Fréttablaðið - 22.08.2020, Síða 61

Fréttablaðið - 22.08.2020, Síða 61
Eitt af markmiðum okkar er að auka við afþreyingu og á næstu dögum býður Smárabíó gestum í nýjan heim sýndarveruleika, laser- tags og skemmtunar. Smáralind er stærsta verslun-armiðstöð landsins, staðsett í Kópavogi og eitt af fjölsótt- ustu húsum landsins. Í Smáralind má finna ótrúlegt úrval verslana og veitingastaða, flaggskipsverslun H&M á Íslandi, H&M home, einu Zöru-verslun landsins, einu Monki- verslun landsins og einu Weekday- verslun landsins. Þá er Smárabíó, mest sótta kvikmyndahús lands- ins, aðdráttarafl fyrir húsið. Breyttar áherslur í COVID „Eins og gefur að skilja hefur COVID breytt landslaginu í smá- sölu á landinu á þann veg að nærri öll neysla er innlend. Til marks um það náði innlend kortavelta Íslendinga nýjum hæðum í júlí síðastliðnum og var 27,4 prósent meiri en í júlí í fyrra. Við sáum sambærilegar tölur í Smáralind, þar sem veltuaukningin nam 26 prósentum á tímabilinu maí-júlí, miðað við árið í fyrra,“ segir Tinna Jóhannsdóttir, markaðsstjóri Smáralindar. Hún segir mjög góðan gang í verslunum Smáralindar síðan nýr raunveruleiki blasti við. „Við erum lánsöm með það hversu vel hefur gengið. Við stór- jukum þrif og sóttvarnir í húsinu, rekstraraðilar hafa staðið sig ein- staklega vel í að sinna sínum sótt- vörnum og fjöldatakmörkunum, og í mörgum tilfellum hefur verið um hálfgerða jólavertíð að ræða. Við erum að sjá aukningu í gesta- fjölda og veltu í húsinu og erum því afar þakklát þótt auðvitað hafi þetta verið erfiður tími. Fækkun erlendra ferðamanna hefur lítil sem engin áhrif haft á okkur þar sem þeir hafa verið mjög lágt hlut- fall af gestum hússins,“ segir Tinna. Í Smáralind hafi líka verið tekin algjör u-beygja í markaðsmálum. „Eins og gefur að skilja erum við ekki að halda neina stórviðburði sem voru þungamiðjan í markaðs- starfinu áður en landslagið breytt- ist. Núna er allur fókus á að halda húsinu öruggu, sótthreinsuðu og koma í veg fyrir hópamynd- anir. Við erum heppin að húsið er gríðarlega stórt, vítt til veggja, hátt til lofts og að verslunarrými Smáralindar eru hlutfallslega mjög stór,“ segir Tinna. Nýr vefur Smáralindar Á dögunum setti Smáralind í loftið nýjan vef sem fékk nafnið HÉR ER (herer.is). „Vefurinn er tísku- og lífsstílsvef- ur sem veitir lesendum innblástur, hugmyndir og ráð um allt sem viðkemur tísku, fegurð, hönnun og lífsstíl,“ upplýsir Tinna. „Í raun á vefurinn að þjóna tilgangi nýju bestu vinkonunnar/ vinarins á netrúntinum. Við höfum eflt markaðssetningu okkar á samfélagmiðlunum og á hverjum einasta degi erum við að setja inn nýtt efni sem miðar að því að gefa góðar hugmyndir og ráð varðandi vöruúrval sem þjónustuaðilar hússins bjóða upp á. Af nógu er að taka enda úrvalið nærri endalaust.“ Aukin afþreying Verslunarmiðstöðvar eru upp- lifunarhús og til framtíðar mun það spila enn stærri rullu í starfi Smáralindar að auka við upplifun gesta sem sækja húsið heim. „Eitt af markmiðum okkar til næstu ára er að auka við afþrey- ingu í húsinu og hefur fyrsta skrefið í þá átt þegar verið tekið með stærra afþreyingarsvæði Smárabíós sem verður opnað á næstu dögum. Smárabíó mun bjóða gestum í nýjan heim sýndar- veruleika, lasertags og skemmt- unar og stefnt er að því að það verði einn stærsti leikvöllur landsins fyrir fjölskyldur og hópa af öllum stærðum og gerðum,“ upplýsir Tinna. Fyrsta Breeam In Use- vottaða hús landsins Reginn hf., eigandi Smáralindar, hefur sett sér metnaðarfulla sjálf- bærnistefnu sem felur meðal annars í sér að félagið ætlar sér að vera leiðandi í umhverfisvottun fasteigna, þar sem fylgt er alþjóð- legum kröfum um umhverfisþætti, áhættustýringu og rekstur. „Reginn varð einmitt á dögunum fyrst íslenskra fasteignafélaga til að ljúka sölu á grænum skuldabréf- um,“ upplýsir Tinna. „Tilgangur þeirrar útgáfu er að fjármagna og endurfjármagna umhverfisvænar fjárfestingar, umhverfisvottaðar fasteignir og önnur verkefni sem samræmast umgjörð félagsins um græna fjármögnun.