Fréttablaðið - 22.08.2020, Qupperneq 6
Barnabókaverðlaun
Guðrúnar Helgadóttur
Reykjavíkurborg auglýsir hér með eftir óbirtu handriti að skáldverki fyrir börn
eða unglinga, frumsömdu á íslensku, til að keppa um Barnabókaverðlaun
Guðrúnar Helgadóttur. Verðlaununum verður úthlutað í þriðja sinn að vori
2021.
Verðlaun að upphæð 1 milljón króna verða veitt fyrir eitt handrit.
Þriggja manna dómnefnd metur verkin og eru meðlimir hennar tilnefndir af
menningar-, íþrótta – og tómstundaráði Reykjavíkurborgar, Rithöfundasam-
bandi Íslands og Reykjavík bókmenntaborg UNESCO.
Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem
hann ákveður að starfa með. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert innsent
handrit fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka
má fella verðlaunaafhendinguna niður það árið.
Handritum skal skilað í þríriti og undir dulnefni, en nafn og símanúmer höf-
undar fylgi með í lokuðu umslagi. Ef um myndskreytt handrit er að ræða er
ekki tekið á móti frummyndum, aðeins ljósritum.
Handrit berist í síðasta lagi mánudaginn 11. janúar 2021.
Utanáskrift:
Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur
b.t. Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO
Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík
Í apríl 2018 samþykkti borgarráð að frá 2019 verði Barnabókaverðlaun Guðrúnar
Helgadóttur veitt árlega að vori fyrir handrit að nýrri barna eða ungmennabók.
Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir hlutu Barnabókaverðlaun
Guðrúnar Helgadóttur 2020 fyrir handrit sitt að bókinni Blokkin á heimsenda.
uppskera!
Ný íslensk
... hjá ok
ku
r
í
d
a
g
H
já
b
ó
nd
a í gær ...
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
TÆKNI Þann 1. ágúst síðastliðinn
komumst rannsakendur hjá net-
öryggis- og tæknif yrirtækinu
Comparitech að því að gagna-
grunnur, með upplýsingum um 235
milljónir notenda Instagram, Tik-
Tok og YouTube, hefði lekið og væri
opinn hverjum sem er. Var þetta
f lokkað niður í fjóra bunka, tvo
tæplega 100 milljóna bunka með
Instagram-reikningum, einn með
42 milljónum TikTok-reikninga og
einn með 4 milljónum frá YouTube.
Nánast allir innihéldu full nöfn
notenda, prófílnöfn, mynd og
lýsingu á reikningnum og einn af
hverjum fimm innihélt netfang og
símanúmer. Þá voru einnig upp-
lýsingar um fylgjendur, aldur, kyn,
staðsetningu, hvað þeir setja læk
við, fjölda og hversu hratt þeim
fjölgar.
Paul Bischoff, ritstjóri hjá Com-
paritech, segir að þessar upplýs-
ingar myndu að öllum líkindum
best nýtast netglæpamönnum sem
reyna að fiska lykilorð fólks og þeim
sem senda fjöldapóst, eða spam.
„Jafnvel þó að þessar upplýsingar
séu þegar aðgengilegar, verða þær
mun verðmætari þegar búið er
að setja þær upp í vel skipulagðan
gagnagrunn heldur en hverjar fyrir
sig,“ segir hann.
Kom í ljós að lekann mátti rekja
til fyrirtækisins Social Data í Hong
Kong sem tók gagnagrunninn niður
eftir ábendingar frá Comparitech.
„Við söfnum upplýsingum og
bætum við þær gagnlegum punkt-
um fyrir viðskiptavini okkar, sem
nota þær aðeins í ærlegum tilgangi.
Það er mjög miður að þetta hafi
komið fyrir en við löguðum vanda-
málið um leið og það kom upp,“
segir í tilkynningu Social Data.
Varar Comparitech notendur
umræddra miðla sérstaklega við
lykilorðaveiðurum á næstunni
vegna þessa leka.
„Þetta er allt of algengt, því
miður,“ segir Theódór Ragnar Gísla-
son, tæknistjóri netöryggisfyrir-
tækisins Syndis. „Svona netfanga-
listar eru alls staðar, fólk gefur þetta
upp á samfélagsmiðlum og þessu er
safnað saman. Þessir stóru gagna-
grunnar eru mjög nytsamlegir því
hægt er að nota þá til að ná til svo
margra, með lykilorðaveiðum og
fleiru, á sjálfvirkan hátt. Fólk fær þá
tölvupóst frá hökkurum stílaðan á
það með nafni.“
Ekki liggja fyrir tölur um hversu
margir Íslendingar eru „hakkaðir“
á hverju ári, það er, brotist inn á
reikninga þeirra. En Theódór segir
þetta mjög algengt. Sá sem þetta
skrifar er þar ekki undanskilinn.
