Morgunblaðið - 12.03.2020, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1 2. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 61. tölublað 108. árgangur
Bláber
125 gr
299KR/PK
ÁÐUR: 458 KR/PK
Kjúklingalundir
Danpo - 700 gr
1.199KR/PK
ÁÐUR: 1.999 KR/PK
EITTHVAÐ FYRIR ALLA Í VERSLUNUM NETTÓ UM HELGINA!
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 12. - 15. mars
-40% -50%
-40%
Bayonne skinka
Kjötsel
1.199KR/KG
ÁÐUR: 1.999 KR/KG
VILL EFLA
ÍSLENSKA
LEIKRITUN
FIMMTUGS-
AFMÆLIÐ
Í SÓTTKVÍ
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
MARTA NORDAL 26 FINNA VINNU 8 SÍÐURMAGNÚS GEIR 64
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin,
WHO, tilkynnti í gær að stofnunin
skilgreindi nú útbreiðslu kórónuveir-
unnar sem heimsfaraldur. Sagði
Tedros Adhanom Ghebreyesus,
framkvæmdastjóri WHO, að yfirlýs-
ingin myndi ekki breyta því hvernig
brugðist yrði við veirunni, en hann
hvatti um leið ríki heims til að láta
meira til sín taka til að koma í veg
fyrir frekari útbreiðslu faraldursins.
Bandarísk stjórnvöld íhuga nú
hvort rétt sé að setja bann við öllum
ferðamönnum frá ríkjum Evrópu
vegna faraldursins. Ken Cuccinelli,
starfandi framkvæmdastjóri heima-
varnaráðuneytis Bandaríkjanna,
sagði í gær við þingnefnd fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings að vandinn
væri einstakur og snerist meðal ann-
ars um það hvort líta ætti á Evrópu
sem eina heild vegna Schengen-
svæðisins. „Þetta er ekki á því stigi
enn að beita þurfi lögum til að hamla
ferðum [frá Evrópu]. En það er til
skoðunar,“ sagði Cuccinelli.
Rúmlega þúsund tilfelli veirunnar
hafa verið staðfest í Bandaríkjunum
og hugðist Donald Trump Banda-
ríkjaforseti ávarpa þjóð sína í nótt til
að kynna frekari viðbrögð Banda-
ríkjastjórnar gagnvart faraldrinum.
Danir loka öllum skólum
Dönsk stjórnvöld tilkynntu í gær-
kvöldi að öllum menntastofnunum
þar í landi yrði lokað í tvær vikur frá
og með morgundeginum, föstudegi.
Tilfellum í Danmörku fjölgaði um
442 í gær og hafa nú 1.303 smitast af
kórónuveirunni þar í landi. Þá hafa
dönsk stjórnvöld ákveðið að meiri-
hluti opinberra starfsmenn verði
sendur heim frá vinnu næstu tvær
vikurnar.
Sænsk stjórnvöld tilkynntu í gær
um fyrsta dauðsfallið af völdum veir-
unnar á Norðurlöndum, en um var að
ræða sjúkling á efri árum sem var
með undirliggjandi sjúkdóma.
Íhuga að loka á Evrópu
Bandaríkin hyggjast herða aðgerðir Kórónuveiran skilgreind sem heimsfaraldur
Víðtækar lokanir í Danmörku Fyrsta dauðsfallið á Norðurlöndunum í Svíþjóð
MKórónuveira »2, 4, 6, 8, 18, 40 og 42
Alls höfðu 90 tilfelli kórónuveirunnar verið stað-
fest hér á landi þegar Morgunblaðið fór í prent-
un í gær og rúmlega 700 einstaklingar voru í
sóttkví. Kórónuveirufaraldurinn nær nú til 113
landa, og hafa rúmlega 124.000 tilfelli komið
upp á heimsvísu. Þar af voru rúmlega 80.000 í
Kína, þar sem faraldurinn kom fyrst upp, en um
12.000 manns höfðu smitast á Ítalíu. Rúmlega
4.500 hafa látist af völdum veirunnar.
KÓRÓNUVEIRU-
FARALDUR
90
staðfest tilfelli
kórónuveirusmits
á Íslandi
700+
einstaklingar
í sóttkví
113
lönd með
staðfest tilfelli
124.101
tilfelli á heimsvísu
4.566
látnir af völdum
kórónuveirunnar
Kórónuveirufaraldurinn heldur áfram að breiðast út
AFP
Samkvæmt greiningu Ferðamála-
stofu fækkaði brottförum erlendra
farþega um 13% í janúar og um 11%
í febrúar, miðað við fyrra ár.
Alls komu 1.986 þúsund erlendir
ferðamenn til landsins um Kefla-
víkurflugvöll í fyrra. Ef þeim fækkar
jafn mikið í ár og fyrstu tvo mánuði
ársins munu um 200 þúsund færri
erlendir ferðamenn koma í ár.
Jakob Rolfsson, sérfræðingur hjá
Ferðamálastofu, segir mikla óvissu
um þróunina í ferðaþjónustu. Því
skorti forsendur til að leggja mat á
hugsanlegt tekjutap greinarinnar
vegna kórónuveirunnar.
Samkvæmt samantekt Hagstofu
Íslands námu tekjur af erlendum
ferðamönnum hérlendis og erlendis
alls um 470 milljörðum í fyrra. Það
var um 50 milljarða samdráttur milli
ára en WOW air hætti rekstri 28.
mars fyrra. Ef 10% samdráttur
verður í ferðaþjónustu vegna
kórónuveirunnar tapast 50 millj-
arðar til viðbótar. »10
Morgunblaðið/Eggert
Icelandair Mikil óvissa er í fluginu.
Flugið í
uppnámi
Útlit fyrir tug-
milljarða samdrátt
Peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands tilkynnti í gær að hún hefði
ákveðið að lækka stýrivexti bank-
ans um hálft prósent. Á kynning-
arfundi Seðlabankans í gær kom
fram að efnahagsspá bankans sem
kynnt var í febrúar væri nú einfald-
lega „úrelt“, en þá var gert ráð fyr-
ir að hagvöxtur á árinu yrði 0,8%.
Sagði Ásgeir Jónsson seðlabanka-
stjóri að bankinn ætti erfitt með að
gera sér grein fyrir hvert ástandið
væri vegna kórónuveirufarald-
ursins. Landsbankinn ákvað að
lækka vexti íbúðalána í kjölfar
ákvörðunarinnar og aðrir bankar
íhuga hið sama. »2 og 36
Efnahagsspá Seðla-
bankans „úrelt“