“ Liður í þessari vegferð var að fá umhverfisvottun á Smáralind sem leit dagsins ljós í desember á síðasta ári. „Smáralind varð fyrst íslenskra fasteigna til að fá Breeam In Use- vottun sem er alþjóðlegur staðall og vottunarkerfi fyrir byggingar á rekstrartíma þeirra. Hún metur frammistöðu okkar í umhverfis- málum og sjálfbærni. Við erum afar stolt af þessari vottun enda er Smáralind sérlega stórt og flókið mannvirki og dýrt í rekstri en á sama tíma er gríðarlega mikilvægt að hlúa að umhverfisþáttum í öllum rekstri hússins.“ Smáralindarsvæðið orðið þungamiðja Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Smáralindarsvæðinu síðustu ár sem hefur styrkt Smáralindina gríðarlega. „Norðurturninn hýsir nú um 1.000 starfsmenn á degi hverjum auk þess sem fjöldi íbúa hefur stóraukist á svæðinu með tilkomu nýrra hverfa og aukins byggingar- magns á svæðinu,“ segir Tinna, og það hefur styrkt gestaflæði hússins og dreift því betur yfir daginn. „Nú er húsið fullt af lífi allan dag- inn og fram á kvöld og það hefur skilað sér í bættum rekstri. Svæðið í heild sinni er orðið eftirsótt fyrir vinnustaði en stórum vinnustöð- um á svæðinu hefur fjölgað mikið undanfarin ár og mikil eftirspurn er eftir verslunarrými í Smáralind þessa dagana.“ Aukið aðgengi fyrir rafbíla- eigendur og hjólafólk Á síðasta ári var rafhleðslustæðum fjölgað í Smáralind og nú er unnið að magnaðri hjólageymslu fyrir viðskiptavini og starfsfólk. „Þó að í kringum Smáralind séu gríðarmörg bílastæði, nærri 3.000 talsins, er mikilvægt að hlúa líka að gangandi og hjólandi viðskipta- vinum sem hefur stórfjölgað. Því erum við að undirbúa fullkomna aðstöðu þar sem fólk getur komið og hlaðið rafhjólin sín, pumpað í dekkin og geymt hjólin á öruggum og góðum stað. Borgarlína mun síðan tengjast Smáralind á næstu árum og við erum spennt að vinna enn betur að tengingum að húsinu okkar sem er eitt af fjölsóttustu húsum landsins,“ segir Tinna. Framtíð smásölu á landinu Verslanafermetrum á heimsvísu fer fækkandi og margir eru að draga saman seglin vegna aukinnar net- sölu. „Slíkt er ekki að óttast hérlendis í sama mæli hvað varðar versl- unarkjarna eins og Smáralind. Við erum einstaklega vel sett og „future proof“ hvað þetta varðar,“ segir Tinna. „Við eigum hlutfallslega fáar verslunarmiðstöðvar og versl- unarkjarna miðað við höfðatölu. Í Svíþjóð til dæmis, þar sem 10,2 milljónir manna búa, eru 390 verslunarmiðstöðvar og versl- unarkjarnar. Það gera um 26.000 manns á hverja miðstöð/kjarna. Á Íslandi erum við um 365.000 með Smáralind, Kringluna, Glerártorg og miðbæinn. Það gera 91.000 manns á hverja miðstöð/kjarna. Þetta er öfundsverð staðreynd fyrir okkur Íslendinga og við getum vel haldið þeim öllum í góðum gangi næstu áratugina, jafnvel þó að netsala fari á enn meira flug en nú hefur orðið. Hlutfall netverslunar af heildarverslun var 9 prósent þegar samkomutakmarkanir voru sem mest íþyngjandi og hlutfallið verður að mínu mati aldrei mikið hærra en þetta. Engu að síður er það mikilvægara núna fyrir okkur sem rekum verslunarmiðstöðvar að hugsa um þær sem upplifunar- og samkomuhús, leggja þunga í að veita góða þjónustu í verslununum og auka stöðugt við sýnileika á net- inu, sem er búðargluggi nútímans,“ segir Tinna. Skemmtu þér og skoðaðu smaralind.is og herer.is. Stærsti leikvöllur landsins Í Smáralind hefur ríkt jólavertíð síðan heimsfaraldurinn brast á og húsið iðar af lífi. Í smíðum er ný hjólageymsla og nýja vefsíðan er eins og besti vinur á ferð um stærsta búðarglugga nútímans. Tinna Jóhannsdóttir er markaðsstjóri Smáralindar. MYND/ALDÍS PÁLS Smáralind er skemmtilegt upplifunarhús með spennandi sérverslunum í bland við veitingastaði og afþreyingu fyrir alla aldurshópa. MYND/SAGA SIG FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 2 2 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 KÓPAVOGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.