Morgunblaðið - 12.03.2020, Page 40
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
Pantaðu tíma í
göngugreiningu
hjá okkur
s. 533 1314
Við erum hér til að aðstoða þig! --
Lífrænt
RAUÐRÓFUDUFT
í hylkjum
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Í aldanna raðir hefur neysla á rauðrófum
verið talin geta haft ýmis heilsueflandi
áhrif m.a.:
100% náttúrulegt og án allra aukaefna. 2 hylki á dag.
Nítröt í rauðrófum hafa áhrif á blóðþrýsting. Þeir sem hafa lágan
blóðþrýsting eða taka blóðþrýstingslyf ættu að ráðfæra sig við lækni
áður en þeir bæta rauðrófum við mataræði sitt.
• Lækk blóðþrýstings
• Aukið blóðflæði
• Bætt súrefnisupptaka
• Aukið úthald, þrek og orka
• Minni bólguviðbragða
• Heilbrigðara hjarta-
og æðakerfi
Nítján ríki Bandaríkjanna höfðu í
gær lýst yfir neyðarástandi vegna
kórónuveirunnar eftir því sem dag-
blaðið Washington Post greindi frá.
Fjöldi smitaðra í landinu er kominn
yfir eitt þúsund og hafði 31 látist af
völdum veirunnar þegar bandarískir
fjölmiðlar greindu frá stöðunni um
miðjan dag í gær.
Talið er að fjöldi manns hafi smit-
ast á ráðstefnu í Boston í febrúar, en
einnig hefur fjöldi smittilfella komið
upp á og við umönnunarheimili í
borginni Seattle. Hafa allar sam-
komur sem telja fleiri en 250 manns
verið bannaðar þar í borg.
Þjóðvarðlið í New York
Borgin New Rochelle í New York
hefur verið einangruð vegna fjölda
smita og kallaði Andrew Cuomo,
ríkisstjóri New York, þjóðvarðlið á
vettvang í fyrradag til að takmarka
umferð fólks út úr borginni auk þess
að vera til aðstoðar, svo sem við að
koma matvælum til fólks og sinna
þrifum á opinberum svæðum.
Donald Trump forseti heimsótti
sóttvarnamiðstöðina í Atlanta á
föstudaginn og sagði þar meðal ann-
ars að nóg væri til af búnaði til að
framkvæma veiruprófanir á öllum
sem á þyrftu að halda.
Fá ekki greidda veikindadaga
Margir Bandaríkjamenn forðast
þó í lengstu lög að leita læknis vegna
kostnaðarins sem því fylgir og ekki
er annað áhyggjuefni tengt kórónu-
faraldrinum síðra; fæstir launþegar í
Bandaríkjunum fá veikindadaga
greidda, sem táknar að hálfs mán-
aðar sóttkví kostar þorra vinnandi
fólks í landinu hálf mánaðarlaun.
Starfsfólk Hvíta hússins er tekið
að tínast á brott í sóttkví en forset-
inn sjálfur heldur því fram kok-
hraustur að honum hafi verið að tjáð
að hann þurfi ekki að gangast undir
veirupróf þrátt fyrir að hafa verið á
samkomu þar sem smituð mann-
eskja var einnig. Þá hefur Trump,
auk fleiri stjórnmálamanna úr röð-
um repúblikana, verið gagnrýndur
fyrir notkun fordómahlaðinna hug-
taka á borð við „Kínaveiru“ og
„Wuhan-veiru“ um faraldurinn.
Þjóðin í sóttkví?
Hagfræðingar segja kórónuveir-
una mestu ógn sem steðjað hafi að
bandarísku hagkerfi síðan fjármála-
hrunið varð fyrir rúmum áratug.
Verra sé hins vegar að nú séu færri
verkfæri til reiðu sem vitað sé að
dugi gegn vágestinum, en þegar
bankarnir féllu.
Er þá eina leiðin að setja þjóðina í
sóttkví? „Líkurnar á að það gerist í
Bandaríkjunum eru ákaflega litlar,“
sagði dr. Irwin Redlener, forstöðu-
maður Hamfaramiðstöðvar Col-
umbia-háskólans, við BBC í gær.
Sagði hann slíka ráðstöfun jafngilda
því að setja herlög.
AFP
Tómar hillur Handspritt hefur selst upp í New York-borg sem og víðar vegna kórónuveirufaraldursins.
