Fréttablaðið - 22.08.2020, Page 64
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Bókaðu bás á
www.extraloppan.is
GEFÐU HLUTUNUM NÝTT LÍF
fatnaður & fylgihlutir
húsbúnaður
hönnunarvara o.fl
Á YouTube er hægt að finna gríðarlega mikið af vit-leysu, skemmtun, fölskum
upplýsingum og samsæriskenn-
ingum, en þar er líka hægt að fá
góða fræðslu og kennslu. Það er
hægt að finna margar verri leiðir
til að verja frítíma sínum en að
sökkva sér í skemmtilegt gláp
og góða fræðslu og á YouTube
eru ýmsar rásir sem eru hann-
aðar til að fræða almenning, oft
á skemmtilegan og aðgengilegan
hátt.
Þar sem auðvelt er að nálgast
efni á YouTube og það er ókeypis
er um að gera að nýta sér þessa
auðlind, en það þarf samt að
passa að velja réttu rásirnar, svo
upplýsingarnar séu áreiðanlegar
og gagnlegar. Hér eru fimm góðar
rásir sem er þess virði að kíkja á,
en það er rétt að taka fram að þær
eru allar á ensku.
5-Minute Crafts
Þessi rás var stofnuð árið 2016 og
hefur yfir 67 milljónir áskrifenda.
Hún hentar sérstaklega vel fyrir
fólk sem finnst gaman að vinna
í höndunum. Þarna er farið yfir
alls kyns handverk og leiðir til
að auðvelda sér lífið og jafnvel
spara nokkrar krónur. Stór hluti
af efninu fjallar um tísku eða
matargerð en viðfangsefnin eru
mjög fjölbreytt og þarna er hægt
að læra ótalmargt.
Það er lítil þörf fyrir ensku-
kunnáttu til að geta nýtt mynd-
böndin því yfirleitt er ekkert
talað í þeim og trixin sem eru
sýnd eru yfirleitt gerð með ein-
földum hlutum sem f lestir hafa
aðgang að. Myndböndin henta
öllum aldurshópum, en það eru
til systurstöðvar sem eru sérstak-
lega ætlaðar krökkum og stelpum,
sem heita 5-minute crafts kids og
5-minute crafts girls.
Kurzgesagt – In a Nutshell
Þessi rás var stofnuð 2013 og er
með yfir 12 milljónir áskrifenda.
Besta fræðslan á YouTube
Það er mikið af ókeypis efni fyrir fróðleiksfúsa á netinu og þó að það eigi auðvitað ekki að trúa
öllu sem þar er að finna eru til rásir á YouTube sem veita góða fræðslu og njóta mikilla vinsælda.
Finna má verri
leiðir til að eyða
frítíma sínum
en að sökkva
sér í skemmti-
legt gláp og
góða fræðslu og
á YouTube eru
ýmsar rásir sem
eru hannaðar
til að fræða
almenning, oft
á skemmtilegan
og aðgengi-
legan hátt.
MYND/GETTY
Á YouTube er
heill hafsjór af
góðu fræðslu-
efni. Það þarf
bara að velja
rásir vel.
MYND/GETTY
Kurzgesagt þýðir „í hnotskurn“ á
þýsku og þar er reynt að útskýra
alheiminn með einu myndbandi
í einu. Kafað er ofan í alls kyns
fróðleg og misstór viðfangsefni og
vakin athygli á f lóknum ferlum
sem hafa áhrif á líf okkar en
við tökum alla jafna ekki eftir.
Myndböndin byggja á vandlegum
rannsóknum en eru teiknuð á
einfaldan hátt og reynt er að
gera vísindi bæði aðgengileg og
skemmtileg. Þau eru sjaldan meira
en 10 mínútur að lengd, þannig að
þau eru auðmelt.
CrashCourse
Rásin var stofnuð árið 2006 af
bræðrunum Hank og John Green
og hefur yfir 11 milljónir áskrif-
enda. Þar eru f lókin málefni
útskýrð með stuttri yfirferð þar
sem gerð er grein fyrir aðalatrið-
unum. Fjallað er um sögu, tölv-
unarfræði, eðlisfræði, stjarneðlis-
fræði, sálfræði og margt f leira. Í
myndböndunum er farið hratt
yfir en þau eru í léttum tón, sem
gerir þau aðgengilegri.
TED-Ed
Fræðslurás TED var stofnuð árið
2011 og hefur yfir 12 milljónir
áskrifenda. Rásin býður upp á
vandaða og fjölbreytta fræðslu
í myndbandsformi frá alls kyns
fræðingum. Það er bæði boðið
upp á teiknimyndir og fyrirlestra
og fjallað um allt frá Rómaveldi til
forna til nýjustu eðlisfræði.
Vsauce
Rásin var stofnuð árið 2007 og
hefur 16 milljónir áskrifenda. Þar
reynir Michael Stevens að svara
alls kyns spurningum sem vekja
forvitni hans, eins og „í hvaða
átt er niður?“ og „hvað er hraði
myrkurs?“. Hann hefur meðal
annars tekið viðtal við David
Attenborough og fengið f leiri
fræga gesti til sín.
Felix Kjellberg, eða PewDiePie, er með vinsælustu YouTube-rás í heimi og vefurinn er frekar þekktur fyrir afþrey-
ingu en fræðsluefni. Engu að síður er mikið af góðri fræðslu á YouTube. MYND/GETTY
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R