Morgunblaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 51
MINNINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020
✝ Ásthildur Páls-dóttir fæddist
5. október 1925 í
Vatnsfirði við Ísa-
fjarðardjúp. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Grund
31. desember 2019.
Fjögurra ára
flutti hún að Þúfum
í Vatnsfjarðardal
ásamt foreldrum
sínum, Páli Páls-
syni og Björgu Andrésdóttur.
1959 tók hún við búsforráðum
þar ásamt eftirlifandi maka sín-
um, Ásgeiri Svanbergssyni.
Börn Ásthildar eru sex. Þau
eru: 1) Bryndís. Maki hennar er
Vilbergur Stefánsson. Hún á
Ragnheiði Bergdísi, Pál Björg-
vin og Kjartan Hávarð. 2)
Björg. Maki: Gunnbjörn Ólafs-
son. Hún á Ásgeir, Kristínu Sif
og Drífu. 3) Gísli Svanberg.
Maki: Margrét Sigrún Jóns-
dóttir. Hann á Ilmi Dögg og
Orra Frey. 4) Páll
Ásgeir. Maki: Rósa
Sigrún Jónsdóttir.
Hann á Lilju Dröfn
og Lindu Björk. 5)
Hrafney. Maki:
Bjarni Már Gísla-
son. Hún á Jóhönnu
og Sverri Má. 6)
Þorbjörg. Maki:
Bjarni Gautason.
Hún á Arnþór,
Söru Björgu og
Snjólaugu Völu. Barna-
barnabörnin eru 21.
1973 fluttu Ásthildur og Ás-
geir til Kópavogs og bjuggu eft-
ir það að Skólagerði 17. Hún
starfaði í Ora og Álafossi,
prjónaði peysur og seldi og
fékkst við ýmislegt þar til hún
fór á eftirlaun 67 ára. Þegar
heilsu hennar hrakaði flutti hún
á hjúkrunarheimilið að Grund.
Útför Ásthildar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 9. janúar
2020, klukkan 13.
Móðir okkar, Ásthildur Páls-
dóttir frá Þúfum í Reykjarfjarð-
arhreppi hinum forna, kvaddi
þetta líf á síðasta degi ársins og
hélt í sumarlandið, eins og hún
hafði lengi óskað sér. Fyrir rúm-
um fjórum árum hrakaði heilsu
hennar svo mikið að við tók
sjúkrahúsvist, síðan nokkrar vik-
ur á Vífilsstöðum og um mitt sum-
ar 2015 fékk hún inni á hjúkrun-
arheimilinu Grund. Þetta voru
mikil viðbrigði fyrir hana og okk-
ur öll því pabbi varð eftir heima,
enda ögn betri til heilsunnar.
Mamma var ekki sátt við þessa
ráðstöfun í fyrstu en gerði sér
fljótlega grein fyrir að ekki voru
aðrar leiðir færar. Hugurinn var
alltaf heima í Skólagerði og þegar
skammtímaminninu fór að hraka
var oft talað í vestur að Þúfum
þar sem hugurinn var löngum og
hún mundi flest úr gamla tíman-
um vel. Þannig rifjaðist margt
gamalt upp í heimsóknum og ým-
islegt kom upp úr dúrnum sem
við systkinin höfðum aldrei heyrt.
Mömmu leið vel á Grund því
starfsfólkið þar var hvert öðru
betra og kappkostað var að vel
færi um hana og hún hefði allt
sem þyrfti. Hún hafði oft orð á því
í heimsóknum hvað allir væru
góðir við hana og viðurgerningur
var henni mjög að skapi. Við
fundum þetta og sáum og viljum
færa öllum sem að aðhlynningu
hennar komu okkar innilegustu
þakkir.
Flestar minningar okkar
tengjast afskekktu sveitinni okk-
ar þar sem við uxum úr grasi. Við
lærðum að lesa og hlusta, vinna
og sinna, þraukuðum köld sumur
og harða vetur en oft var líka gott
veður og glatt á hjalla.
