Morgunblaðið - 09.01.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020
DIMMALIMM
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Skoðið úrvalið á facebook
DimmalimmReykjavik
30%
50%
afsláttur
til
ÚTSALAN ER
HAFIN!
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Í vetrarhörkum gauka margir mat-
arbita að smáfuglunum til að auð-
velda þeim lífsbaráttuna. Jóhann Óli
Hilmarsson fuglafræðingur segir að
fóðrun fugla við hús og bæi njóti
vaxandi vinsælda en oft sé fólk að
vandræðast með hvað eigi að gefa
fuglunum. „Fuglarnir þurfa jafn
misjafna fæðu og tegundirnar eru
margar og til að auka fjölbreytni
þeirra fugla sem sækja í garða á
vetrum, er árangursríkast að gefa
fjölbreytt fóður,“ segir Jóhann Óli.
Snjótittlingur harður af sér
Almennt segir hann að smáfugl-
arnir séu harðgerir og eigi að þola
misjafna veðráttu. Snjótittlingur sé
sérstaklega harður af sér, hann eigi
heimkynni lengra í norðri en nokk-
ur annar spörfugl, t.d. á Grænlandi
og Svalbarða, og hann sé einn fárra
fugla sem sjáist á miðhálendi Ís-
lands á veturna. Langvarandi hörk-
ur og miklir umhleypingar geti haft
áhrif á stofna fuglanna og nefnir Jó-
hann Óli auðnutittling og glókoll í
því sambandi.
Aðspurður hvar fuglarnir haldi
sig þegar hríðin er mest segir hann
að starar og þrestir nátti sig helst
og leiti skjóls í trjám og þá einkum
grenitrjám. Snjótittlingar leiti frek-
ar skjóls í klettum eða á öðrum
skjólgóðum stöðum.
Jóhann Óli segir að í kuldum og
frosthörkum þurfi fuglarnir mikla
orku til að halda á sér hita og því sé
fita ein besta fæðan handa þeim og
margir gefi fuglum tólg, kjötsag,
flot og mör. Ýmsir blandi fitu saman
við aðra fæðu eins og brauð og korn.
„Slík fæða heldur oft í lífi í fuglum,
sem hafa hrakist hingað á haustin
og reyna að þreyja þorrann og
góuna. Nefna má hettusöngvara,
glóbrysting og ýmsar finkur sem
dæmi um þess háttar hraknings-
fugla,“ segir Jóhann Óli.
Algengast sé þó að gefa fuglunum
svonefnt fuglakorn, sem fæst í
verslunum, og er það sérstaklega
ætlað snjótittlingum. Þá selur
Fuglavernd hýðislaust sólblómafræ,
sem auðnutittlingar eru sólgnir í, og
snjótittlingar fúlsa heldur ekki við.
Landneminn krossnefur er einnig
frææta og tekur sólblómafræ. Jó-
hann nefnir að þrestir séu æstir í
epli, perur og aðra ávexti og vetr-
argestir eins og silkitoppur komi
stundum í epli.
Að sögn Jóhanns Óla sækja gló-
kollar lítið í æti, en sjáist samt iðu-
lega í görðum þar sem þeir sækja í
skordýr. Sama eigi við um músar-
rindla sem sæki frekar æti í fjöruna.
Vanafastir fuglar
Fuglar eru vanafastir og oft tekur
þá nokkurn tíma að finna fóðrið, en
þegar þeir hafa vanist fóðurgjöfum
halda þeir áfram heimsóknum sín-
um. Sumir hafa langtímaminni og
koma ár eftir ár í sömu garðana, að
sögn Jóhanns.
Fita og fræ hjálpa smá-
fuglum í vetrarhörkum
Fjölbreytt fóður
eykur fjölbreytni
Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson
Harðindi Auðnutittlingar eru sólgnir í sólblómafræ.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ríkislögmaður telur ekki að embætti
hans hafi sett nýtt fordæmi eða við-
mið til framtíðar með samningi um
greiðslu bóta til Ólínu Þorvarðardótt-
ur vegna brots
Þingvallanefndar
gegn henni við
ráðningu í stöðu
þjóðgarðsvarðar.
Við slíka samn-
ingsgerð sé stuðst
við dómafordæmi
en hvert tilvik
einnig metið út frá
aðstæðum.