Neyðarástandi lýst yfir í
nítján ríkjum vestanhafs
Samkomubann í Seattle Óttast launaleysi í sóttkví
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti,
hefur sótt í sig veðrið eftir rólega
byrjun í forkosningum Demókrata-
flokksins fyrir forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum 3. nóvember og er
eftir kosningu í sex ríkjum í fyrradag
líklegri þeirra Bernie Sanders til að
etja kappi við sitjandi forseta, Donald
Trump. Þingkonan Tulsi Gabbard er
langt á eftir með tvo kjörmenn en
aðrir hafa lagt árar í bát.
Biden hefur farið með sigur af
hólmi í 15 af 24 ríkjum þar sem geng-
ið hefur verið til forkosninga. Hann
hefur nú 857 kjörmenn á bak við sig
en Sanders 709. Frambjóðandi þarf
að tryggja sér 1.991 kjörmann til að
standa uppi sem sigurvegari í for-
kosningunum. Stjórnmálaskýrendur
vestanhafs telja tap Sanders í Mich-
igan á þriðjudaginn upphaf endaloka
baráttu hans, en þar hlaut hann
meirihluta árið 2016.
Vendipunktur í næstu viku
Næstkomandi þriðjudag verður
kosið í fjórum ríkjum þar sem alls 577
kjörmenn eru undir. Þetta eru Flór-
ída, Illinois, Ohio og Arizona, ríkin
sem í þessum forkosningum eru talin
hinsta vígi Bernie Sanders. Verði Joe
Biden valkostur meirihluta kjósenda
á þriðjudaginn er því spáð að þrýst-
ingur innan Demókrataflokksins á
Sanders að láta gott heita verði meiri
en öldungadeildarþingmaðurinn frá
Vermont geti staðist.
„Í kvöld höfum við stigið skrefi
nær því að reisn og heiður ríki á ný
innan veggja Hvíta hússins,“ sagði
Biden í ræðu sem hann flutti í Phila-
delphia á þriðjudagskvöld. Sagði
hann demókrata, þar með talda
stuðningsmenn Bernie Sanders, geta
skákað Donald Trump. „Stefna Do-
nald Trump, „Ameríka fyrst“, hefur
einangrað Ameríku,“ sagði Biden enn
fremur.
Minnti á efnahagshrunið
Því hefur gjarnan verið haldið á
lofti að enginn standi með pálmann í
höndunum í forvali demókrata án
stuðnings þeldökkra kjósenda og
fékk sú kenning byr undir báða
vængi í Mississippi á þriðjudaginn
þar sem svartir eru rúmlega 60 pró-
sent kjósenda, en Biden fór þar með
stórsigur af hólmi.
Kórónuveirutengt hlutabréfahrun
á Wall Street varð Sanders að vopni í
rimmunni og minnti hann kjósendur
á, í ræðu á mánudaginn, að Biden á
sínum tíma „skar glæpamennina á
Wall Street úr snörunni, sem næst-
um lögðu efnahag okkar í rúst fyrir
12 árum“. Þá hefur hann gagnrýnt
andstæðing sinn fyrir að þiggja kosn-
ingastyrki af auðmönnum á meðan
sjóðir Sanders sjálfs komi nánast úr
samskotabaukum.
Upphaf enda-
loka Sanders
Forkosningar næstu viku hinsta vígið
AFP
Aflýst Kosningafundi Sanders í
Cleveland var aflýst á þriðjudaginn.
Forval demókrata
» Joe Biden er nú með 857
kjörmenn á bak við sig eftir að
hafa unnið fjögur af þeim sex
ríkjum sem kusu í fyrrinótt.
» Bernie Sanders er með 709
kjörmenn, en einungis var
staðfest í gær að hann hefði
unnið North Dakota-ríki.
» Mestu munaði um Michigan,
sem Biden vann með yfirburð-
um, en Sanders hafði þar betur
gegn Hillary Clinton í forvalinu
2016.
Kvikmyndamógúllinn Harvey
Weinstein var í gær dæmdur í 23
ára fangelsi fyrir nauðgun og kyn-
ferðisbrot af dómstóli í New York.
Hann var fundinn sekur af kvið-
dómi fyrir tveimur vikum. Wein-
stein hefði mest getað fengið 29 ára
dóm fyrir brotin tvö samanlögð.
Lögmenn Weinstein höfðu áður far-
ið fram á að hann yrði dæmdur í
mesta lagi í fimm ára fangelsi en
lögmenn brotaþola fóru fram á há-
marksrefsingu. Weinstein mun á
næstunni þurfa að koma fyrir dóm í
Los Angeles þar sem hann er einnig
ákærður fyrir nauðgun.
BANDARÍKIN
Weinstein fékk 23 ára fangelsisdóm