Í okkar litla heimi var mamma
miðja sólkerfisins og við sner-
umst öll í kringum hana hvert á
sínum sporbaug.
Þar voru sólskinsdagar og
svörtu og hvítu flísarnar á gólfinu
glansa í minningunni. Óskalög
sjúklinga óma í útvarpinu yfir
húsverk, skyldur og verkefni sem
allir taka þátt í. Mamma stjórnar
öllu innanhúss bæði verkum og
stemningu sem oft er hávær og
glöð. Það er best að hlýða
mömmu og fara að fyrirmælum
hennar því hún hikar ekki við að
segja manni umbúðalaust hvað
má betur fara.
Þar voru langir vetrardagar
við inniverk og prjónaskap og þá
gat verið gott að hnipra sig saman
undir saumavélinni og hlusta á
framhaldsleikritið í útvarpinu
meðan hríðin lemur bæinn.
Mamma sussar á okkur og sendir
einhvern eftir svörtu og sykur-
lausu kaffi í óbrjótandi glasi og
heldur áfram að vinna og hlusta.
Á seinni hluta ævinnar flutti
mamma úr rafmagnsleysi og fá-
sinni sveitarinnar til höfuðborg-
arinnar og undi því vel. Hún var
félagslynd og glaðsinna og fann
sig vel í hópi samverkakvenna og
vinkvenna á stórum vinnustöðum
eins og ORA og Álafossi. Hún
sótti menningarviðburði af lifandi
áhuga og elju með sérstakri
áherslu á tónleika og óperuflutn-
ing. Hún hélt áfram að baka og
bjástra og heimili hennar og
pabba varð samkomustaður og
hjarta fjölskyldunnar meðan
þeim entist heilsa og kraftur.
Að leiðarlokum er okkur systk-
inum efst í huga þakklæti fyrir
gott uppeldi og langa og gefandi
samfylgd, virðing fyrir ævistarfi
móður okkar og eftirsjá eftir liðn-
um góðum dögum.
Systkinin frá Þúfum,
Bryndís, Björg, Gísli, Páll
Ásgeir, Hrafney og Þorbjörg.
Tengdamóðir mín kær, Ást-
hildur Pálsdóttir, er fallin frá á 95.
aldursári. Kynni mín af Ástu hóf-
ust fyrir tæplega fjórum áratug-
um þegar við Þorbjörg, yngsta
dóttir Ástu og Ásgeirs, fórum að
draga okkur saman. Ásta var
glaðvær, hrifnæm og örlát mann-
eskja og sannkallaður dugnaðar-
forkur, eins og margir sem af
henni eru komnir.
Það var alltaf notalegt að koma
heim til þeirra hjóna í Skólagerði.
Heimili Ástu og Ásgeirs var um
árabil miðpunktur samskipta og
samveru í stórfjölskyldunni. Um
hádegisbil á sunnudögum var
nokkuð víst að þar mátti hitta á
skyldmenni úr efri og ytri byggð-
um höfuðborgarinnar eða af
landsbyggðinni og fá sér vel af
hrygg eða læri með tilheyrandi
meðlæti. Jóladagur var síðan al-
veg sérstakur því þá mættu allir
sem vettlingi gátu valdið í Skóla-
gerði um hádegisbil í hangikjöt og
uppstúf og nutu síðan samveru
um eftirmiðdaginn gjarnan við
spil og leiki. Margt var um mann-
inn í Skólagerði þessa daga og
Ásta tók beint eða óbeint þátt í
öllu sem fram fór og sá til þess að
allir hefðu nóg að bíta og brenna.
Ég man varla eftir öðru en að
Ásta hafi setið við eitthvert hand-
verk í þessum heimsóknum. Það
voru peysur, vettlingar og húfur
sem þurfti að prjóna á börn,
ömmubörn og tengdabörn. Alltaf
var Ásta að. Ásta og Ásgeir voru
ræktarsöm og höfðu alltaf mikinn
áhuga á viðfangsefnum og fram-
gangi barnabarnanna.
