pétursson hristir rússnesku rolluna.
Rússnesk rolla, drykkur þar sem mjólkin kemur ylvolg úr ærspena. Myndir / Aðsendar