Ríkislögmaður
fer með uppgjör bótakrafna sem
beint er að ríkissjóði, samkvæmt lög-
um um embættið. Í tilviki samninga
við Ólínu Þorvarðardóttur vísaði
Þingvallanefnd bótakröfum hennar til
ríkislögmanns. Kærunefnd jafnréttis-
mála hafði úrskurðað að Þingvalla-
nefnd hefði brotið gegn jafnréttislög-
um með því að ráða Ólínu ekki í starf
þjóðgarðsvarðar. Eins og fram hefur
komið samdist um að ríkið greiddi
Ólínu 20 milljónir í bætur vegna fjár-
tjóns hennar. Er þar tekið mið af
launum þjóðgarðsvarðar í átján mán-
uði en launin eru samkvæmt því rúm-
ar 1.100 þúsund á mánuði.
Fordæmi um átján mánaða laun
Einar Karl Hallvarðsson ríkislög-
maður segir almennt um slíka samn-
inga: „Við miðum við dómafordæmi
sem þekkt eru í málum af þessu tagi,
einkum varðandi óréttmæt starfslok.
Einnig dóma Hæstaréttar vegna fjár-
tjóns sem fólk hefur orðið fyrir vegna
brots á jafnréttislögum. Út frá þessu
reynum við að meta hvert tilvik.“ Seg-
ir hann að við slíka samninga sé oft lit-
ið til tímabils launa og það megi til
dæmis lesa út úr nýlegum dómi hér-
aðsdóms að miðað var við 18 mánaða
laun. Þegar metið er við hvaða tímabil
skuli miða sé allur skalinn undir. Í
þessu tilviki hafi verið ráðið í stöðuna
til fimm ára og verði að líta til þess.
Bótafjárhæðin ráðist þá af launum
sem viðkomandi hefði haft í tiltekinn
tíma.
Einar Karl segir að einnig þurfi að
líta til aldurs viðkomandi, það er að
segja möguleika hans á vinnumark-
aði, og hvort hann hafi laun eða at-
vinnuleysisbætur. Marga slíka þætti
þurfi að taka með í reikninginn.
Fram kom í viðtali við Láru V. Júl-
íusdóttur hæstaréttarlögmann í
blaðinu fyrr í vikunni að mál Ólínu
væri einstakt. Staða Ólínu hefði verið
sterk vegna þess að hæfustu einstak-
lingarnir hefðu aðeins verið tveir, karl
og kona, og vegna þess að ráðið hefði
verið í stöðuna til fimm ára en ekki
samkvæmt venjulegum uppsagnar-
fresti. Nefndi hún tvö fordæmi um
héraðsdóma um bótagreiðslur ríkis-
ins vegna brota á jafnréttislögum.
Annars vegar 500 þúsund króna
miskabætur vegna máls frá 2012 og
hins vegar 800 þúsund króna miska-
bætur vegna máls frá 2017. Miska-
bætur eru dæmdar vegna ófjárhags-
legs tjóns en ekki bætur vegna
fjártjóns eins og samið var um við
Ólínu.
Gísli Guðni Hall hrl. sagði í sömu
grein að ríkið hefði með máli Ólínu
sett ákveðið fordæmi um fjárhæð
bóta sem litið verði til í framtíðinni.
Einar Karl tekur ekki undir það
að verið sé að setja ný viðmið með
þessum samningi. Fallið hafi dómur í
Hæstarétti þar sem brot á jafnrétt-
islögum var talið grundvöllur til að
bæta fjártjón. Þá megi lesa út úr ný-
legum héraðsdómi að miðað hafi ver-
ið við 18 mánaða laun við ákvörðun
um bætur. „Við lítum til fordæma
um tímalengd og fjárhæðir og lítum
einnig til aðstæðna í hverju máli.
Reynum svo að ná sátt frekar en að
fara fyrir dóm,“ segir Einar Karl.
Af sérstökum fjárlagalið
Bætur sem ríkið er dæmt til að
greiða eða fellst á bótaskyldu eru
greiddar af sérstökum fjárlagalið
undir fjármálaráðuneytinu. Einar
Karl segir að ríkislögmanni sé falið
að annast uppgjör bótakrafna og
geri ráðstafanir til að bætur séu
greiddar af þessum tiltekna fjárlaga-
lið. Samningar séu ekki gerðir með
fyrirvara um samþykki ráðherra.
Embættinu sé treyst fyrir þessum
málum. Hann tekur fram að þetta
séu í eðli sínum ófyrirséð útgjöld en
reynt sé að áætla þau við fjárlaga-
gerð.
Litið var til dómafordæma
Ríkislögmaður segir að ekki séu sett ný viðmið með samningi um bætur til Ólínu Þorvarðardóttur
Embætti ríkislögmanns annast uppgjör bótakrafna Taka þarf marga þætti með í reikninginn
Morgunblaðið/Ómar
Þingvellir Úrskurðarnefnd jafnréttismála úrskurðaði að brotið hefði verið á Ólíniu Þorvarðardóttir við ráðningu.
Einar Karl
Hallvarðsson