Heimsókn Ástu og Ágeirs til
okkar Þorbjargar og barnanna í
Edmonton í Kanada er mér of-
arlega í huga. Þetta var fyrir um
aldarfjórðungi og var þetta fyrsta
utanlandsferð Ástu. Ásta og Ás-
geir nutu sín vel í þessari vest-
urför. Ásta eyddi dögunum með
dóttur sinni og barnabörnunum
þremur sem fylgdu ömmu sinni
hvert fótmál. Við heimsóttum þá
m.a. hús Stefáns G. Stefánssonar
skálds við Tindastól (Markerville)
á ægifögrum sumardegi og veit
ég að sá dagur var Ástu mjög
minnisstæður. Ég kveð Ástu með
þökk fyrir vináttu, umhyggju og
stuðning í áranna rás, við okkur
Þorbjörgu og börnin okkar þrjú.
Bjarni Gautason.
Við systkinin minnumst ömmu
Ástu og heimsóknanna til þeirra
Ásgeirs afa í Skólagerðið með
mikilli hlýju enda fengum við allt-
af góðar móttökur. Við vorum
mjög dugleg að heimsækja þau
sem börn en þegar unglingsárin
skullu á leið lengra á milli. Þegar
við hugsum til baka til þessa tíma
rifjast upp vel útilátið hlaðborð
kræsinga sem beið manns inni í
eldhúsi og eru rjómapönnukök-
urnar hennar ömmu þær bestu
sem við höfum smakkað. Í Skóla-
gerðinu var stöðugur gestagang-
ur um helgar og varð heimili
þeirra afa staður sem sameinaði
þessa stóru fjölskyldu. Ef maður
vildi hitta einhvern var nóg að
mæta bara því það var alltaf ein-
hver í heimsókn, útidyrnar aldrei
læstar, alltaf heitt á könnunni.
Við getum hæglega séð fyrir
okkur ömmu, sitjandi í stólnum
sínum, umkringda fallegum
hannyrðaverkefnum, dagblöðum
dagsins, útvarpið ekki langt frá –
og það var alltaf í gangi. Eins
hafði hún nálægt sér geisladiska
með óperum m.a. en þær dáði hún
mjög. Amma knúsaði mann í kaf
og vildi heyra allt sem á daga
manns hafði drifið. Amma var
mjög hreinskilin, fylgdist vel með
stjórnmálum og lá ekki á skoðun-
um sínum. Ef amma vildi segja
manni eitthvað um hvernig mað-
ur ætti t.d. að lifa lífinu að þá
gerði hún það umbúðalaust. Fyrir
allt þetta og góðar minningar er-
um við þakklát.
Ilmur Dögg og Orri Freyr.
Með sorg í hjarta, hlýju og von
kveð ég ömmu Ástu; sorg yfir því
að þú sért farin frá okkur öllum,
von um að þú sért komin á betri
stað.
Þegar maður kom til ömmu og
afa í Kóp þá sat amma í stólnum
sínum og hlustaði ævinlega á út-
varpið, hún hlustaði á allar fréttir,
umræður, dægurmálaþætti og
skemmtiþætti. Þegar þessi þáttur
var búinn var drifið í að skipta á
næsta þátt á næstu stöð enda var
amma með allt á hreinu, hafði
skoðanir á flestu eða bara öllu og
hvatti mann til að hafa skoðun.
Toppurinn á tilverunni þegar
maður var barn var að fá 50-kall
frá ömmu, fara út í sjoppu og fá
bland í poka og „velja“ sjálfur, þá
valdi maður litla gúmmíið sem var
á 50 aura og þá fékk maður sko
mest óháð því hvort það var gott
eða vont nammi
Elsku amma mín, ég kveð þig
með hlýju í hjarta og allar fallegu
minningarnar, þakklæti og heita
ósk um að þú hittir einhverja við-
ræðugóða vini eins og þú varst í
sumarlandinu. Frétti að Þórður
nágranni þinn til margra ára væri
nýkominn – spurning hvort þið
séuð enn nágrannar?
Þitt barnabarn,
Jóhanna Bjarnadóttir.
