Morgunblaðið - 09.01.2020, Síða 68
68 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020
Spánn
Meistarabikarinn, undanúrslit:
Valencia – Real Madrid ........................... 1:3
Real Madrid mætir Barcelona eða Atlé-
tico Madrid í úrslitaleik á sunnudaginn.
England
Deildabikar, undanúrslit, fyrri leikur:
Leicester – Aston Villa.......................... (0:1)
Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun, sjá mbl.is/sport/enski.
Vináttulandsleikur karla
Kanada – Barbados.................................. 4:1
Leikið í Kaliforníu þar sem Ísland og
Kanada mætast næsta miðvikudag.
Undankeppni HM karla
Grikkland – Kýpur ............................... 30:16
Finnland – Ísrael .................................. 26:26
Grikkland 8, Ísrael 7, Finnland 5, Kýpur
0. Ein umferð eftir og sigurliðið fer áfram.
Svíþjóð
B-deild:
Nacka – Kristianstad .......................... 30:25
Andrea Jacobsen skoraði 4 mörk fyrir
Kristianstad.
Dominos-deild kvenna
Skallagrímur – Haukar........................ 73:59
Grindavík – Valur ................................. 73:74
Snæfell – Breiðablik............................. 67:61
KR – Keflavík ....................................... 69:47
Staðan:
Valur 15 13 2 1259:1002 26
KR 15 11 4 1150:962 22
Keflavík 14 10 4 1024:979 20
Skallagrímur 15 9 6 1031:986 18
Haukar 15 9 6 1061:1045 18
Snæfell 14 4 10 941:1087 8
Breiðablik 15 2 13 957:1173 4
Grindavík 15 1 14 978:1167 2
Meistaradeild Evrópu
Szombathely – Zaragoza.................... 70:77
Tryggvi Snær Hlinason sat allan tímann
á bekknum hjá Zaragoza. Lið hans hefur
unnið 6 leiki af tíu í riðlinum en fjórar um-
ferðir eru eftir.
Evrópubikarinn
Rytas – UNICS Kazan......................... 86:91
Haukur Helgi Pálsson tók 2 fráköst og
gaf 1 stoðsendingu fyrir UNICS Kazan.
Þetta var fyrsti leikur í riðlakeppni 16-
liða úrslita. Galatasaray og Mónakó eru
einnig í riðlinum.
NBA-deildin
Cleveland – Detroit .......................... 113:115
Toronto – Portland............................. 99:101
Brooklyn – Oklahoma City ..... (frl.) 103:111
Memphis – Minnesota...................... 119:112
Phoenix – Sacramento ..................... 103:114
LA Lakers – New York ..................... 117:87
Körfuknattleiks-
deild Vals hefur
samið við ísr-
aelska landsliðs-
manninn Naor
Sharon. Hann er
24 ára leikstjórn-
andi sem hefur
leikið í efstu
deild heima-
landsins síðustu
ár. Sharon lék
með Kiryan Ata fyrir áramót en
með Hapoel Haifa á síðustu leiktíð.
Sharon hefur einnig leikið með Pau
og Levallois í Frakklandi. Valur er í
10. sæti Dominos-deildarinnar með
fjóra sigra og átta töp.
johanningi@mbl.is
Ísraelskur til
Valsmanna
Naor
Sharon
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Hertz-hellirinn: ÍR – Stjarnan ............ 19.15
IG-höllin: Þór Þ. – Valur ...................... 19.15
Ásvellir: Haukar – KR ......................... 19.15
Blue-höllin: Keflavík – Grindavík ....... 19.15
1. deild karla:
Smárinn: Breiðablik – Álftanes........... 19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Origo-höllin: Valur U – Selfoss ........... 19.30
Í KVÖLD!
anum til dæmis nítján sinnum.
Keflavík tapaði boltanum sautján
sinnum en skotnýting leikmanna
Keflavíkur var hins vegar afleit. Þær
reyndu tuttugu og fjórum sinnum
fyrir sér fyrir utan þriggja stiga lín-
una en skotin rötuðu einungis þrisv-
ar rétta leið. Gerir það 12% skotnýt-
ingu og innan teigs var nýtingin
aðeins 21%. Með slíka hittni er erfitt
að ná í tvö stig í DHL-höllina.
