Bændablaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 1
Sápur og egg til sölu
1814
Vinnueftirlit í landbúnaði:
Fólk sér ekki hætturnar
20–21
Búseta
á Bifröst
15. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 30. júlí ▯ Blað nr. 568 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Hin þýska Fee Zanke frá fyrirtækinu Sprettu kynnti og seldi grænsprettur, sem þau rækta í miklu úrvali, á markaði Austurlands Food Coop á Skúlagötu á dögunum. Fyrirtækið framleiðir yfir 20
tegundir af grænsprettum sem seldar eru í gegnum Heimkaup, Melabúðina og Krónuna á Granda en ásamt því er opið hús hjá fyrirtækinu alla laugardaga á Fiskislóð úti á Grandagarði. Fyrirtækið
vinnur nú að því að finna fleiri sölustaði en að sögn Fee hefur virkað vel að vera sýnileg og hitta viðskiptavini beint sem vilja gjarnan smakka og prófa vörurnar áður en þeir kaupa þær. Mynd / TB
Hámarksverð á greiðslumarki
mjólkur færir greininni stöðugleika
– Verð fyrir mjólkurkvóta verður að hámarki 294 krónur á lítra. Dregur úr óvissu í mjólkurframleiðslunni, segir formaður kúabænda.
Framkvæmdanefnd búvöru samn
inga samþykkti með ein földum
meiri hluta atkvæða að leggja til við
land búnaðarráðherra að hámarks
verð á næsta markaði með greiðslu
mark í mjólk verði þrefalt afurða
stöðvaverð, eða 294 kr. Ákvörðunin
á að gilda fram að næstu endur
skoðun samnings um starfsskilyrði
naut gripa ræktarinnar árið 2023.
Fulltrúar bænda í fram kvæmda
nefnd búvörusamninga höfðu áður lagt
til tvöfalt afurðastöðvaverð sem ætti
að gilda út samningstíma nautgripa
ræktarsamnings til ársins 2026. Ekki
náðist sátt um þá tillögu innan nefndar
innar og því varð úr að Landssamband
kúabænda og Bændasamtök Íslands
lögðu fram sameiginlega tillögu í
framkvæmdanefndinni þar sem lagt
var til þrefalt afurðastöðvaverð sem
verðþak á greiðslumark út samningstí
mann. Fram kom í þeim rökstuðningi,
sem tillögunni fylgdi, að ljóst væri
að bændur vildu hafa hámarksverð
á markaði og skipti þar stöðugleik
inn mestu máli svo hægt sé að vinna
rekstraráætlanir.
Þrýstingur á breytingar
Mikill þrýstingur hefur verið á
breytingar á fyrirkomulagi kvóta
markaðar, m.a. vegna nýlegrar
ákvörðunar um lækkun á verði um
frammjólkur úr 29 kr. í 20 kr. á lítr
ann. Eftirspurn eftir greiðslumarki
er gríðarleg en framboðið lítið. Það
sýndi sig í niðurstöðum síðasta mark
aðar 1. apríl sl. þegar hámarksverð var
185 krónur eða sem nam þá tvöföldu
lágmarks afurðastöðvaverði. Á þeim
markaði voru 9 gild sölutilboð og 218
gild kauptilboð. Greiðslumark sem
boðið var fram voru alls 586.046 lítrar
en óskað var eftir 9.836.190 lítrum.
Eftir spurnarmagn var því tæplega
sautjánfalt á við framboðsmagnið.
Gera ráð fyrir auknu framboði
Arnar Árnason, formaður Lands
sambands kúabænda, segist gera ráð
fyrir því að breytingin á hámarksverðinu
feli í sér aukið framboð á greiðslu
marki til sölu. Hann segist jafnframt
vona að það muni takast að sætta sem
flest sjónarmið varðandi viðskipti með
greiðslumark. Nú dragi úr óvissu sem
færi greininni ákveðinn stöðugleika.
„Staðan hefur auðvitað verið mjög
erfið undanfarin ár og nær algjört frost
verið með viðskiptin. Ég tek það skýrt
fram að um hámarksverð er að ræða en
ekki fast verð og bændur haga auðvitað
sínum tilboðum eftir því sem passar
fyrir þeirra rekstur.“
Komið til móts við nýliða
Arnar segir að nú sé búið að skýra
betur hvernig forkaupsréttur nýliða á
markaðnum gengur fyrir sig. „Nýliðar
eiga forkaupsrétt á 5% af því magni
sem í boði er hverju sinni og mun
það hlutfall skiptast milli nýliða og
engra annarra í samræmi við þann
lítrafjölda sem þeir óskuðu eftir að
kaupa. Það greiðslumark sem þá er
eftir, eða hin 95%, eru svo boðin
öllum öðrum kaupendum á sama
hátt, sem og aðilum sem nutu for
gangs. Þetta virkar því núna á sama
hátt og þegar innlausn ríkisins var við
lýði. Kvótamarkaðurinn byggist upp
á jafnvægisverði og því sitja allir við
sama borð þegar kemur að 95% af
framboðnu magni. Með reglum um
hámarksverð, ásamt hámarki á hvað
hver framleiðandi getur keypt mikið
magn á hverjum markaði og að enginn
getur átt meira en sem nemur 1,2% af
heildargreiðslumarki hvers árs, ætti
staða nýliða ekki að vera ólík stöðu
annarra sem óska eftir greiðslumarki
í gegnum markaðinn,“ segir Arnar.
Á markaði sem haldinn verður
þann 1. september verður hámarks
verð 294 kr. og mun krónutalan
uppfærast samhliða breytingum á
afurðastöðvaverði framvegis. Næsti
markaður með greiðslu mark er 1.
september næstkomandi en bændur
þurfa að skila inn tilboðum um kaup
eða sölu fyrir 10. ágúst. /TB