Morgunblaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 4
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR Á ÍSLANDI4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
www.danco.is
Heildsöludreifing
Ostakaka Caramel-Brownie Handunnar Falafel bollur Ljúffengar franskar makkarónur Mini Beyglur með fyllingu
Mini Club samlokur Petit Four sælkerabitar
Vegan samósur Canape snittur Vefjur með fyllingu
Danco hefur allt til að auðvelda veitingarnar hvort sem er í veisluna,
mötuneytið, kokteilboðið, skólaeldhúsið, alls staðar.
Forréttir, pizzur, smáréttir, forskornar tertur og fleira.
Ljúffengt...
...hagkvæmt og fljótlegt
Veisluþjónustur
Veitingahús - Mötuneyti
Ný vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is
Fjölbreytt úrval af matvöru og veisluréttum
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Alls höfðu 90 manns greinst með
kórónuveiruna sem veldur öndunar-
færasjúkdómnum COVID-19 hér á
landi um kvöldmatarleytið í gær.
35 smit má rekja til Norður-Ítalíu,
29 til Austurríkis, fjögur til Sviss og
eitt til Asíu. Þá eru innanlandssmit
15 og þriðja stigs smit fjögur. Óvissa
er um uppruna tveggja smita. Þeir
sem greinst hafa með veiruna hér-
lendis eru á aldrinum eins til 76 ára.
Fyrstu alvarlegu veikindin
Karlmaður var í gær lagður inn á
Landspítala vegna veirunnar og er
það fyrsta tilfellið þar sem leggja
þarf smitaðan einstakling inn á
sjúkrahús vegna alvarlegra veik-
inda. Fram hefur komið á upplýs-
ingafundum almannavarna og land-
læknis að hér á landi séu til 26
lungnavélar sem koma að notum ef
smitaðir einstaklingar veikjast
mikið. Þá eru einnig til minni vélar
sem og ferðavélar sem hægt er að
nota.
Alls hafa rúmlega 700 einstakling-
ar verið sendir í sóttkví. Þar af eru
tveir starfsmenn landlæknis sem
sendir voru í sóttkví en báðir aðilar
höfðu umgengist einstakling sem
reyndist smit aður af veirusjúk-
dómnum COVID-19. Þá voru tveir
kennarar og fimmtíu nemendur
Menntaskólans við Hamrahlíð og
þrír kennarar og tíu nemendur Ár-
bæjarskóla sendir í sóttkví vegna
veirunnar. Er nú unnið að því að út-
víkka þann hóp sem sýni eru tekin
hjá eftir því sem ástæða þykir til. Þá
eykst líklega geta til þess þegar Ís-
lensk erfðagreining kemur inn í það
verkefni, en sýnataka fyrirtækisins
hefst á morgun, föstudag.
Efsta stig sóttvarnaráætlunar
Björgunarmiðstöðin í Skógarhlíð
var í gær færð upp á efsta stig í sótt-
varnaáætlun. Þetta þýðir að frá og
með miðnætti átti enginn utanað-
komandi að fá að koma inn í björg-
unarmiðstöðina sem hýsir meðal
annars samhæfingarmiðstöð al-
mannavarna, slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins, Neyðarlínuna og
fleira. Undanfarna daga hafa blaða-
mannafundir í Skógarhlíð farið fram
í gámi fyrir utan björgunarmiðstöð-
ina en ekki innandyra eins og áður
var. Fram kom á upplýsingafundi al-
mannavarna og embættis landlæknis
síðdegis í gær að samkomubann
verði að setja í gildi á réttum tíma og
á réttum stöðum til þess að það skili
tilskildum árangri. Þá þurfi slíkt
bann ekki endilega að ná til alls
landsins til að byrja með. Sagði Víðir
Reynisson yfirlögregluþjónn að slíkt
bann myndi ná til skóla og vinnu-
staða.
Þá kom fram á fundinum að ef
ekkert yrði að gert myndi kórónu-
veiran ganga yfir landið á tveimur til
þremur mánuðum. Allt sé nú gert til
að minnka álagið á hverjum tíma og
af þeim sökum gæti ástandið vegna
veirunnar varað lengur. Þá ítrekaði
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
að flestir sem smituðust fengju væg
einkenni og að farið væri í aðgerðir
til að vernda eldra fólk og viðkvæma
hópa sem gætu veikst alvarlega.
Skipti því ekki máli hversu margir
heldur frekar hverjir fengju veiruna.
Er áhættuhópum ráðlagt að forðast
mannamót.
Minni áhrif af lokunum skóla
Hvað skólahald varðar sagði Þór-
ólfur Guðnason sóttvarnalæknir að
mikilvægt væri þó að hafa í huga að
þegar skólum væri lokað í venjuleg-
um faröldrum væri það gert vegna
þess að börn væru oft mestu smit-
berarnir, fengju verstu einkennin og
pössuðu sig minnst.
Hvað þessa tilteknu kórónuveiru
varðaði gæti það verið öðruvísi vegna
þess að börn fengju yfirleitt lítil sem
engin einkenni og áhöld hefðu verið
uppi um hvort þau smituðust jafn-
auðveldlega af veirunni og aðrir.
Smituðust börn síður af kórónu-
veirunni hefðu lokanir skóla miklu
minni áhrif en lokun annarra staða.
Þriðja stigs smitin orðin fjögur
Alls hafa 90 manns greinst með veirusjúkdóminn COVID-19 hér á landi 600 eru nú í sóttkví
Björgunarmiðstöðin í Skógarhlíð hefur nú verið færð upp í efsta stig í sóttvarnaáætlun í fyrsta sinn
Lönd með flest staðfest kórónuveirusmit
Föstud.
28. febrúar
Laugard.
29. febrúar
Sunnud.
1. mars
Mánud.
2. mars
Þriðjud.
3. mars
Miðvikud.
4. mars
Fimmtud.
5. mars
Föstud.
6. mars
Laugard.
7. mars
Sunnud.
8. mars
Mánud.
9. mars
Þriðjud.
10. mars
Miðvikud.
11. mars
1
0
2
6
7
10 9 9
8
12
3
7
16
90 hafa greinst með smit
700 manns eru í sóttkví
830 sýni hafa verið tekin
Staðfest kórónuveirusmit
Fjöldi staðfestra kórónuveirusmita á Íslandi síðustu 13 daga
Skv. tölum kl. 21.00 í gær
Ísland Ítalía Suður-Kórea Íran Kína
Fjöldi staðfestra smita 90 12.462 7.555 9.000 80.921
Smit á hverja milljón íbúa 247 207 146 108 57
Morgunblaðið/Eggert
Sótthreinsað Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason, Alma D. Möller og Steinn Jóhannsson á fundi almannavarna í gær.
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
Ragnhildur Þrastardóttir
Embætti landlæknis hefur nú
ákveðið að loka móttöku embættis-
ins. Áfram verður símasvörun hjá
embættinu frá kl. 10-12 og aftur frá
kl. 13-16 virka daga og reynt verður
að svara tölvupóstum eins hratt og
mögulegt er.
Í tilkynningu embættisins segir
að landlæknir óski eindregið eftir
því að þeir sem leiti upplýsinga í
tengslum við kórónuveirufarald-
urinn nýti sér upplýsingar á heima-
síðu embættis landlæknis fremur en
að hringja í embættið. Þá eru ein-
staklingar sem gætu hafa verið út-
settir fyrir smiti og finna fyrir veik-
indum, til dæmis þeir sem hafa verið
á áhættusvæði eða umgengist smit-
aða, beðnir um að hringja í síma
1700 varðandi nánari upplýsingar og
leiðbeiningar.
Þá segir einnig í tilkynningunni að
starfsmenn hafi gert sitt ítrasta til
að sinna einnig öðrum verkefnum en
að nú sé svo komið að loka verði
móttökunni. Mun málsmeðferð
vissra erinda því lengjast og verða
hlutaðeigandi upplýstir til sam-
ræmis. Biðlar embættið til fólks um
að sýna biðlund í þeirri fordæma-
lausu stöðu sem upp er komin.
Munar um hvern starfsmann
Þá staðfesti Kjartan Hreinn
Njálsson, aðstoðarmaður land-
læknis, í samtali við mbl.is í gær að
tveir starfsmenn embættisins hefðu
verið sendir í sóttkví. Spurður hvort
ekki væri erfitt að missa tvo starfs-
menn á slíkum álagstíma sagði
Kjartan að það munaði um hvern
starfsmann. „Eins og væntanlega
hjá öllum stofnunum landsins og
vafalaust fyrirtækjum líka. Við erum
svo heppin og vel búin góðu starfs-
fólki að við munum takast vel á við
þetta.“
Landlæknir lokar
móttöku sinni
Tveir starfsmenn sendir í sóttkví
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Höfðatorg Landlæknisembættið er
til húsa að Katrínartúni 2.