Valskonur voru stálheppnar í
74:73-sigri á botnliði Grindavíkur á
útivelli. Grindavík var yfir nánast
allan leikinn og náði mest tólf stiga
forskoti. Valskonum tókst hins veg-
ar að komast yfir undir lokin og var
þriggja stiga munur þegar Jordan
Reynolds úr Grindavík fór á vítalín-
una, eftir að brotið var á henni í
þriggja stiga skoti. Fékk hún því
þrjú skot og gat jafnað metin.
Fyrstu tvo fóru ofan í, en það þriðja
geigaði og Valskonur fögnuðu vel.
Grindavík vann sinn fyrsta sigur í
síðustu umferð og virðist mun sterk-
ari eftir áramót.
Skallagrímur vann góðan 73:59-
heimasigur á Haukum í baráttunni
um fjórða sætið. Liðin eru nú bæði
með 18 stig. Emilie Hessedal skor-
aði 27 stig fyrir Skallagrím á meðan
Randi Brown skoraði 31 stig fyrir
Hauka. Bæði lið hafa spilað vel í vet-
ur og betur en margir áttu von á.
Allt bendir til þess að liðin muni
berjast um fjórða og síðasta sætið í
úrslitakeppninni allt til loka leiktíð-
arinnar.
Í Stykkishólmi hafði Snæfell
betur gegn Breiðabliki, 67:61. Snæ-
fell var yfir allan tímann og var stað-
an í hálfleik 39:31. Breiðablik kom
með áhlaup í seinni hálfleik en að
lokum voru Snæfellingar of sterkir.
Gunnhildur Gunnarsdóttir skor-
aði 23 stig fyrir Snæfell á meðan
Danni Williams gerði 34 fyrir
Breiðablik. Snæfell er í sjötta sæti
með átta stig og Breiðablik í sjöunda
sæti með fjögur.
Í baklás hjá
Keflvíkingum
KR vann slaginn um 2. sætið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Harka Unnur Tara Jónsdóttir reynir að stöðva Danielu Wallen úr Keflavík.
Í VESTURBÆNUM
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
KR hélt Keflavík í tólf stigum í síðari
hálfleik þegar liðin mættust í Dom-
inos-deild kvenna í körfuknattleik
Frostaskjólinu í gær. KR vann stór-
sigur 69:47 og er þar af leiðandi eitt í
2. sæti deildarinnar með 22 stig en
Keflavík er í þriðja sæti með 20 stig.
Eftir jafnan fyrri hálfleik var ekki
útlit fyrir annað en að leikurinn gæti
orðið jafn og spennandi þegar á
hann liði. Svo fór þó ekki því allt fór í
baklás í sókninni hjá Keflavík í síðari
hálfleik. Liðið skoraði aðeins fimm
stig í þriðja leikhluta og staðan var
orðin 53:40 fyrir síðasta leikhlutann.
Alls skoraði Keflavík einungis tólf
stig í síðari hálfleik og KR landaði
öruggum sigri fyrir vikið.
KR-liðið tapaði fyrsta leik sínum á
nýju ári gegn Haukum á laugardag
en kvittaði vel fyrir það með sigr-
inum í gær. KR-liðið er vel skipað og
lykilmenn liðsins skiluðu sínu þótt
liðið hafi byrjað leikinn fremur ró-
lega. KR-konur geta þó lagað ým-
islegt hjá sér áður en liðið gerir at-
lögu að því að ná Íslandsbikarnum af
Val í vor en í gær tapaði liðið bolt-
Leikmenn íslenska karlalandsliðs-
ins í handbolta eru mættir til
Malmö, þar sem E-riðill Evr-
ópumótsins fer fram. Liðið átti að
fljúga til Kaupmannahafnar í dag,
en vegna veðurs var fluginu flýtt til
miðnættis og lentu leikmenn og
þjálfarateymið því í Danmörku í
nótt. Þaðan lá leiðin til Malmö.
