Morgunblaðið - 09.01.2020, Page 48

Morgunblaðið - 09.01.2020, Page 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020 Þegar Erna lét okkur vita af fráfalli tvíburasystur sinnar, okk- ar kæru Lindu, þá varð ég algjör- lega bit. Þetta fannst mér og finnst ennþá óskiljanlegt. Linda? Getur þetta staðist? Í gegnum hugann hafa farið mörg skemmti- leg atvik og upplifanir með elsku- legri vinkonu á þessum rúmlega 40 árum sem eru liðin frá því ég hitti þær systur fyrst. Fyrsta minningin er frá því að við vorum allar mættar til að stunda nám við Íþróttakennara- skólann á Laugarvatni haustið 1976. Ég kom austur ásamt tveim- ur væntanlegum skólafélögum og Árni Guðmundsson skólastjóri tók á móti okkur í anddyrinu á heimavistinni. Hann bauð okkur velkomin og sagði okkur herberg- isnúmerin okkar og hvatti okkur til að fara með dótið okkar á sinn stað og síðan áttu allir að hittast eftir ákveðinn tíma. Ég fékk her- bergi nr. 10. „Altso Jóhanna, uppi gjörðu svo vel.“ Ég fór upp með mitt og inn langan gang og fann herbergi 10, dröslaði öllu inn og ætlaði svo að drífa mig á snyrt- inguna sem ég hafði séð merkta fremst á ganginum. Ég var rétt komin fram á gang þegar ég sá Jórunn Linda Jónsdóttir ✝ Jórunn LindaJónsdóttir fæddist 10. mars 1956. Hún andaðist 13. desember 2019. Útför Lindu fór fram 6. janúar 2020. Þau leiðu mistök urðu við birtingu greinar um Lindu eftir Þórdísi Elvu og fleiri í blaðinu 6. janúar sl. að nafn Hafsteins Ágústssonar féll niður í undir- skriftinni. rauðhærða stelpu koma út af snyrting- unni. Hún var í grænum buxum og röndóttri skærlitaðri mussu. Við mætt- umst á miðjum ganginum og muldr- uðum hæ, báðar hálffeimnar. Hún hélt áfram inn gang- inn og ég fór á snyrt- inguna. Þar inni voru nokkrar dyr hlið við hlið og opnaðist ein þeirra þegar ég gekk inn. Út kom sama rauðhærða stelpan, í grænu buxunum og röndóttu mussunni. Hún heilsaði (aftur), ég tafsaði eitthvað og skildi hvorki upp né niður. Þegar hún var farin fram þá fór ég að leita, hvernig hafði hún komist aft- ur inn á snyrtinguna á undan mér? Ég fann ekkert þetta var óskiljanlegt. Það var ekki fyrr en allur hópurinn hittist á fyrsta fundi að ég áttaði mig á að þær voru tvær! Ég var fljót að læra hvor var hvor og ruglaðist ekki aftur svo ég muni. Linda var einstök vinkona, ekk- ert nema ljúfmennskan alla tíð. Við fylgdumst að í gegnum árin. Vorum m.a. báðar í KR, hún í körfunni, ég í handboltanum. Við vorum báðar í blakinu og báðar í öldungablakinu. Þegar ég skipu- lagði adrenalínferð til Tékklands á fimmtugsafmælinu mínu 2007 var Linda ein sú fyrsta til að skrá sig. Í þeirri ferð myndaðist vinahópur sem hefur haldið vel saman alla tíð síðan, Lallarnir. Margt höfum við brallað saman, alls konar ferðalög og uppákomur og alltaf skemmt okkur konunglega. Það er skarð fyrir skildi í þessum góða hópi og verður öðruvísi að hafa Lindu ekki með þar sem hún skýtur á okkur hin, gerir grín og hlær að okkur með skemmtilega hlátrinum sín- um. Hún var oftast sú varkárasta í hópnum, enginn glannaskapur þar eða vitleysa. Þegar hópurinn hittist í september sl. í Tungu- lendingu lá óvenju vel á Lindu enda með nýtt hné og nýja mjöðm sem hún ætlaði sko aldeilis að fara að brúka almennilega. En það verður víst ekki af því og við mun- um sakna hennar sárt úr hópnum góða. Við vottum dætrunum Aldísi og Heiðdísi, Löllunum Ernu og Óla og allri fjölskyldu Lindu okkar dýpstu samúð við fráfall einstakr- ar vinkonu. Fyrir hönd Lallahópsins, Jóhanna Ásmundsdóttir. Mig langar að kveðja Jórunni Lindu með nokkrum orðum með þakklæti og virðingu. Í daglegu tali var hún alltaf kölluð Linda. Hún fæddist 10. mars 1956 á Pat- reksfirði. Linda var tvíburi á móti Guðríði Ernu og voru þær alla tíð mjög samrýndar. Þær voru dætur Jóns Þorbergs Eggertssonar og Rósu Kemp Þórlindsdóttur, þau eru bæði látin. Lengi spiluðu þær körfubolta með meistaraliði KR og unnu þar alla titla sem hægt var að vinna á þeim tíma. Linda útskrifaðist úr Menntaskólanum við Hamrahlíð sem stúdent, þar næst úr íþrótta- skólanum á Laugarvatni sem kennari, sem var ævistarf hennar. Linda giftist aldrei en eignaðist tvíburanna Aldísi og Heiðdísi, sem voru henni mikils virði og voru þær hjá henni þar til þær stofnuðu sín eigin heimili. Aldís á dótturina Dagnýju Láru Stefánsdóttur. Þegar við hjón vorum í Reykja- vík og vildum gera okkur glaðan dag var oftar en ekki kallað á Lindu, sem ávallt var tilbúin að koma og aðstoða. Það var gott að eiga hana sem vin og þökkum við hjón fyrir það. Þegar þær Erna og Linda voru 12 ára fengu þær að koma austur og voru þær hjá okkur og ferð- uðumst við um Austurland með þær og hefur oft verið komið inn á þennan tíma og rifjuð upp ýmis at- vik og uppákomur. Lengst af bjó Linda í Mos- fellsbæ, ekki langt frá þar sem foreldrar hennar bjuggu, og var mikill samgangur þar á milli. Eftir að móðir hennar lést var Linda mikil stoð fyrir föður sinn á meðan hann bjó heima. Við hjón sendum dætrum og fjölskyldum ásamt systkinum hennar og fjölskyldum þeirra okk- ar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum þeim guðs blessunar. Albert Kemp og Þórunn Pálsdóttir. Kær vinkona okkar og sam- starfskona, Linda Jónsdóttir, er fallin frá, langt fyrir aldur fram. Við trúum því varla enn að hún sé horfin úr hópnum okkar, að við munum ekki sitja með henni fleiri fundi eða spjalla við hana á kaffi- stofunni. Allar eigum við sameiginlegt að hafa kennt íslensku við Varmárs- kóla í Mosfellsbæ um margra ára skeið ásamt Lindu og Ernu systur hennar. Ein okkar þekkti Lindu allt frá barnæsku en hinar kynnt- ust henni á sviði kennslunnar. Lengst af starfaði Linda sem íþróttakennari en hin síðari ár kenndi hún einnig íslensku á mið- og unglingastigi. Linda náði vel til allra, hvort sem það voru nemend- ur, foreldrar eða samstarfsfólk. Hún var sterk persóna með mikla útgeislun, brosmild og húmorísk og gat verið skemmtilega kald- hæðin. Það fór ekki mikið fyrir henni en hún var persóna sem allt- af var hægt að reiða sig á. Hún gat alltaf bryddað upp á umræðuefn- um og tekið þátt í samræðum og spjalli við nánast hvern sem var. Hún bar mikla umhyggju fyrir nemendum sínum og mundi vel eftir þeim, var dugleg að heilsa þeim og taka þá tali úti í bæ löngu eftir útskrift. Linda var kennari sem börnin gátu treyst og komið með vandamál sín til. Oft sást hún á spjalli við börnin á göngum og þegar hún kom í heimsókn í skól- ann í veikindaleyfi sínu hópuðust þau í kringum hana til að tala við hana og faðma hana að sér. Ekki grunaði okkur að það yrði í síðasta skipti sem hún kæmi í skólann sinn, þar sem hún hafði eytt meiri- hluta starfsævi sinnar. Við yljum okkur við ljúfar minningar úr skólastarfinu, um skemmtileg skólaferðalög, ógleymanlegar starfsmannaferðir og fleiri frábærar stundir. Við minnumst Lindu okkar með sökn- uði og hlýju og vottum dætrum hennar og fjölskyldunni allri okk- ar dýpstu samúð. Heyr, himna smiður, hvers skáldið biður, komi mjúk til mín miskunnin þín. Því heit eg á þig, þú hefur skaptan mig, ég er þrællinn þinn, þú ert Drottinn minn. (Kolbeinn Tumason) Guðlaug Guðsteinsdóttir, Hanna María Helgadóttir, Kristín Ásta Ólafsdóttir. Hvað gerir það að verkum að lítill hópur ungs fólks nær á skömmum tíma að tengjast ævi- löngum tryggða- og vináttubönd- um? Svarið er ekki einhlítt, en liggur sennilega í því að innan hópsins séu einstaklingar sem gefa af sér með ósérhlífni, sam- kennd og tryggð til þess að mynda þessi bönd. Þannig kona var elskuleg bekkjarsystir og vin- kona, Linda Jónsdóttir, sem hvarf óvænt og óvægið af vettvangi skömmu fyrir jól. Við, þessi tryggi vinahópur úr Íþróttakennaraskólanum, syrgj- um vin sem upplifði með okkur súrt og sætt í tvö ár á Laugar- vatni, var ávallt í miðri hringið- unni, hvort sem var í tímum, í baksinu á heimavistinni eða utan skólans þar sem mörg ævintýrin urðu einnig til. Næstu áratugina eftir útskrift höfum við þétt haldið utan um hópinn, hist árlega og ferðast saman og ávallt var Linda okkar með, glaðlynd og glettin, blíð og skemmtileg. Auðvitað vissum við hvað körfuboltastelpan Linda hafði fram að færa þegar við hittumst fyrst fyrir austan, það fór ekkert á milli mála þegar verklegu tímarn- ir hófust og þá var sama hver íþróttagreinin var. En við sáum það nú ekki fyrir að hún næði því að verða nífaldur Íslandsmeistari í körfuboltanum, þrisvar leikmaður ársins, fyrst kvenna til að vera val- in leikmaður ársins, vera í sigur- liði sex sinnum í bikarnum, stiga- hæsti leikmaður ársins í fjórgang, skoraði ein og sér fleiri stig en allt lið mótherjanna í bikarúrslitum og svo mætti lengi telja. Oft sem fyrirliði einnig. Alltaf af fullkom- inni yfirvegun og áveðni. Þvílík af- rekskona! En við söknum fyrst og fremst einlægs vinar og munum láta minninguna lifa um einstaka manneskju, móður og ömmu, sem hafði þann eiginleika að gera alla betri í návistum. Við sendum fjöl- skyldu hennar hughreystandi kveðju, einkum dætrunum tveim- ur, Aldísi og Heiðdísi, og einnig tvíburasysturinni Ernu, bekkjar- systur okkar, og þeirra fjölskyld- um. Fyrir hönd skólasystkina úr ÍKÍ 1976-1978, Ingólfur Hannesson. Ég vil hér í nokkrum orðum minnast samkennara míns til rúmlega 20 ára. Ég hóf kennslu við Varmárskóla í Mosfellsbæ sem nýútskrifaður íþróttakennari 1982. Ég hafði verið þar í æfinga- kennslu árið á undan og vissi að hverju ég gekk. Þar hófst sam- starf okkar Lindu, en hún var íþróttakennari við skólann og hafði umsjón með kennslu stúlkna, en ég tók að mér umsjón með íþróttakennslu drengja. Við kennslu íþrótta og sunds við skól- ann var samkennsla viðhöfð og áttum við því í miklu samstafi. Ég vil segja að samstarf okkar var ✝ SigurðurHjálmar Gúst- afsson fæddist í Keflavík 20. des- ember 1959. Hann lést 27. desember 2019. Foreldrar hans voru Gústaf Ólafs- son, f. 3.1. 1934, d. 1.2. 2018, og Eygló Gísladóttir, f. 18.7. 1940, d. 21.9. 2018. Saman áttu þau fjögur börn. Systkini Sigurðar eru Anna, f. 29.12. 1957, maki Tryggvi Ingvason, f. 7.9. 1957. Eiga þau þrjú börn; Inga Hildur, f. 18.9. 1961. Hún á eitt barn; Dröfn, f. 22.12. 1965, d. 22.1. 2010. Maki Vilhjálmur Pétur Björgvinsson, f. 7.10. 1964, eiga þau þrjú börn; Gísli Jón, f. 28.12. 1969. Maki Bahija Zaami, f. 4.10. 1984. Gísli á tvö börn. Sigurður útskrifaðist sem fiskiðnaðarmaður úr Fisk- vinnsluskólanum 1979. Hann réð sig sem verkstjóra hjá fisk- vinnslunni Tanga hf. á Vopna- firði 1979-1981. Hann flutti svo út í Garð 1981 þar sem hann réð sig sem yfirverkstjóra hjá Garð- skaga hf. og vann þar til 1985. Þór, f. 9.1. 2001, og Ágúst Guð- jón, f. 9.11. 2010. Karl Sædal Sveinbjörnsson, f. 13.4. 1968, maki Sheila Jane Surbito, f. 12.1. 1971. Börn Aron Sædal, f. 22.3. 2001, og Ragna Sól, f. 14.7. 2005. Þau Ragna skildu 1996. Sigurður var í stjórn Knatt- spyrnufélagsins Víðis í Garði og formaður í nokkur ár. Hann starfaði sem hreppsnefndar- maður og var formaður Alþýðu- flokksfélagsins í Garði og á þeirra vegum í byggingarnefnd íþróttahúss og sundlaugar. Sig- urður flutti til Úganda í Afríku þar sem hann vann og var hlut- hafi í frystihúsi frá 1995-2002. Hann var vinnslustjóri á frysti- togurum á Nýfundnalandi frá 2002-2007. Hann réð sig svo sem verslunarstjóra hjá Dom- inos Pizza í Reykjanesbæ frá 2007-2008. Hann var þjón- ustustjóri hjá ISS þar sem hann var yfir þrifum á fyrirtækjum í matvælaiðnaði 2008 til 2013. Hann var vinnslustjóri hjá slæg- ingarþjónustu Suðurnesja 2014. Hann hefur unnið við sjó- mennsku, beitningu, uppstokk- un og afleysingar á sjó frá 2014- 2017. Hann hefur verið mikið viðriðinn og aðstoðað við ým- islegt við rekstur Bitans hjá sonum sínum Björgvini og Bjarna síðan þeir keyptu þann rekstur 2018. Sigurður verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju í dag, 9. janúar 2020, klukkan 13. Hann gerðist svo vinnslustjóri og varð einn eigenda hjá Íslenskum gæðafiski hf. 1985- 1995. Hann giftist Rögnu Sveinbjörns- dóttur, f. 12.7. 1951, árið 1986. Saman áttu þau og ólu upp fimm börn. Björgvin, einkason- ur, f. 15.5. 1985, maki Elísabet Hall Sölvadóttir, f. 2.10. 1985, börn þeirra eru Aþena Hall Þorkelsdóttir, f. 17.9. 2005, og Aðalheiður Irma Hall Björg- vinsdóttir, f. 4.2. 2016. Bjarni, f. 23.5. 1978, maki Bryndís Björg Jónasdóttir, f. 27.6. 1979, börn þeirra eru Bergur Daði, f. 24.9. 2003, Birgitta Fanney, f. 2.2. 2007, Björgvin Ingi, f. 25.7. 2009, og Brynhildur Birta, f. 27.12. 2015. Ingibjörg Finndís, f. 30.10. 1974, maki Gísli Gísla- son f. 10.9. 1972, börn þeirra eru Óskar, f. 18.2. 