„Eru þetta Lilja mín og Linda
mín?“ Þetta sagði amma Ásta
alltaf þegar við komum inn um
dyragættina í Skólagerði og voru
móttökurnar hlýjar og beint frá
hjartanu. Nú er hún fallin frá.
Amma Ásta flutti á mölina
1973, þá 48 ára gömul, en fram á
þann dag hafði hún eytt ævinni í
sveitinni sinni Þúfum vestur í Ísa-
fjarðardjúpi. Það fór aldrei
framhjá neinum sem ræddi við
ömmu hvaðan hún kom og talaði
hún alla tíð mikið vestur eins og
hún orðaði það gjarnan.
Hins vegar átti vel við ömmu
að búa í þéttbýlinu. Hún var eins
og barn í sælgætisbúð því hún
unni menningu og mannamótum,
enda mannblendin mjög. Það var
henni dýrmætt að hafa leikhúsin
og aðra menningarstaði í ná-
grenninu og lét hún sig ekki vanta
á nokkra leiksýningu eða tónleika
sem í boði voru á meðan heilsan
leyfði.
Amma var einstaklega hlý,
glaðvær, fjölskyldurækin og for-
vitin. Áhugi hennar á samfélaginu
var mikill og fylgdist hún vel með
öllu, hvort sem um var að ræða
menningu, stjórnmál, íþróttir eða
annað. Það var því oft stoppað
lengi við í Skólagerðinu því fara
þurfti yfir mál málanna með
ömmu og stikla á því helsta sem
var í fréttum. Það voru oft líflegar
umræður enda sat hún ekki á
skoðunum sínum.
Að koma í Skólagerði var alltaf
eins og að koma í skjól. Okkur var
tekið opnum örmum, hvort heldur
sem stoppið var óvænt eða ekki.
Amma átti alltaf kaffi og með því
eins og sveitafólks er siður, og var
gjörn á að setja saman fyrir okk-
ur skonsubrauðtertu því hún
gleymdi því aldrei að þær voru í
uppáhaldi.
Amma skilur eftir sig mikið af
góðum minningum sem við systur
getum deilt með dætrum okkar,
Silju Björk, Oliviu Dögg og Berg-
rós Lilju.
Hvíl í friði elsku amma. Ljós
þitt og hlýja lifir með okkur.
Linda og Lilja Pálsdætur.
Í dag kveð ég eina af mínum
fyrirmyndum í lífinu, hana ömmu
Ástu eða Drekann eins og við í
fjölskyldunni kölluðum hana í
seinni tíð. Drekinn bara einhvern
veginn lýsir henni svo vel án þess
að ég geti útskýrt það almenni-
lega.
Kjarnyrtur og stoltur kven-
skörungur að vestan, meira að
segja úr Inndjúpinu, það er ennþá
betra.
Amma mín mátti reyna ýmis-
legt í lífinu en tók því öllu af seiglu
og æðruleysi. Hún var líka bara
svo skemmtileg, mikill töffari og
gaman að spjalla og rökræða við
hana.
Amma elskaði ferðalög, óperu,
leikhús, bíó, tónlist, íþróttir, tísku
og pólitík. Hún var vel að sér í öllu
og alltaf með puttann á púlsinum.
Við bjuggum sín í hvorum
landshlutanum en þegar tækifæri
gafst fór ég með henni í bíó, leik-
hús eða á tónleika og þvílíkt sem
það var gaman hjá okkur. Stór
partur af ferðinni var að skoða
mannlífið. Amma var líka svo
hrifnæm að ef henni líkaði sýn-
ingin fór það ekki fram hjá nein-
um í salnum. Og hún var sann-
arlega ekki góð í að hvísla!
Hún amma mín kenndi mér
margt í okkar spjalli og mörg
orðatiltæki og lífsspeki sem ég
nota í lífinu kemur beint frá
henni.
Í Skólagerði er ég ennþá kölluð
Ragnheiður litla þó ég sé orðin
fimmtug og finnst mér það ósköp
notalegt. En þegar ég verð stór
ætla ég að verða Dreki.
Far í friði, amma mín, og takk
fyrir allt og allt.
Þín
Ragnheiður Bergdís
Bryndísardóttir.
Ásthildur
Pálsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Við kveðjum Ásthildi
mágkonu okkar í dag.
Í okkar huga svo mikil
manneskja, svo sterk, kær-
leiksrík, hlý og góð. Hún
tók okkur öllum opnum
örmum alla tíð, svo gott að
vera í návist hennar.
Við þökkum fyrir það
allt, sem hún gaf okkur.
Þökkum sérstaklega fyrir
þann stuðning sem hún
veitti foreldrum okkar. Við
kveðjum með söknuði og
umfram allt þakklæti.
Ásgeiri bróður okkar og
fjölskyldu hans sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Gísli, Ingibjörg,
Erla Guðný og Þorbjörg.
✝ SigurðurMagnús Magn-
ússon fæddist á
Bolungarvík hinn
8. maí 1936. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Austur-
lands í Neskaup-
stað 31. desember
2019. Hann var
sonur hjónanna
Magnúsar Ágústs
Haraldssonar frá
Bolungarvík, f. 24. ágúst 1905,
d. 15. ágúst 1997, og Sigríðar
Níelsínu Níelsdóttur, f. 17.
október 1900, d. 2. nóvember
1961. Þau bjuggu allan sinn
búskap á Bolungarvík.
Sigurður kvæntist 16. maí
1959 Guðrúnu Aðalbjörgu
Halldórsdóttur frá Eskifirði.
Börn þeirra eru: 1) Bryndís
Fjóla, f. 20. nóvember 1957,
maki Þorbergur Níels Hauks-
son, f. 11. nóvember 1954.
Börn þeirra: Berglind, f. 18.
mars 1975, sambýlismaður
Sigurjón Örn Stefánsson. Börn
hennar eru Aþena Ýr, Venus
Sara og Atlas Þór; Sigurður
Magnús f. 1. ágúst 1980, sam-
býliskona Sigrún Björnsdóttir.
Börn hans eru Baldvin Hrafn,
Þorbergur Níels og Michael
Fjólar. 2) Magnús Ómar, f. 15.
ágúst 1960, maki Rósamunda
Karlsdóttir, f. 31.
maí 1961. Börn
þeirra: Sölvi Fann-
ar, f. 10. október
1983, sonur hans
er Elmar Leví;
Grétar Örn, f. 1.
febrúar 1986;
Aníta Ösp, f. 29.
apríl 1990, sam-
býlismaður Freyr
Guðnason, sonur
þeirra er Ómar
Loki; Eva Rún f. 1. maí 1994.
3) Brynjar, f. 25. apríl 1966,
maki Þórhildur Þórhallsdóttir,
f. 20. desember 1967. Hún á
tvær dætur. Brynjar á eina
dóttur: Lovísu, f. 7. ágúst
1998, og tvær stjúpdætur:
Öglu Guðbjörgu, f. 15. desem-
ber 1993, og Agnesi Ýri, f. 16.
október 1988, börn hennar eru
Guðbjörn Nökkvi, Jökull Máni
og Margrét Bára.
Sigurður og Guðrún kynnt-
ust árið 1956 á Hornbjargi þar
sem þau unnu bæði. Hann var
þar að síga í björg og hún var
ráðskona. Sigurður lauk Stýri-
mannaskólanum 1961 og þá
fluttu þau til Eskifjarðar þar
sem þau settust að og hann
byrjaði sinn skipstjóraferil.
Útförin fer fram frá Eski-
fjarðarkirkju í dag, 9. janúar
2020, klukkan 14.
Það voru gæfurík spor fyrir
marga þegar Sigurður Magnús-
son fluttist austur á Eskifjörð
ungur maður. Bæði var það svo
fyrir okkur sem tengdust honum
fjölskylduböndum þegar hann
tók saman við yngstu systur
mína, Guðrúnu, og ekki síður fyr-
ir útveg og atvinnulíf fyrir austan
og þá fjölmörgu sem störfuðu
með honum til sjós.
Það sýndi sig fljótt að Sigurð-
ur mágur minn var góður sjó-
maður, Bolvíkingur. Hann bjó að
góðu veganesti að vestan og hafði
verið á vertíð í Vestmannaeyjum.
Að loknu námi í Stýrimannaskól-
anum var hann stýrimaður hjá
mér á Vattarnesinu. Það var
verðskuldað að honum væri síðar
falið að taka við skipstjórn á fleiri
skipum Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar, þ.m.t. á Hólmanesinu,
nýjum skuttogara sem hann sótti
til Spánar og kom með til lands-
ins laust fyrir miðjan áttunda
áratuginn. Þar átti hann farsæl-
an feril sem fiskinn og áreiðan-
legur skipstjóri allt þar til
Hólmanesið var selt um 1997. Þá
fór Siggi í land, búinn að skila
sínu.
Með okkur tókust traust fjöl-
skyldu- og vinarbönd. Siggi var
fjölskyldurækinn maður og
hugsaði vel um sitt fólk. Verkin,
sama hvers eðlis þau voru, léku í
höndunum á honum, og þau hjón-
in saman, hann og Guðrún,
bjuggu sínu fólki gott líf. Milli
okkar tveggja og okkar fólks
voru traust bönd alla tíð. Bæði
vorum við mágar samstiga, en
ekki síður þær Guðrún systir mín
og Ragnhildur kona mín. Þær
voru nánar vinkonur, og fyrir
það er ég þakklátur.
Nú er komið að leiðarlokum
og ég leyfi mér að gera orð Arnar
Arnarsonar að mínum: Kjós þér
leiði, vel þér veiði. Valin bíður
skeiðin þín. Sigurðar Magnús-
sonar verður ætíð minnst með
virðingu og af hlýhug.
Árni Halldórsson.
Í dag kveðjum við með mikl-
um trega Sigurð Magnússon eða
Sigga hennar Gunnu eins og við
kölluðum hann oftast.
Það var fyrir rúmum sextíu
árum sem Siggi kom inn í fjöl-
skylduna okkar á Hlíðarenda
þegar hann giftist Gunnu móð-
ursystur minni. Alla tíð síðan
hefur hann sýnt okkur fjölskyld-
unni hlýju og góðvild og verið
einn af okkar bestu vinum.
Á unglingsárum Sólveigar
voru þær ófáar ferðirnar sem
hann keyrði vinkonuhópinn á
böll. Skipti þá engu máli hvort
böllin voru á Reyðarfirði eða Fá-
skrúðsfirði, Siggi skutlaði og var
svo mættur að dansleik loknum
til að sækja hópinn.
Þegar við hjónin giftum okkur
1974 þá voru það Siggi og Gunna
sem voru svaramenn okkar.
Árni var með Sigga skipstjóra
til sjós, fyrst á Krossanesinu, þá
Hólmatindi og loks á Hólmanes-
inu. Varð úr mikill vinskapur
sem hélst alla tíð.
Mikill samgangur hefur alla
tíð verið á milli okkar og Sigga
og Gunnu, málin rædd og kaffið
drukkið. Ekki má gleyma Þor-
láksmessuskötunni hjá þeim
hjónum þar sem margt var um
manninn og vel veitt enda var
Siggi Bolvíkingur og kunni svo
sannarlega að halda skötuveislu.
Siggi varð þeirrar gæfu að-
njótandi að eiga góða og trausta
fjölskyldu og það var ánægjulegt
að sjá hve hamingjusöm og
ánægð þau Gunna voru með
hvort annað.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið,
og þín er liðin æviönn,
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
(Höf. ók.)
Með þessum fátæklegu orðum
kveðjum við góðan vin okkar Sig-
urð Magnússon.
Blessuð sé minning hans.
Elsku Gunna og fjölskylda, við
sendum ykkur okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Sólveig og Árni.
Sigurður Magnús
Magnússon
Sálm. 6.3
biblian.is
Líkna mér, Drottinn,
því að ég er
magnþrota,
lækna mig, Drottinn,
því að bein mín
tærast af ótta.