Í sumar var brotist inn á reikning
á tölvuleikjasíðunni Steam og
Twitter. Reynt hefur verið að brjót-
ast inn á f leiri reikninga og tölvu-
póstum frá lykilorðaveiðurum rignt
inn.
Theódór leiðir mig í gegnum það
hvernig ég get séð hvaða þekktum
innbrotum og gagnalekum ég hef
lent í, á síðunni haveibeenpw-
ned. com. Kemur þar í ljós að net-
fangið kemur fram í tveimur lekum.
Annars vegar í leka á tölvuleikjasíðu
frá árinu 2018 og hins vegar í Voda-
fone-lekanum fræga árið 2013.
Theódór segir hakkara geyma
lykilorðalista úr mörgum af þessum
gagnalekum. „Það verður auðvelt
fyrir hakkarana að skrá sig inn í
hinar og þessar skýjaþjónustur
með þínu lykilorði eða af brigði af
því,“ segir hann. Mynstrinu er þá
breytt með sjálfvirkum tólum, það
sem kallast „password spraying“,
því mannskepnan hugsi gjarnan
í mynstrum og velji sér sömu eða
svipuð lykilorð í hvert skipti.
„Ef þú ert ekki búinn að virkja
tvíþátta auðkenningu er hægt að
brjótast inn í tölvupóstinn þinn,“
segir Theódór spurður hvað fólk
geti gert til að verja sig. En hún getur
til dæmis verið í formi SMS-skeytis
eða með sérstöku smáforriti.
Sem betur fer hafði innbrot í
reikninga mína engar aðrar afleið-
ingar en þær að geta ekki spilað
tölvuleiki í nokkra klukkutíma.
Auðvelt reyndist að ná stjórn á
reikningunum aftur. En það er
ástæða fyrir því að hakkarar reyna
að komast yfir reikninga, sér í lagi ef
til dæmis greiðslukortaupplýsingar
eru hengdar við þá.
„Af leiðingarnar geta verið fjár-
hagslegar eða persónulegar,“ segir
Theódór. „Sumir glata öllum ljós-
myndunum sínum eða skrifuðum
samskiptum við einhvern nákom-
inn. Þetta er eins og innbrot á heim-
ili.“ kristinnhaukur@frettabladid.is
Instagram, TikTok og
YouTube gögn láku út
Nýlega uppgötvaðist risa gagnaleki hjá fyrirtæki sem hafði safnað upplýs-
ingum um notendur Instagram, TikTok og YouTube. Tæknistjóri Syndis segir
þetta of algengt og hakkarar hafi ýmis tól til að brjótast inn á reikninga fólks.
Reikningsupplýsingar í stórum bunkum eru mjög nytsamlegar fyrir netglæpamenn. MYND/GETTY
Ef þú ert ekki búinn
að virkja tvíþátta
auðkenningu er hægt að
brjótast inn í tölvupóstinn
þinn.
Theódór Ragnar
Gíslason, tækni-
stjóri Syndis
REYKJAVÍK Í sumar var lokað fyrir
rafmagn hjá átta einstaklingum hjá
Orkuveitu Reykjavíkur og 39 for-
eldrar voru í uppsagnarferli vegna
vanskila leikskólagjalda. Þetta
kemur fram í svari Fjármála- og
áhættusviðs borgarinnar við fyrir-
spurn Sönnu Magdalenu Mörtu-
dóttur, um fjölda þeirra sem ekki
njóta þjónustu frá Reykjavíkur-
borg eða fyrirtækja í hennar eigu
vegna vanskila.
Benti Sanna á mikilvægi þess að
enginn væri án grunnþjónustu vegna
vanskila á meðan kórónaveirufar-
aldurinn geisar. Þegar barn fær upp-
sögn á leikskólavist vegna vanskila
foreldra þá er fjölskyldunni vísað
til félagsráðgjafa og þá frestast upp-
sögnin í allt að þrjá mánuði á meðan
unnið er úr vanskilunum. Af þeim
39 sem voru í uppsagnarferli þá, var
hluti þeirra ekki með börn sem fara
í leikskóla í haust. Alls voru átta for-
eldrar barna sem þurfa að ganga frá
vanskilum til að geta þegið boðið um
leikskólavistina.
Þá fengu foreldrar sjö barna
ítrekun á uppsögn eftir að hafa
ekki staðið við samning um greiðslu
vanskila. Þau höfðu frest til næstu
mánaðamóta til að gera vanskilin
upp. – bþ
Átta voru án rafmagns í Reykjavík
39 foreldar voru í
uppsagnarferli vegna
vanskila leikskólagjalda
2 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð