Morgunblaðið - 12.03.2020, Page 36
spánni 2019. Af orðum seðlabanka-
stjóra má ráða að ekki séu líkur til
að spá um 0,8% hagvöxt muni stand-
ast. Á fundinum í gær sagði hann að
bankinn ætti eins og aðrir erfitt með
að gera sér grein fyrir hvað í raun
væri að gerast. Undir það tók að-
stoðarseðlabankastjóri, sem sagði
bankann keyra ólíkar sviðsmyndir
gegnum spálíkön sín en að ekki væri
á það að stóla að þau tækju mikið
mark á niðurstöðunum að degi liðn-
um. Svo hröð væri framvindan í
efnahagsmálum heimsins um þessar
mundir.
Samhliða ákvörðun um að lækka
meginvexti bankans tók peninga-
stefnunefnd einnig ákvörðun um að
færa meðaltalsbindiskyldu fjár-
málastofnana, sem verið hefur 1%,
niður í 0%. Þá hefur reglum um
fasta bindiskyldu, sem áfram mun
vera 1%, verið breytt. Breytingarn-
ar tvær valda því að sögn bankans
að lausafjárstaða bankanna sam-
kvæmt lausafjárreglum rými sem
nemi 40 milljörðum í heild. Taka
breytingarnar gildi 21. mars. Með
þessu vill bankinn auka lausafé í
umferð og bæta aðstöðu fjármála-
stofnana til að styðja við viðskipta-
menn sína.
Stuttur aðdragandi
Seðlabankastjóri staðfestir að
hann hafi ákveðið að kalla saman
peningastefnunefndina á föstudag-
inn. Í viðtali við ViðskiptaMoggann í
síðustu viku sagði hann að bankinn
myndi ekki flýta vaxtaákvörðun
sinni en í samtali við blaðið í gær
sagði hann að hlutir hefðu þróast
hratt á verri veg og því hefði þessi
ákvörðun verið tekin.
Peningastefnunefnd fundaði á
mánudag og þriðjudag eins og venja
er en Ásgeir staðfestir að fundir
nefndarinnar hafi verið stuttir að
þessu sinni. Hann vildi ekki gefa upp
hvort nefndarmenn hefðu allir verið
sammála tillögu hans um að lækka
meginvextina um 0,5 prósentur.
Hefð er fyrir því að afstaða nefndar-
manna sé ekki opinberuð fyrr en
fundargerð nefndarinnar er birt en
það gerist skv. starfsreglum
nefndarinnar að tveimur vikum
liðnum.
Loks hægt að taka ákvörðun
Seðlabankinn hefur að undan-
förnu verið þráspurður út í þá
ákvörðun sem leiddi til þess að svo-
kallaður sveiflujöfnunarauki á eigin
fé bankastofnana var hækkaður nú í
byrjun febrúar. Hefur seðlabanka-
stjóri bent á að það sé í valdi fjár-
málastöðugleikanefndar að ákveða
umfang aukans, en nefndin hefur
ekki enn komið saman. Það var ekki
fyrr en á föstudag sem fjármála- og
efnahagsráðherra skipaði ytri
nefndarmenn í nefndina. Í fyrradag
setti nefndin sér starfsreglur og að
sögn seðlabankastjóra stefndi
bankaráð Seðlabankans að því að
staðfesta þær fyrir lok dags í gær.
Er nefndinni þá ekkert að vanbúnaði
að taka málið fyrir en skv. upplýs-
ingum frá bankanum hefur fundur
ekki enn verið boðaður í nefndinni.
Fullkomin óvissa í kortunum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Banki bankanna Seðlabankinn leggur nú megináherslu á lausafjárstöðu kerfisins og að bankar miðli því áfram.
Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á fundinum í gærmorgun.
Mánaðargömul hagspá Seðlabankans „úrelt“ að sögn bankastjóra Stýrivextir lækkaðir
Vilja auka lausafé í umferð Ákvörðunar nýrrar fjármálastöðugleikanefndar enn beðið
Skjótt skipast veður
» Í október gerði Seðlabank-
inn ráð fyrir 1,6% hagvexti í ár.
» Í febrúar var spáin færð nið-
ur í 0,8%
» Nú segir bankinn fullkomna
óvissu uppi um hagvöxt á
árinu.
» Stýrivextir hafa lækkað um
2,25 prósentur frá því í maí í
fyrra og eru nú 2,25%.
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Íslenski hlutabréfamarkaðurinn tók
í gærmorgun vel í þá ákvörðun pen-
ingastefnunefndar Seðlabanka Ís-
lands að lækka meginvexti bankans
um 0,5 prósentur. Þegar leið á dag-
inn gaf hlutabréfaverðið þó aðeins
eftir, ekki síst eftir að í ljós kom að
hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjun-
um héldu áfram að lækka í kjölfar
þess að kauphallir vestanhafs opn-
uðu.
Það var nokkuð þungt yfir Ásgeiri
Jónssyni seðlabankastjóra og Rann-
veigu Sigurðardóttur aðstoðarseðla-
bankastjóra þegar þau kynntu
ákvörðun nefndarinnar kl. 10 í gær-
morgun. Samkvæmt dagskrá bank-
ans átti ekki að kynna vaxtaákvörð-
un fyrr en á miðvikudag í næstu
viku.
Spár bankans í uppnámi
Þegar seðlabankastjóri hafði lokið
við að lesa upp stutta yfirlýsingu
nefndarinnar þar sem ákvörðunin
var rökstudd var opnað fyrir spurn-
ingar. Var þar m.a. spurt út í efna-
hagsspá bankans sem kynnt var í
byrjun febrúarmánaðar og hvaða
þýðingu hún hefði enn. Var banka-
stjóri skorinorður þegar hann sagði
spána einfaldlega „úrelta“. Þar var
eflaust ekki of djúpt í árinni tekið.
Í fyrrnefndri spá sagði m.a.:
„Þrátt fyrir vaxandi áhyggjur af
áhrifum útbreiðslu nýrrar veirusýk-
ingar í Kína hefur óvissa um alþjóð-
legar efnahagshorfur minnkað frá
því í nóvember og minni líkur eru á
að alþjóðlegur hagvöxtur gefi enn
frekar eftir.“
Spá bankans gerði ráð fyrir að
hagvöxtur á árinu yrði 0,8% og hafði
þá lækkað úr 1,6% frá október-
36 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
Alþjóðlega
greiðslumiðl-
unarfyrirtækið
Salt Pay Co Ltd.
hefur keypt
63,5% hlut Ís-
landsbanka í
greiðslumiðl-
unarfyrirtækinu
Borgun.
Í tilkynningu frá bankanum segir
að samhliða kaupi Salt Pay Co einn-
ig eignarhlut Eignarhaldsfélagsins
Borgunar slf. og muni í kjölfar kaup-
anna fara með 95,9% hlutafjár í
Borgun.
Kaupverð fyrirtækisins er sagt
trúnaðarmál, en salan mun sam-
kvæmt tilkynningunni hafa óveruleg
áhrif á rekstur bankans.
Þá kemur fram í tilkynningu Ís-
landsbanka að leiðrétt fyrir rekstri
Borgunar hefðu þóknanatekjur sam-
stæðu Íslandsbanka fyrir árið 2019
dregist saman um 13%, rekstrar-
gjöld lækkað um 13% og kostnaðar-
hlutfall lækkað um fjögur prósentu-
stig. Salan hefði því jákvæð áhrif á
eiginfjárhlutföll bankans og lausa-
fjárhlutföll lækki lítillega. Þau eru
þó enn vel yfir markmiðum bankans
og kröfum eftirlitsaðila, samkvæmt
tilkynningunni.
Borgun til
Salt Pay
Miðlun Borgun var
stofnað árið 1980.
Íslandsbanki og
Borgun slf. seldu
Vandaðir gönguskór
í úrvali
TPS 520GV EVO
MM-ML
Kr. 37.990.-
Herra/Dömu
Herra
Herra
Dömu
FALCON GV
kr. 27.490.-
MSALPTRAINER
MIDGTX
Kr. 25.990.-
WSALPENROSE
ULTRAMIDGTX
Kr. 26.490.-
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum