Morgunblaðið - 12.03.2020, Síða 22

Morgunblaðið - 12.03.2020, Síða 22
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Golfklúbbur Kópavogs og Garða- bæjar stígur stórt skref í upp- byggingu æfingaaðstöðu innan- húss er nýtt húsnæði verður tekið í notkun næsta haust. Þá verður klúbburinn kominn með 24 golf- herma, Trackmann, og segir Agn- ar Már Jónsson, framkvæmda- stjóri Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, að hann viti ekki af eins stórri og tæknivæddri að- stöðu hjá golfklúbbi annars staðar í heiminum. Hver golfhermir kostar um 10 milljónir Framkvæmdir við nýtt æfinga- húsnæði hófust síðasta haust og hafa gengið vel í vetur. Reiknað er með að húsinu verði lokað síðar í þessum mánuði og síðan verður unnið við frágang og uppsetningu tækja fram á haustið. Húsið er um 830 fermetrar og heildarkostnaður er áætlaður um 430 milljónir króna með fjármagnskostnaði og tækjum. Hver golfhermir er sjálf- stæð eining og kostar um 10 millj- ónir króna. Nýja húsnæðið er á einni hæð við vesturenda golfskálans, í raun framlenging á jarðhæð hússins. Þar verður alhliða aðstaða til æf- inga, hægt að pútta og vippa, en megináherslan verður á golfherm- ana. Garðabær fjármagnar fram- kvæmdina, en bæjarfélagið er að reisa fjölnota íþróttahús í Vetrar- mýri þar sem æfingasvæði golf- klúbbsins var áður. Flottustu vellirnir í 20 stiga hita allt árið GKG byrjaði með fjóra Track- mann-golfherma fyrir þremur ár- um, þeim var síðan fjölgað í níu í fyrra og í haust voru auk þess settir upp sex skermar í Kórnum til að anna eftirspurn. „Eftir- spurnin hefur verið mikil og stað- an er þannig að það er erfitt að fá tíma milli klukkan 17 og 22 fram í maí og þeir tímar sem losna fara fljótt,“ segir Agnar Már. Spurður hvað vinnist með golf- hermum umfram það sem fæst með því að æfa utanhúss, segir hann að öll greining á höggum verði mjög nákvæm. Sveiflan sé kortlögð, ferill kylfunnar, hvernig kylfuhausinn sé nákvæmlega þeg- ar hann snertir golfboltann, flug boltans, rennsli og flest sem geti nýst til að bæta sig í golfi. „Sam- hliða því erum við að breyta golf- inu í heilsársíþrótt, nú hættir fólk að setja settin í geymslu yfir veturinn heldur spilar flottustu velli veraldar eða æfir sveifluna í 20 stiga hita og logni allt árið um kring,“ segir Agnar Már. „Erlendis er fylgst með því sem er í gangi hjá okkur og í raun er um frumherjaverkefni á heimsvísu að ræða. Víða þykir sú nýting á landi sem fer undir stórt æfinga- svæði ekki merkileg og hér á landi er það svæði ekki notað í marga mánuði á ári. Erlendis horfa menn einnig til vatnsbú- skapar, umhverfismála og slíkra þátta sem kannski skipta ekki eins miklu máli hér. Við notum tæknina til að minnka það svæði sem fer undir þessa starfsemi og erum að mestu innandyra, en vorum einnig tíma- bundið með golfherma utanhúss þar sem menn slógu í net,“ segir Agnar Már.  Nýtt æfingahúsnæði Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar  Mikil aðsókn í golfhermana Tæknivæddir frumherjar á heimsvísu Ljósmynd/Agnar Már Góð aðstaða Heldri kylfingar í GKG settu upp mót í aðstöðunni í golfskálanum í gærmorgun. Næsta vetur verða golfhermarnir orðnir 24. Stækkun íþróttamiðstöðvar GKG Grunnmynd 1. hæð Stækkun 823,5 m² Eldra hús, 736 m² 22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020 Í Trackmann-golf- hermunum er hægt að leika marga af frægustu og eftir- sóttustu golfvöllum í heimi. Golfvöll Kópavogs og Garða- bæjar er nú að finna í þessum hópi. Agn- ar Már segir að það sé í raun ótrúlegt að geta leikið heima- völlinn í golfherm- inum. Aðstæður skili sér vel í herminum og sömuleiðis góðu höggin en líka þau sem eru verri. „Menn höfðu reyndar á orði að fyrst eftir að búið var að setja völlinn upp í tölvunni væru tvær flatir helst til of kúptar. Það var þó ekki mikið mál að laga forritið og miklu aðveldara og ódýrara en í raunheimum,“ segir Agnar Már. Heimavöllurinn í golfhermi MARGIR MÖGULEIKAR Framkvæmdir Vinna við nýju aðstöðuna hefur gengið vel í vetur. Fuglar í sjónmáli Í golfi á fallegum haustdegi. Morgunblaðið/Hari Heill frumskógur af gæludýrum... Í fiskana mig langar svo að setja í búrið stóra mamma segir þú færð tvo en pabbi segir fjóra. Kauptúni 3 | Garðabæ | Sími: 564 3364 | fisko.is Opið laugardag 10-18 sunnudag 12-18 L i f and i v e r s l un kíktu í heimsókn Hundar Kettir Fiskar Fuglar Nagdýr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.