Ísland mætir heims- og ólympíu-
meisturum Danmerkur í fyrsta leik
á laugardaginn kemur. Eftir það
leikur Ísland við Rússland mánu-
daginn 13. janúar og loks Ungverja-
land miðvikudaginn 15. janúar.
Íslenska liðið
mætt til Malmö
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landsliðið Leikmenn íslenska
landsliðsins eru mættir til Malmö.
Real Madríd leikur til úrslita um
Meistarabikar Spánar í fótbolta eft-
ir sannfærandi 3:1-sigur á Valencia
í Jeddah í Sádi-Arabíu. Toni Kroos,
Isco og Luka Modric skoruðu mörk
Real, áður en Dani Parejo minnkaði
muninn fyrir Valencia í uppbótar-
tíma.
Í fyrsta skipti leika fjögur lið í
keppninni í stað tveggja og mætir
Real annaðhvort Barcelona eða
Atlético Madríd í úrslitaleik, en þau
eigast við klukkan 19 í kvöld.
Barcelona hefur oftast unnið bik-
arinn eða 13 sinnum.
Sannfærandi
Real í úrslitaleik
AFP
Úrslit Luka Modric og félagar í Real
Madríd leika til úrslita.
Rússneska knattspyrnufélagið Ro-
stov birti í gær yfirlýsingu á vef sín-
um þar sem segir að rangar fréttir
hafi verið birtar um fyrrverandi fyr-
irliða liðsins, Ragnar Sigurðsson, í
rússneskum fjölmiðlum.
Fram kemur að fjölmiðlar í Rúss-
landi hafi sagt Ragnar hafa farið frá
félaginu vegna áfengisvandamála.
Ragnar yfirgaf Rostov í desember
og er nú að leita sér að nýju liði en
hann er orðaður við félög bæði í
Tyrklandi og Danmörku. Þar hafa
Trabzonspor, Gaziantep, Antalya-
spor og FC Köbenhavn öll verið
nefnd til sögunnar.
Yfirlýsingin er svohljóðandi:
„Fréttir um alvarleg áfengis-
vandamál leikmannsins eru ósannar.
Á þeim tæplega tveimur árum sem
Ragnar lék með Rostov var hann
sannur atvinnumaður og ein-
staklingur sem hægt var að treysta í
hvívetna ef upp komu erfiðar að-
stæður. Þess vegna var hann gerður
að fyrirliða á þessu keppnistímabili.
Samningi við fyrrverandi fyrirliða
okkar var rift að beiðni hans. Við
vildum koma til móts við Ragnar því
við metum mikils þá einbeitingu sem
hann sýnir í hverjum leik og hans
persónulegu hæfileika. Við viljum
beina því til fjölmiðla að birta ekki
fréttir sem byggjast á ósannindum.
Rostov kemur
Ragnari til varnar
Yfirlýsing vegna frétta í Rússlandi
Morgunblaðið/Eggert
Rangt Rostov hafnar fréttum um
brotthvarf Ragnars Sigurðssonar.
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elías-
son eru í hópi 46 dómara sem sjá um
að dæma leikina á Evrópumóti karla
í handknattleik sem hefst í dag. Þeir
dæma í riðlakeppninni ásamt tíu
öðrum dómarapörum. Síðan taka við
tólf dómarapör og dæma þá leiki
sem eftir eru í milliriðunum og í
keppni um sæti í mótslok.
Anton og Jónas eru nú staddir í
Vínarborg en þar dæma þeir við-
ureign Austurríkis og Tékklands á
morgun, föstudag. Önnur verkefni
hafa ekki verið gefin út.
Jóhann Ingi Gunnarsson, íþrótta-
sálfræðingur og fyrrverandi lands-
liðsþjálfari, er einnig að störfum á
EM. Hann sér um andlegan und-
irbúning dómaranna fyrir keppnina
en Jóhann Ingi hefur verið í því hlut-
verki frá 2012 og er mættur á
fimmtu keppnina í röð. vs@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Austurríki Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma á EM á morgun.
Anton og Jónas
dæma í Vín á morgun