2002, Ragna María, f. 23.12. 2006, Guðjón Freyr, f. 13.4. 2010, og Davíð, f. 28.8. 2012. Þórður, f. 14.4. 1972, maki Kolbrún Ágústsdóttir, f. 28.3. 1979, börn þeirra eru Ívar Sigurður Hjálmar Gústafsson, pabbi minn. Þegar ég hugsa um pabba minn þá hugsa ég um mann sem ég leit upp til, mann sem ég var stoltur að kalla pabba minn þrátt fyrir hans galla, mann sem var góður, hörkuduglegur, virkilega klár, þrjóskari en and- skotinn en líka um mann sem átti erfitt og var sjálfum sér verstur. Ég er svo þakklátur fyrir síðustu tvö árin því við höfðum aldrei ver- ið eins nánir. Finnst ég hafa fyrst núna verið byrjaður að þekkja hann eins og hann var. Það að hann hafi kynnst barnabarni sínu og hún honum, vinna með honum og hlusta á sögurnar hans. Hell- ingur sem hann kenndi mér og ég vonandi honum, ferðin okkar á Anfield í fyrra og allir fótbolta- leikirnir sem við höfum horft á eða talað um. Hann mun alltaf eiga stóran stað í hjarta mínu og huga. Pabbi, ég elska þig. Björgvin Sigurðsson. Mín fyrsta minning af þér er þegar ég hef vaknað einn laug- ardags- eða sunnudagsmorgun, labba fram og sé þig og mömmu inni í stofu þar sem þið horfið á mig skælbrosandi, þú með hönd- ina yfir öxlina á mömmu. Ég var ekki alls kostar sáttur og hleyp aftur inn í herbergið mitt hágrát- andi. Ég man að þið komuð til að hugga mig litla snáðann, en ég man ekkert meira tengt þessum degi. Einnig man ég eftir því að labba með mömmu frá Garð- brautinni upp á Einholt í íbúðina þína. Þar inni var lítið um hús- gögn, gott ef það var ekki bara sófi og hljómflutningsgræjur í stofunni. Man ekki eftir sjón- varpi. Hljómflutningsgræjurnar sem enduðu svo á Garðbrautinni þar sem þú lást á gólfinu með heyrnartólin á hausnum eftir vinnu eða um helgar og hlustaðir á Queen, Bowie eða Bubba með allt í botni. Takk fyrir gott tón- listaruppeldi pabbi minn, ég stalst ósjaldan í græjuskápinn og hlustaði á plötusafnið þitt. Hermdi eftir þér, tengdi heyrn- artólin og lagðist á gólfið fyrir framan græjurnar og hlustaði á eðaltónlist. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að vinna og lært að vinna undir harðri stjórn þinni á Brekkustígnum í Íslenskum gæðafiski. Sumrin hjá ykkur Dóra voru ekkert húmbúkk. Nánast öllum kaffitímum á Brekkustígnum eyddi ég á skrif- stofunni ykkar. Þar voru línurnar lagðar, þar gerðust hlutirnir. Við snyrtilínuna gekk kjafturinn hraðar á kerlingum en vinnan eins og þú lýstir því, þangað til þú labbaðir í gegnum salinn. Brúna- þungur á svip kallaðir þú eitthvað „uppbyggilegt“ yfir línuna og allt gekk hraðar. Þegar þú varst kominn í gegnum salinn sá maður brosið og þú skelltir upp úr. Agi var þitt fag. Þú varst aldrei ósanngjarn og jafnt gekk yfir alla. Manni fannst ekki alltaf sanngjarnar línurnar sem lagðar voru, en þær voru beinar og skýr- ar og ég er einmitt þakklátur fyr- ir það uppeldi sem ég fékk og nota óspart í minni vinnu, lífi og leik. Fótboltinn var alltaf í háveg- um hafður hjá okkur, ýmist þegar fjölskyldan og vinir komu um helgar í vöfflur og með því á Garðbrautina og horft var á enska boltann, eða þegar Víðir í Garði var að spila, sérstaklega á heimavelli. Þú varst formaður hjá Víði í Garði þar sem við fjölskyld- an tókum þátt og vorum „all-in“ ef það má segja það. Mamma var alltaf í sjoppunni og ég held ég eigi leikjametið yfir flesta leiki í röð sem boltastrákur á heima- velli. Í gegnum sjálfboðastarfið hjá Víði kynntumst við ótrúlega mörgu frábæru og flottu fólki og fyrir það er ég er mjög þakklátur. Það hefur ekki verið tekið út með sældinni að vera stuðnings- maður Liverpool en mér hefur þótt vænt um alla þá leiki sem við höfum horft á saman núna á seinni árum. Leikurinn sem þú fórst á með mér og Björgvini í janúar 2019 á Anfield er ógleym- anlegur. Það að horfa á þig klökk- an í stúkunni þegar You will ne- ver walk alone var tekið fyrir leik skilur eftir sig mynd sem ég mun aldrei gleyma. Verst þykir mér að fá ekki að njóta þess með þér þegar Liverpool lyftir bikarnum í maí. Hvíldu í friði elsku pabbi. Elska þig. Kveðja, Bjarni Sigurðsson. Meira: mbl.is/andlát Það er margs að minnast þeg- ar einhver úr lífi manns fellur frá. Siggi var góður eiginmaður og fé- lagi áður en Bakkus tók völdin, en það var erfitt að keppa við hann. Siggi var börnunum mín- um og drengnum okkar góður faðir. Við ferðuðumst mikið inn- anlands og utanlands, hann var skemmtilegur ferðafélagi og hon- um þótti ekki leiðinlegt að kíkja í verslanir og kaupa eitthvað handa mér og krökkunum. Siggi vann alltaf mikið og varð alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Hann kláraði húsið okkar og gerði lóð- ina fallega og gróf mestallt með höndum. Ég hugsa alltaf til hans þegar ég keyri Garðbrautina og sé öll trén sem við gróðursettum og margir höfðu ekki mikla trú á að mundu dafna í rokinu úti í Garði. Siggi var félagslyndur og hafði mikinn áhuga á íþróttum, hann var formaður Víðis á gull- aldarárinu þegar liðið fór upp í fyrstu deild. Við fórum á alla leiki hvar sem þeir voru á landinu. Við fórum til dæmis með liðinu til Hannover í Þýskalandi í æfinga- búðir. Svo fór Siggi í pólitíkina og sat í hreppsnefnd. Hann var verkstjóri í Garðskaga og hjá Brynjólfi í Njarðvík og hjá Ís- lenskum gæðafiski sem þeir áttu með Belgum. Við fórum til Belgíu og Siggi var að kenna þeim hvernig við unnum fiskinn og hvernig þeir vildu láta vinna fisk- inn fyrir sig. Þeir keyptu af þeim tindabikkju sem var verðlaus hér á landi. Hann gat verið harður verkstjóri en hann kenndi mörg- um unglingum að vinna og þau báru virðingu fyrir honum. Sigga fannst gaman að spila og spiluð- um við mikið og sérstaklega á jól- unum. Björgvin sonur okkar fæddist með hjartagalla og fór í stóra hjartaaðgerð til Bandaríkj- anna ’97, og þá kom Siggi út til okkar frá Afríku en hann var að vinna þar á þeim tíma. Svo kom hann aftur ’99 þegar Björgvin fór í aðra aðgerð. Ég veit að mamma hans, pabbi og Dröfn systir hans taka á móti honum og leiða hann inn í ljósið. Ég er þakklát fyrir góðu árin okkar og bið góðan Guð að vernda og styrkja börnin okk- ar, eftirlifandi systkini hans og fjölskyldur þeirra. Hvíl í friði, kæri vinur. Ragna Sveinbjörnsdóttir. Sigurður Hjálmar Gústafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.