Fréttablaðið - 22.08.2020, Page 26

Fréttablaðið - 22.08.2020, Page 26
Kórónuveirufaraldurinn geisar, efnahagurinn versnar, félagsleg einangrun eykst og þannig mætti lengi halda áfram. Eina vonin er bóluefni er sagt og það er ekki alveg á næsta leiti. Ég velti því fyrir mér hvort annars konar bóluefni sé ef til vill hluti af lausninni. Reyndar hefur töluvert borið á því en enn fleiri mættu fá sér þessa bólusetningu. Hún er kærleikur, umburðarlyndi og samhugur. Þetta er bólusetning sem búið er að margreyna í aldanna rás og hefur sýnt sig að virkar mjög vel. Það besta við þetta bóluefni er að það þarf ekki að bíða eftir framleiðslu eða athuga birgðastöðu, það er alltaf til í ríkulegu magni fyrir þá sem vilja þiggja. En hvernig tekur maður inn þetta bóluefni? Það er heldur ekkert vandamál. Það þarf enga sérfræðinga eða sprautu til heldur getur hver og einn notað sína aðferð við að innbyrða bóluefnið. Og það besta er að allir finna áhrifin, þetta virkar strax. Bólefnið hefur í för með sér að sá sem hefur verið bólusettur sýnir ábyrgð og vilja til að tryggja öryggi og hag annarra og dómharka og eigingirni hverfur á braut. Nú er tækifæri til að sýna samhug og kærleika. Nú er átakið „Ekkert barn útundan“ í gangi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, við erum að safna fjármunum til að geta stutt efnalitla foreldra grunnskólabarna í upphafi skólaárs. Félagsráðgjafar Hjálparstarfs kirkjunnar taka í síauknum mæli á móti fjölskyldum sem eru í þeirri stöðu að hafa minna en ekkert á milli handanna eftir að fastaútgjöld heimilisins hafa verið greidd um mánaðamót. Hvaða útgjöld eru þetta? Jú, húsnæðiskostnaður, sími, rafmagn og hiti, tryggingar, skólamáltíð, samgöngu- kostnaður – og afborgun lána. Það er nefnilega þannig að þegar fjárhagsstaðan er endurtekið í mínus getur hún ekki annað en versnað. Þá eru tekin yfirdráttarlán og fólk festist í vítahring fátæktar. Kórónuveirufaraldurinn hefur leitt til þess að enn fleiri upplifa tekjulækkun og jafnvel tekjumissi. Þegar fjárhagsstaðan er neikvæð til lengri tíma er hætt við því að börnin líði fyrir. Frístundastyrkurinn dugar fyrir frístund eftir skóla en þá er ekkert eftir í iðkunargjöld hjá íþróttafélögum. Þá er heldur ekkert eftir til að kaupa íþróttabúnað eða greiða fyrir ferðir með hinum krökkunum þar sem dýrmæt félagsleg tengsl verða. Þegar fjárhagsstaðan er í mínus til lengri tíma er erfitt að greiða skólagjöld í framhaldsskóla og dekka efniskostnað. Það er eiginlega ómögulegt að fæða og klæða börnin almennilega hvað þá að kaupa handa þeim síma eða hlaupabretti eins og hinir krakkarnir fá. Innbyrðum bóluefnið samhug og kærleika og látum gott af okkur leiða. Ein leiðin er að taka þátt í söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar. Fyllum svo á bóluefnið eftir þörfum það er enginn hætta á ofskömmtun! Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar Framkvæmdastjóri: Bjarni Gíslason Margt smátt …, 2. tbl. 32. árg. 2020 Ábyrgðarmaður: Kristín Ólafsdóttir Myndir: Forsíða og bls. 3 Rakel Ósk Sigurðardóttir fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Aðrar myndir: Hjálparstarf kirkjunnar og samstarfsaðilar Prentvinnsla: Umbrot: Pipar\TBWA Prentun: Ísafoldarprentsmiðja Annars konar bóluefni Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar ÞÖKKUM STUÐNINGINN Dedicated to People Flow Sími 6178830 2 – Margt smátt ...

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.